Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

27. August 2014 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 525

Attended

  • Berglind Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Þormóður Sveinsson starfsmaður
  • Sigurður Steinar Jónsson starfsmaður

Secretary

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1408262 – Hvaleyrarbraut 29, breyting á rýmum.

      Bingur ehf. sækir þann 19.08.2014 um leyfi að skipta rými sem áður var 01-02 í tvær einingar sem verða 01-02 og 01-06 samkvæmt teikningum Jóns Guðmundssonar dagsettar 10.08.2014, ásamt stimpli frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

    • 1408279 – Fagrihvammur 8, endurnýjun á byggingarleyfi

      Hallgrímur T. Ragnarsson sækir 20.08.2014 um endurnýjun á byggingarleyfi vegna garðskála sem samþykktur var árið 2007. Teikningar eftir Pál Gunnlaugsson.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.

    • 1408002 – Mjósund 10, byggingarleyfi

      Atli Jóhann Guðbjörnsson leggur f.h. Mjósunds 10 ehf inn reyndarteikningar innandyra og hurðabreytingar utandyra út á verandir. “austur- og vesturhlið”. Nýjar teikningar bárust 13.08.14.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

    • 1406261 – Íshella 7, breyting

      Viking Life-Saving á Íslandi ehf. sækir 13.06.2014 um breytingu á innra skipulagi samkvæmt teikningum Hauks Ásgeirssonar dagsettar mars 2014. Nýjar teikningar bárust 07.07.2014 Nýjar teikningar bárust með leiðréttum texta 20.08.14.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

    • 1407160 – Grænakinn 20, breyting

      Svava Berglind Hrafnsdóttir sækir 16.07.14 um að byggja við stofu og anddyri, hækka ris á þaki og innrétta risið til íbúðar samkvæmt teikningum Ivon Stefán Cilia dags.14.07.14 Nýjar teikningar bárust 19.08.14.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.$line$13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.$line$Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi: $line$1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.$line$2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.$line$3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.$line$4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

    • 1408286 – Skógarás 8, reyndarteikning

      Eyvindur Guðmundsson leggur 20.08.14 inn reyndarteikningar af útliti, samkvæmt teikningum Pálmars Kristmundssonar dags.18.06.2007.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1408362 – Sléttuhlíð, Klifsholt gámur

      Baldvin Hermannsson eigandi að frístundahúsi í Klifsholt bendir á að Gámaþjónustan hafi verið með gám á ræktunarspildu fyrir framan húsið í allt sumar.

      Eiganda gámsins er gert að fjarlægja hann innan við viku frá dagssetningu þessa bréfs. Umrætt svæði er útivistarsvæði Hafnfirðinga, stendur við friðlýst svæði við Gjárnar og inná grannsvæði vatnsverdar. Gámar eru ekki leyfðir á þessum stað.

    • 1109127 – Sléttuhlíð, svæði fyrir býflugur

      Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 30. apríl 2013 var tekið undir afgreiðslu skipulags- og byggingarfulltrúa þann 12. apríl 2013 þess efnis að eigenda býflugnabús við Sléttuhlíð væri gert að færa býflugnabúið inná sína lóð vegna ábendinga um að menn væru bæði hræddir við flugurnar og eins væru sumir með ofnæmi. Skipulags- og byggingarráð veitti leyfi til eins árs til reynslu þann 20. september 2011.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekar bókun sína og óskar eftir að búið verði fært inná lóð eigenda.

    • 1408167 – Eskivellir 15-sorpskýli

      Kvartanir hafa borist frá íbúum Eskivalla 15 og nágrönnum í kringum Eskivelli 15 vegna sorpmála. Skv. teikningum þá er sorp rétt staðsett á teikningum, en er ekki yfirbyggt eða skermað af með neinum hætti. Í ruslið sækir vargur nánast allar nætur með tilheyrandi ónæði.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi beinir því til eiganda hússins að koma sorpmálum á lóðinni í viðunandi horf.

    • 1408344 – Tjarnarbraut 29, Fyrirspurn

      Algimantas Cesiulis leggur 25.08.14 inn fyrirspurn um að setja glugga og hurðir á norðurhlið húss á Tjarnarbraut 29.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi sendir fyrirspurnina til kynningar hjá meðeigendum (matshluti 01) að Tjarnarbraut 29.

    • 1408393 – Glitvellir 10, umgengi á lóð.

      Ítrekað hefur verið kvartað yfir umgengni á lóðinni.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi beinir því til eiganda hússins að koma lóðinni í viðunandi horf.

    • 0903040 – Brekkuás 21, slæmur frágangur á byggingarstað

      Borist hafa ítrekaðar ábendingar um slæma umgengni á lóðinni.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi beinir því til eiganda að koma lóðinni í viðunandi horf innan 4 vikna svo komist verði hjá frekari aðgerðum.

    C-hluti erindi endursend

    • 1408209 – Berghella 1, byggingarleyfi

      Gámaþjónustan ehf sækir 18.08.14 um að byggja efnamótöku samkvæmt teikningum Jóhanns M. Kristinssonar dags.14.08.14. Brunahönnunarskýrsla fylgir með.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu og óskar eftir umsögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs.

    • 1408210 – Fjarðargata 19, breyting

      Sjöstjarnan sækir 18.08.14 um að breyta rými 102 á 1.hæð. Rýminu er skipt upp í 3 rými 102/06/07 og fá 106 og 107 nýjan útgang samkvæmt teikningum Sigurðar Harðarsonar dags. 11.07.14.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu, sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1408285 – Sléttuhlíð B-6 breyting

      Helga Eiríksdóttir sækir 20.08.14 um að stækka sumarhús við Sléttuhlíð B- 6 samkvæmt teikningum Hildar Bjarnardóttur dags. 15.08.14.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu og óskar eftir nánari byggingarlýsingu.

Suggestion portal