In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Applications are open from: 01.09.2025
Applications are open to: 28.02.2026
Contact: mannaudur@hafnarfjordur.is
Share this vacancy
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Open for applications from: 01.09.2025
Open for applications until: 28.02.2026
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Open for applications from: 19.01.2026
Open for applications until: 04.02.2026
Contact: Inga Líndal Finnbogadóttir, Jónína Rósa Ragnarsdóttir
Leikskólinn Álfasteinn óskar eftir að ráða kennara í fullt starf frá 1. mars 2026
Leikskólinn Álfasteinn er fjögurra deilda leikskóli með 62 börn, staðsettur á Holtinu þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Stefna og áherslur leikskólans eru í anda John Dewy´s ásamt því að starfa markvisst með einingakubba Caroline Pratt. Lögð er áhersla á fjölbreytt starfsumhverfi, samvinnu og metnaðarfullt fagstarf. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt og skapa jákvæð og uppbyggileg samskipti. Okkar markmið er að vera framúrskarandi leikskóli!
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Líndal, leikskólastjóri, ingalindal@hafnarfjordur.is og Jónína Rósa Ragnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, joninarosa@hafnarfjordur.is
Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur til 4. febrúar 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Open for applications from: 16.01.2026
Open for applications until: 26.01.2026
Contact: Kristín Anna Th. Jensdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Berjahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar-, morgun-, kvöld- og næturvaktir. Starfshlutfall er 50-90%.
Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Anna Th. Jensdóttir, kristinj@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2025.
Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á heimili fatlaðs fólks – Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða til starfa þroskaþjálfa eða starfsmann með sambærilega menntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða starf á heimili fatlaðs fólks staðsett í Setbergshverfi. Gott væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 50-90% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Lea Margrét Thorarensen leamargret@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2026
Open for applications from: 12.01.2026
Contact: Margrét Halldórsdóttir
Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í hlutastarf á frístundaheimilið Álfakot í 40-50% starf eða eftir samkomulagi
Möguleiki er einnig á að taka vaktir í félagsmiðstöð barna 10-12 ára.
Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 – 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10 – 12 ára börn. Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Starfið felur í sér stuðning og stýra hópum í frístundastarfi skólans. Vinnutími er á bilinu 12:30-16:30.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 200. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri í netfanginu, margreth@engidalsskoli.is eða síma 5554433 og Arnheidur Gudmundsdóttir deildarstjóri frístundastarfs í netfangið arnheidurg@engidalsskoli.is eða í síma 555-4434.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Open for applications until: 31.05.2026
Contact: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hæfniskröfur:
1. Samskipta‐ og samstarfshæfni
2. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
3. Þjónustulund og áreiðanleiki
4. Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
5. Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
6. Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
7. Góð almenn tölvukunnátta
8. Góð íslensku‐ og enskukunnátta
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Open for applications until: 28.01.2026
Contact: hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða verkstjóra í þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöð heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðugildi.
Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir.
Hafsteinn Viktorsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 28.01.2026.
Open for applications from: 09.01.2026
Open for applications until: 23.01.2026
Contact: lars@hraunvallaskoli.is
Stuðningsfulltrúa vantar í 50-80% starf út skólaárið 2025-2026 í Fjölgreinadeild Hraunvallaskóla.
Fjölgreinadeild Hraunvallaskóla er fámennt skólaúrræði fyrir nemendur með fjölþættan vanda í 5. – 10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og tekur við þegar reynt hefur verið til þrautar að mæta þörfum nemanda í sínum heimaskóla. Haustið 2020 tók Hraunvallaskóli formlega við stjórn og rekstri deildarinnar sem hafði þá aðsetur í Menntasetrinu við Lækinn en frá hausti 2022 fer kennsla fram að Fléttuvöllum við Hraunvallaskóla. Kennsla getur þó farið fram á fleiri stöðum. Árlegur starfstími deildarinnar fylgir skóladagatali Hraunvallaskóla.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins.
Ef ekki fæst einstaklingur í starfið sem uppfyllir námskröfur fyrir stuðningsfulltrúa, kemur til greina að ráða inn einstakling í starfsheitið: Skóla og frístundaliði.
Umsókn fylgi yfirlit um fyrri störf. Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til með 23. janúar 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.
Contact: Lars Jóhann Imsland
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara í Fjölgreinadeild skólans. Um er að ræða 100% afleysingarstarf út skólaárið.
Í Fjölgreinadeild eru nemendur sem á grundvelli fjölþætts vanda geta ekki nýtt alfarið þau námstilboð sem bjóðast í þeirra heimaskóla. Starfsstöð umsjónarkennara er við Fléttuvelli á skólalóð Hraunvallskóla og er skipuð fjórum til fimm starfsmönnum.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. Einnig þarf viðkomandi hafa góða leiðtogahæfileika, víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar 2026
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá og kynningarbréf.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Contact: robertg@setbergsskoli.is
Setbergsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliðum með fjölbreytta hæfni og áhuga á að vinna með börnum á frístundaheimilinu Krakkabergi skólaárið 2025 – 2026. Starfshlutfall er 30-50%. Vinnutími er frá kl 13:00-16:36, alla virka daga.
Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Setbergsskóla. Þar gefst færi á að lengja viðveru barna eftir að skólastarfi lýkur.
Nánari upplýsingar veita Róbert Gíslason, deildarstjóri tómstundastarfs Setbergsskóla, robertg@setbergsskoli.is og María Pálmadóttir, skólastjóri, maria@setbergsskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar.
Open for applications from: 08.01.2026
Open for applications until: 22.01.2026
Contact: Kristinn Guðlaugsson
Hvaleyrarskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi út skólaárið 2025-2026.
Ráðið er í stöðuna sem fyrst.
Í Hvaleyrarskóla eru um 350 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistarkennslu.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.
Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar.
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Open for applications from: 20.01.2026
Open for applications until: 03.02.2026
Contact: Stefán Arnarson
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan starfsmann í starf á heimili fatlaðs fólks.
Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Um er að ræða 70% starf þar sem unnið er aðra hverja helgi.
Menntun- og hæfniskröfur:
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Stefán Arnarson, forstöðumaður í síma: 555-6554, netfang: stefana@hafnarfjordur.is
Launakjör samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2026
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.