Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bæjarráð

5. July 2012 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Meeting 3322

Attended

  • Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Eyjólfur Sæmundsson aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Margrét Gaua Magnúsdóttir varamaður

Secretary

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
  1. Almenn erindi

    • 1006187 – Ráð og nefndir 2010-2014, kosning varaformanns bæjarráðs

      Á fundi bæjarstjórnar Hafnafjarðar 27. júní sl. hlutu eftirtaldir kosningu í bæjarráð:$line$Aðalmenn$line$Gunnar Axel Axelsson sem jafnframt var kosinn formaður$line$Sigríður Björk Jónsdóttir$line$Eyjólfur Þór Sæmundsson$line$Rósa Guðbjartsdóttir$line$Kristinn Andersen$line$$line$Varamenn:$line$Margrét Gauja Magnúsdóttir$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir$line$Guðfinna Guðmundsdóttir$line$Geir Jónsson$line$Valdimar Svavarsson$line$$line$Kosning varaformanns.$line$$line$

      Tillaga kom fram um Eyjólf Þór Sæmundsson sem varaformann. Fleiri tillögur komu fram og skoðast hann rétt kjörinn.

    • 1206352 – Húsmæðraorlof, fundarboð

      Lagt fram samrit af erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 25. júní 2012 til velferðarráðuneytisins þar sem óskað er eftir fundi um lög um húsmæðraorlof.$line$Fundurinn verður haldinn þann 13. ágúst nk. og þarf að tilkynna þátttöku til Sambandsins.$line$

      Lagt fram til kynningar.

    • 0803132 – Hvammur leikskóli, lausar stofur, samkomulag

      Lagt fram til staðfestingar nýtt samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og íbúa við Staðarhvamm varðandi staðsetningu lausra kennslustofa við leikskólann Hvamm. Samkomulagið gildir til ársloka 2013.

      Bæjarráð staðfestir samkomulagið.

    • 1205311 – Álfaskeið 100 sala félagslegrar eignar

      Lagt fram kauptilboð í ofangreinda eign en umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti að setja hana í sölu á fundi þann 30. maí sl.

      Bæjarráð staðfestir kaupsamning fyrir sitt leyti.

    • 1202121 – Kostnaðarliðir á 17. júní 2011, beiðni um gögn

      Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál, dags. 18. júní 2012, í kæru Marteins Péturssonar vegna synjunar á beiðni um gögn varðandi kostnaðarliði vegna 17. júní 2011.$line$Lögmaður stjórnsýslu mætti á fundinn og fór yfir úrskurðinn.$line$Niðurstaðan er sú að umsækjandi á rétt á að fá afhentan eitt tiltekið skjal.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1110288 – Stjórnsýslukæra v/ráðningar sálfræðings

      Lagður fram úrskurður innanríkisráðuneytis dags. 22. júní 2012 um stjórnsýslukæru vegna ráðningar sálfræðings við Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.$line$Lögmaður stjórnsýslu mætti á fundinn og fór yfir úrskurðinn.$line$Niðurstaðan er að ráðningaferlið hafi verið ófullnægjandi.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1203097 – Launakönnun 2012, verðkönnun

      Lögð fram niðurstaða úr verðkönnun vegna launakönnunar 2012.

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að leita eftir samningum við lægst bjóðanda á grundvelli tilboðs hans með fyrirvara um að allar kröfur varðandi forsendur könnunarinnar séu uppfylltar.

    • 1207055 – Árshlutauppgjör 2012

      Lögð fram rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs janúar – maí 2012. Fjármálastjóri mætti á fundinn og fór yfir niðurstöðuna.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1207057 – Fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga

      Lagt fram erind eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga dags. 26. júní 2012 varðandi ársreikning 2011 og fjárhagsáætlanir 2012-2013.

      Bæjarráð samþykkir að óska eftir fresti varðandi skil á áætlun um hvernig ná á viðmiðum reglugerðar 502/2012 um fjárhagsleg viðmið.

    • 1207096 – Fasteignamat 2013

      Lagt fram erindi Þjóðskrár Íslands dags. 2. júlí 2012 um fasteignamat 2013.

      Lagt fram til kynningar.$line$Fram kemur að hækkun í Hafnarfirði er að meðaltali um 10%.

    • 0907115 – Húsdýrahald, samþykkt,

      Lögð fram til kynningar samþykkt um húsdýrahald og almennt gæludýrahald í Hafnarfirði sem umhverfisráðuneytið staðfesti 2. júlí 2012.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1206322 – Ráðning bæjarstjóra

      Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:$line$”Samanburður á launum bæjarstjóra í landinu var talsvert til umræðu í fjölmiðlum í júnímánuði. Í fréttum kom fram að laun bæjarstjóra í Hafnarfirði væru samtals 1.089.990 kr með bílastyrk. Í lok mánaðarins kom hins vegar fram í fréttum RÚV að laun bæjarstjórans í Hafnarfirði væru 1.260.000 kr. Óskað er eftir skýringum á því hvers vegna þetta misræmi er í upplýsingum til fjölmiðla um laun bæjarstjórans.”$line$Lagður fram ráðningarsamningur bið bæjarstjóra þar sem fram kemur að laun hans eru 1.089.990 kr.

      Lagt fram.

    Umsóknir

    • 1206288 – Bón og þvottastöðin ehf, lóðaumsókn

      Lögð fram umsókn Bón og þvottastöðvarinnar ehf ódags. en móttekin 20. júní 2012 um lóð fyrir bílaþvottastöð.

      Bæjarráð óskar eftir umsögn frá skipulags- og byggingarmálum og umhverfis- og framkvæmdamálum.

    Fundargerðir

    • 1201185 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fundargerðir 2012

      Lögð fram fundargerð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 25. júní sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1206012F – Hafnarstjórn - 1410

      Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 19. júní sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1206007F – Menningar- og ferðamálanefnd - 184

      Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 13. júní sl.

Suggestion portal