In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri fundinn.
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 23.08. s.l. var skipulagsfulltrúa falið að leggja fram tillögu um málsmeðferð varðandi framtíðarnýtingu, byggða á deiliskipulagsforsögn sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 17. 02.2016. Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa dags. 17.10.2016.
Lagt fram.
Vilhjámur Hilmarsson, Ólöf Kristjánsdóttir og Albert Skarpéðinsson f.h. Mannvits ehf., kynntu vinnu við hagkvæmniúttekt á vegtengingum við Velli.
Kynning.
Fjárhagsáætlun vegna skipulags- og byggingarmála tekin til umfjöllunar að nýju.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi áætlun fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs.
Lögð fram tillaga að breytingum á þjónustugjaldskrá skipulags-og byggingarfulltrúa. Lilja Ólafsdóttir mætti og kynnti breytingarnar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs.
Aðalskipulag Hafnarfjarðar tekið til umfjöllunar.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að leggja fram tillögu að vinnulagi vegna breytinga á aðalskipulagi.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi 28.6. 2016 eftir úrdrátt að fela eftirfarandi aðilum að vinna að hugmyndum að byggðaþróun svæðisins í samræmi við auglýsingu í Fréttablaðinu 21.6. sl.: Krads, Gylfi & félagar, Basalt-Efla-Steinholt, Archus-Guðm. Gunnl. og Björn Ólafs, Úti og inni. Skilafrestur var til 6.10 s.l. Lagðar fram innkomnar tillögur.
Borghildur Sturludóttir vék af fundi við umfjöllun þessa máls.
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 5. október s.l. var eftirfarandi erindi vísað til skipulags- og byggingarráðs: “Lagt fram erindi Dýraverndunarfélagi Hafnarfjarðar dags. 16.9. 2016 varðandi hundagerði”
Skipulags- og byggingarráð telur ekki unnt að veröa við erindinu á umræddum stað þar sem fyrir liggur að deiliskipuleggja á svæðið en bendir á að eðlilegt sé að finna heppilega staðsetningu fyrir hundagerði.
Tekið fyrir á ný erindi Gunnars Hjaltalín, Sævangi 44, Hafnarfirði, sem óskaði eftir að deiluskipulagi er varðar lóðina Hellubraut 7, yrði breytt og heimild veitt til þess að rífa núverandi hús og byggja nýtt í staðinn. Skipulags- og byggingarráð samþykkti að auglýsa framlagða deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Jafnframt samþykkti skipulags- og byggingarráð að næsta nágrenni yrði kynnt skipulagstillagan sérstaklega með bréfi. Auglýsingatími er liðinn. Athugasemdir bárust með bréfi dags. 23.09.2016.
Skipulags- og byggingarráð fól umhverfis- og skipulagsþjónustu að vinna umsögn um athugasemdirnar. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17.10.2016.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn skipulgsfulltrúar dags. 17.10. 2016 fyrir sitt leyti með þeim ábendingum sem komu fram á fundinum og leggur til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögu og að henn i verði lokið skv. 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.”
Tekið fyrir á ný erindi Hraunbrautar ehf, dags. 26.09.16, um leyfi til að breyta húsi í gistiíbúðir samkvæmt teikningum Guðmundar Gunnlaugssoanr dags. 21.09.16. Erindinu var frestað þann 04.10.2016.
Afgreiðslu frestað.
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Hraunbrautar ehf dags. 26.09.16 þar sem óskað er eftir að fá að stækka byggingareit til suðurs á lóðinni. Erindinu var frestað á fundi 4.10.2016.
Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu þar sem það samræmist ekki deiliskipulagi svæðisins.
Tekið fyrir að nýju erindi Jónasar Þórs Oddssonar f.h. áhugafólks um strandblak og fjölbreytta iðkun almenningsíþrótta dags. 19.8. 2016 þar sem óskað er eftir strandblakaðstöðu við Suðurbæjarlaug. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 23.08.2016 var óskað eftir umsögn skipulagsfulltrúa og íþrótta- og tómstundanefndar.
Á fundi íþrótta- og tómstundanefnd þann 05.09.2016 var eftirfarandi bókað:”Íþrótta- og tómstundanefnd tekur jákvætt í erindið fyrir sitt leiti og telur þessar hugmyndir passi vel að starfsemi sundlaugarinnar.” Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.10.2016.
Borghildur Sturludóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu þessa erindis.
Skipulags- og byggingaráð tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa frá 28. september s.l.
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa frá 5. október s.l.