In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Lögð fram eftirfarandi bókun vegna sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð Hafnarfjarðar telur brýnt að samið verði um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu nú þegar, svo hægt verði að eyða óvissu um þessa mikilvægu þjónustu á komandi árum. Afar mikilvægt er að bráðaþjónustan á höfuðborgarsvæðinu verði ekki sett í uppnám, en að óbreyttu bendir allt til þess að í það stefni. Ekki er síður mikilvægt að samningar náist um að sjúkraflutningaþjónusta verði áfram af þeim gæðum sem verið hefur, en þau eru ekki síst tilkomin vegna samreksturs slökkviliðs og sjúkraflutningaþjónustu, enda liggja þar möguleikar til menntunar og þjálfunar starfsmanna í krafti stærðar og samlegðar. Málið varðar velferð og öryggi allra þeirra sem starfa, koma saman, fara um eða búa á höfuðborgarsvæðinu. Íbúar svæðisins, sem og aðrir landsmenn, gera æ ríkari kröfur til opinberra aðila um öryggi og vernd og að bráðaþjónustan sé eins og best verður á kosið. Sveitarfélögin hafa sinnt sjúkraflutningum frá því snemma á síðustu öld og eru því vel í stakk búin til þess að sjá áfram um málaflokkinn.

Bæjarráð Hafnarfjarðar hvetur stjórnvöld til þess að ganga strax til samninga við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um rekstur sjúkraflutninga á svæðinu og tryggja þannig áfram þjónustu og öryggi við íbúa.

Lagt fram erindi Lyfjastofnunar dags. 2. mars 2010 þar sem óskað er eftir umsögn um styttingu opnunartíma ofnangreindrar lyfjabúðar.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við erindið.

Lögð fram eftirfrandi samþykkt stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 4. febrúar sl.:%0D”Lagt er til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga að Stjórn Reykjanesfólkvangs að samþykkt verði að Sveitarfélagið Vogar verði aðili að Stjórn Reykjanesfólkvangs með þeim skuldbindingum sem í því felast.”

Bæjarráð samþykkir erindið.

Lagt fram fundarboð Lánsjóðs sveitarfélaga þar sem boðað er til aðalfundar 26. mars nk.

Lagt fram.

Sviðsstjóri skipulags- og byggingarsvið mætti til fundarins og gerði grein fyrir fundum með forsvarsmönnum álversins.

Bæjarráð felur sviðstjóra skipulags- og byggingarsvið ásamt oddvitum bæjarstjórnarflokkanna að leita eftir nánari svörum hjá forsvarsmönnum álversins í Straumsvík varðandi áform um stækkun fyrirtækisins í samræmi við þá tillögu að deiliskipulagi sem fyrir liggur. Svör liggi fyrir sem fyrst.

Farið yfir stöðu málsins.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

Lagt fram erindi Helga Arndal dags. 11. mars 2010 varðandi aðkomu að Vitanum við lóð Vitastígs 12.

Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og byggingarsviðs til úrlausnar.

Forstöðumaður Fasteignafélags kynnti tillögur að nýtingu á viðbótarrými á Strandgötu 8-10.

Til kynningar.

Lögð fram ályktun starfsmannafundar Engidalsskóla dags. 10. mars 2010.%0DBæjarstjóri gerði grein fyrir fundi stýrihóps með starfsmönnum skólans.

Lagt fram.

Lögð fram skýrsla varðandi eignaskráningu hjá Hafnarfjarðarbæ sem fjármálastjóri kynnti.

Lagt fram til kynningar.

Jafnframt samþykkir bæjarráð að málið verði tekið á dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.

Fjármálastjóri mætti á fundinn og fór yfir afskriftir viðskiptakrafna vegna ársins 2009.

Bæjarráð samþykkir afskriftir í samræmi við fyrirliggjandi lista.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir málinu. %0DLagður fram lánasamingur við Lánasjóð sveitarfélaga vegna endurfjármögnunar.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:

”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 500.000.000 kr. til 14 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að endurfjármagna afborgun af skammtímaláni nr. 0806019 hjá sjóðnum, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er bæjarstjóra Lúðvík Geirssyni kt. 210459-3839, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari. “

Lagt fram sölutilboð Sjónvers ehf dags. 16. mars 2010 varðandi eignarhluta þeirra í húsnæðinu.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Tekið fyrir að nýju en afgreiðslu var frestað á síðasta fundi.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:

”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi drög að lögreglusamþykkt fyrir Hafnarfjörð.”

Lagt fram yfirlit yfir umsóknir um styrki vegna fasteignaskatts félagasamtaka 2010.

Lagt fram.

Lagt fram erindi Nýsköpunarsjóðs námsmanna dags. 26. febrúar 2010 þar sem bæjarfélagið er hvatt til að styðja sjóðinn.
Lagt fram erindi orlofsnefndar húsnæðra í Hafnarfirði dags. 24. febrúar 2010 þar sem óskað er eftir styrk í samræmi við lög nr. 53/1972.
Lagt fram erindi Náttúrustofnu Reykjaness dags. 5. mars 2010 þar sem óskað er eftir styrk vegna kostnaðar við málþing um jarðminjagarða á Íslandi.
Lagt fram erindi Kvikmyndafélagsins Einstefnu dags. 15. mars 2010 þar sem óskað er eftir stuðningi, bæði í formi aðstöðu og fjárstuðning, vegna kvikmyndaverkefnis.
Lögð fram fundargerð frá Sorpu bs. frá 1.3.2010
Lögð fram fundargerð frá Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 1.3.2010
Lagðar fram fundargerðir frá Strætó bs. frá 22. og 26. febrúar og 3.mars sl.