Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

19. October 2016 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 634

Attended

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi
  • Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður

Secretary

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1608160 – Rauðhella 10, breyting

      Tekið fyrir að nýju.
      Boggi ehf sækir 10.08.16 um að skipta eignahluta í tvo eignahluta samkvæmt teikningum Einars V. Tryggvassonar dags.18.06.16.
      Nýjar teikningar bárust 06.09.16
      Nýjar teikningar bárust 27.09.16
      Nýjar teikningar bárust 12.10.16

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010

    • 1610117 – Skógarás 2, dagsektir, hús ófrágengið að utan

      Húsið við Skógarás 2, hefur staðið autt og hálfklárað í langan tíma, Nágrannar hafa kvartað, þann 22.08.2016 var sent bréf á eigendur þess efnis og þeim gert að lagfæra frágang að utan.
      Húsið er lýti í fallegu hverfi og liggur undir skemmdum.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eiganda. Dagsektir eru 20.000kr á dag frá og með 26.10.2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1610236 – Álfhella 13, dagsektir v. lokaúttektar og lausamuna á lóð

      Álfhella 13 er skráð fokhelt þrátt fyrir að vera tekið í notkun, ekkert brunabótamat er á húsinu, og á lóðinni er mikið af lausamunum, númerslausum bílum, bátur o.fl sem ekki er leyfilegt að vera með á lóðinni

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eigendur. Dagsektir eru 20.000kr á dag frá og með 26.10.2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1610237 – Stapahraun 7, dagsektir vegna ósamræmis á milli teikninga og þinglýsts eignaskiptasamnings

      Ósamræmi er á milli samþykktra teikninga og þinglýsts eignaskiptasamnings.
      Á samþykktum teikningum og í þinglýstum eignaskiptasamning er bil á milli matshluta, en í reynd er búið að tengja matshluta 01 og 02 saman.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eiganda 01-0101. Dagsektir eru 20.000kr á dag frá og með 26.10.2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1604373 – Norðurhella 7, umsókn um byggingarleyfi

      Tekið fyrir að nýju.
      Tæki.is sækir 18.04.2016 um byggingarleyfi samkvæmt teikningum Halldórs Hannessonar dagsettar 12.apríl 2016.
      Nýjar teikningar bárust nr.1 til 5. skráningartöflu ekki breytt dags 13.09.16. Skráningartafla barst 14.09.16.
      Nýjar teikningar bárust 05.10.16

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010

    • 1610137 – Drangahraun 1b, fyrirspurn

      Guðni Pálsson leggur inn fyrirspurn dags. 29.9. 2016 f.h. eigenda, RA 5 ehf, um að breyta húsinu á ofangreindri lóð í gistiheimili.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur neikvætt í erindið.

    • 1610191 – Kelduhvammur 3, fyrspurn um að byggja bílskúr

      Árni Már Björnsson og Ásrún Jónsdóttir leggja 14.10.16 fram fyrirspurn um að byggja bílskúr á lóðarmörkum Kelduhvamms 3 og 5 skv. meðfylgjandi skissum.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur neikvætt í erindið.

    • 1608418 – Hnoðravellir 28 breyting á áður samþykktum teikningum

      Tekið fyrir að nýju.
      Haghús ehf, kt 5609033320, sækir þann 19.08.16 um leyfi til að breyta áður samþ. teikningum samkv.teikningur frá Jóni Hrafni Hlöðversyni byggingafræðingur dags. 18.07.16
      Nýjar teikningar bárust 29.09.16
      Nýjar teikningar bárust 13.10.16

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010

    • 1610076 – Sörlaskeið 36,byggingarleyfi, reyndarteikningar

      Þórður Kristjánsson leggur 05.10.16 inn reyndarteikngar Friðriks Friðrikssonar dag.04.10.16. Nýjar teiknigar bárust 13.10.16.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010

    • 1610194 – Brekkugata 26, breyting

      Búhamar ehf sækir 14.10.16 um breytingu í svefnherbergi og loftræsti og björgunarop með hertu brunagleri. Samkvæmt teikningum Þorgeirs Jónssonar dag.13.10.16

      Afgreiðslu frestað, athugsemdir um gluggastærð og gerð.

    • 1610263 – Svöluás 4, fyrirspurn til skipulags- og byggingafulltrúa um svalalokun

      Þórhallur Guðmundsson leggur þann 18.10.2016 inn fyrirspurn um svalalokun.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur neikvætt í erindið.

    • 1609588 – Dalshraun 11, Heilsudalurinn, breyting

      Heilsudalurinn Eignarhalds ehf. sækir 26.09.2016 um breytingar innan og utanhús samkvæmt teikningum Friðriks Friðrikssonar dags. 26.08.2016.
      Innkeyrsluhurð skipt út fyrir glugga með flóttaleið. Glerveggur og veggstubbur tekinn burtu.
      Teikningar stimplaðar með stimpli Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Nýjar teikningar bárust 17.10.2016.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 120/2010

    • 1609445 – Teigabyggð 5, breyting

      Tekið fyrir að nýju.
      Björgvin Bjarnason og Halla Þórisdóttir sækja 19.09.16 um að setja þak yfir bílskúr, aðalinngangi breytt, eldhús stækkað og sett hurð út í garð frá bílskúr samkvæmt teikningum Vigfúsar Halldórssonar dags. 31.08.16.
      Nýjar teikningar bárust 05.10.16 Nýjar teikningar bárust í dag 13.10.2016 .

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010

    B-hluti skipulagserindi

    • 1610337 – Strandgata, stígatenging framkvæmdaleyfi

      Hafnarfjarðarbær sækir um framkvæmdaleyfi til að klára stígatengingu við Strandgötu. Stígurinn er á deiliskipulagi og verður 3 metra breiður

      Skipulagsfulltrúi samþykkir að veita framkvæmdaleyfi til að ljúka stíg við Strandgötu.

Suggestion portal