Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Skipulags- og byggingarráð

19. March 2013 08:15

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 318

Attended

  • Sigríður Björk Jónsdóttir formaður
  • Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Sigurbergur Árnason aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður

Secretary

  • Ólafur Helgi Árnason skrifstofustjóri/skipulags- og byggingarsviðs
  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 06.03.13 og 14.03.13. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.

      Lagt fram.

    • 1212037 – Helluhraun 16-18, breyting á deiliskipulagi

      Eik fasteignafélag sækir 04.12.12 um deiliskipulagsbreytingu á Helluhrauni 16-18.$line$Tillagan barst 14.01.2013 og skipulags-og byggingarráð samþykkti 7.1.2013 að auglýsa tillögu að breytingunni skv. 43. gr.laga nr. 123/2010. Auglýsingartími er liðinn, athugasemd barst. Endurskoðaður uppdráttur barst, þar sem brugðist er við athugasemd Vegagerðarinnar.

      Skipulags- og byggingarráð tekur undir svar skipulags- og byggingarsviðs við athugasemd Vegagerðarinnar og gerir að sínu.$line$$line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingu á deiliskipulagi fyrir Helluhraun 16 – 18 og að skipulaginu verði lokið í samræmi við 42. gr. laga nr. 123/2010.

    • 1303013 – Brekkugata 22, byggingarleyfi breyting

      Sigurður B.Stefánsson sækir 28.02.13 um að gera eina íbúð í tvíbýlishúsi sjá meðfylgjandi gögn. Samkvæmt teikningum Stefáns Arnar Stefánsonar dags.16.08.12. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 06.03.2013, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við umsækjanda í samræmi við umræður á fundinum þar sem tillagan fellur ekki að núverandi deiliskipulagi.

    • 1303069 – Hverfisgata 41, Fyrirspurn

      Borgar Þorsteinsson leggur 06.03.2013 fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi til samræmis við uppdrætti sem sendir hafa verið á skipulagssvið með tölvupósti. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 13.03.2013, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina, bendir á að húsið er byggt 1925 og fellur þ.a.l. undir lög nr. 80/2012 um menningarminjar og heimilar umsækjanda að vinna tillögu að deiliskipulagi í samræmi við tillöguna samkvæmt 2. mgr. 38. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

    • 1209337 – Norðurvangur 15, fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa

      Bergsveinn Jónsson gerir fyrirspurn þann 18. september um stækkun á húsi, um ræðir framlenging á bílskúr. Lóðin nýtist illa eins og hún er í dag, en þar er lítill 13 fermetra skúr sem ég mun rífa. Einning með þessum breytingum mun hljóðmengun sem skapast frá stóru bílastæði, minka talsvert. Bergsveinn Jónssonhvort hægt sé að fara fram á að breyta deiluskipulagi, svo hægt sé að bæta við þessari viðbyggingu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 13.03.2013, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

      Skipulags- og byggingarráð tekur fram að samkvæmt deiliskipulagi er ekki heimilt að byggja meira en nú er við lóðamörk, en heimillt er að stækka hús um 20 fm innan byggingarreits.$line$Ekki er tekin afstaða til frekari skermunar vegna umferðar við lóðamörk.

    • SB060858 – Vellir 7. áfangi, deiliskipulagsvinna.

      Tekin til umræðu athugasemd frá Guðna Gíslasyni varðandi nafngift hverfisins og endingar gatnanafna sem barst með tölvupósti 21.11.12. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að svari við athugasemdinni.

      Skipulags- og byggingarráð tekur undir svar skipulags- og byggingarsviðs og gerir að sínu með áorðnum breytingum.

    • 1303183 – Hjallahraun - Fjarðarhraun gatnamót

      Gestur Ólafsson arkitekt óskar með tölvupósti dags. 13.03.13 eftir því f.h. Eikar fasteignafélags að teknar verði upp viðræður við Vegagerðina um breytingu á hægri beygju af Hjallahrauni inn á Fjarðarhraun. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 13.03.2013, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að verða við erindi um viðræður við Vegagerðina um útfærslu gatnamóta við Hjallahraun og Fjarðarhraun. Skipulags-og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að hefja undirbúning að deiliskipulagi/hverfaskipulagi svæðisins í heild.

    • 1011383 – Kirkjugarður stækkun til norðurs deiliskipulag

      Lögð fram tillaga Landslags ehf að deiliskipulagi fyrir stækkun kirkjugarðsins dags. 14.03.2013

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagið verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og að haldinn verði kynningarfundur um skipulagið skr. 40. grein sömu laga.$line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi fyrir stækkun kirkjugarðs til norðurs verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”

    • 1202338 – Bæjarhraun, hjólastígur

      Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs fyrir stíginn dags. 13.03.2013.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagið verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og að haldinn verði kynningarfundur um skipulagið skr. 40. grein sömu laga.$line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi fyrir hjólastíg við Bæjarhraun verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”

    • 0810265 – Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, Græni trefillinn, breytt skilgreining.

      Lagt fram bréf velferðarráðuneytisins dags. 04.03.2013 varðandi afgreiðslu málsins.

      Lagt fram.

Suggestion portal