In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðsstjóri fundinn.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 7. september sl. vísaði eftirfarandi máli til skipulags- og byggingarráðs: Guðjón Steinar Garðarsson leggur inn fyrirspurn 29.08.2016 um breytingu á lóðamörkum á Hverfisgötu 4b og 6b.
Skipulags- og byggingaráð heimilar lóðarhöfum Hverfisgötu 4b og Hverfisgötu 6b að vinna að breytingu á gildandi deiliskipulag á sinn kostnað. Athygli umsækjanda er vakinn á minnisblaði umhverfis- og skipulagsþjónustu frá 6. sept. s.l.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 14. september sl. vísaði eftirfarandi erindi til skipulags- og byggingarráðs: Fyrir hönd eigenda leggur Sunna Dóra Sigurjónsdóttir arkitekt inn fyrirspurn vegna stækkunar á húsinu við Vesturvang 46. Stækkun er bakatil á húsi og fer yfir byggingarlínu. Óskað er eftir svari frá skipulags- og byggingarfulltrúa hvort hægt sé að fallast á stækkun eins og meðfylgjandi uppdráttur/skissa sýnir.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir mögulega stækkun hússins að uppfylltum skilyrðum 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.
Bæjarráð óskaði 19.05.2016 eftir umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu. Umsögn skipulagsfulltrúa var lögð fram á fundi bæjarráðs 2.06.2016. Á þeim fundi óskaði bæjarráð eftir umsögn fjölskylduráðs.
Fjölskylduráð tók málið fyrir á fundi sínum 20.06.2016: Fjölskylduráð gerði ekki athugasemdir.
Skipulags- og byggingarráð heimilar væntanlegum lóðarhafa að vinna deiliskipulagsbreytingu á sinn kostnað sem tekur mið af því að parhúsarlóðin breytist í þriggja íbúða raðhús.
Magný K Jónsdóttir og Reynir Sigurðsson sækja um stækkun á lóð sinni Vörðustíg 2 um ca 34 m2, sbr meðfl.litað mæliblað.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir umbeðna lóðarstækkun fyrir sitt leyti með vísan til minnisblaðs umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 21. sept. 2016 og leggur eftirfarandi til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir umbeðna lóðarstækkun í samræmi við fyrirliggjandi tillögu og nánari skilmála skipulags- og byggignarfulltrúa.”
Fyrirkomulag vinnufunda tekið til umfjöllunar.
Stefnt að aukafundi í næstu viku.
Hraunbraut ehf sækja 26.09.16 um að breyta húsi í gistiíbúðir samkvæmt teikningum Guðmundar Gunnlaugssoanr dags. 21.09.16.
Lagt fram, afgreiðslu frestað.
Hraunbraut ehf leggja 26.09.16 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir að fá að stækka byggignareit til suðurs á lóðinni.
Skipulagshöfundar mættu til fundarins og kynntu áframhaldandi vinnu og athuganir á breyttu deiliskipulagi 2. áfanga.
Til kynningar.
Gerð grein fyrir útreikningum vegna umferðarhávaða.
Til upplýsinga.
Lagðar fram hugmyndir að aðalskipulagsbreytingum m.t.t greinagerðar um þéttingu byggðar.
Lagt fram til umræðu.
Kynntar athuganir á byggingarmöguleikum við Hjallabraut og endurgerð við Suðurgötu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að unnið verði að deiliskipulagsbreytingum á Hjallabraut og Suðurgötu 44 í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir.
Á fundi hafnarstjórnar þann 30.09.2016 var eftirfarandi samþykkt: Hafnarstjórn samþykkir að skipaður verði 5 manna sameiginlegur starfshópur með skipulags- og byggingaráði til að vinna að nánari undirbúningi og útfærslu á samkeppnislýsingu með hliðsjón af nýlega samþykktri skipulagslýsingu af svæðinu. Í starfshópnum eigi sæti 2 fulltrúar Hafnarstjórnar og 3 frá skipulags- og byggingaráði. Með hópnum starfi hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi. Samþykkt að fulltrúar hafnarstjórnar verði Unnur Lára Bryde og Gylfi Ingvarsson. Lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 13.09.2016.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillögu hafnarstjórnar frá 30. sept. s.l. Samþykkt að fulltrúar skipulags- og byggingarráðs verði: Ólafur Ingi Tómasson Borghildur Sturludóttir Júlíus Andri Þórðarson
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti á fundi 8.7. s.l. tillögur að útfærslu og lagfæringum á gatnamótum Óseyrarbrautar og Fornubúða. Tillagan þarfnast óverulegrar deiliskipulagsbreytingar og grenndarkynningar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytinguna og að henni verði lokið í samræmi við 1. mgr. 44 gr. skipulagslaga 123/2010
Lögð fram umsókn Þorbjörns Inga Stefánssonar send í tölvupósti 13.9. s.l. varðandi stækkun á ofangreindri lóð og byggingu nýs hús. Lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags.23.9. s.l.
Skipulags- og byggingarráð synar erindinu með vísan í umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 23.09.2016.
Farið yfir rekstraráætlun og helstu verkefni.
Lagt fram erindi Meiriháttar ehf dags. 28.9. 2016 varðandi breytta skilgreiningu á ofangreindri lóð. Er skilgreind sem lóð fyrir veitubyggingu en yrði lóð fyrir iðnað eftir breytingu.
Skipulags- og byggingarráð beinir því til bréfritara að leggja inn til byggingarfulltrúa til samþykktar nýja aðaluppdrætti ásamt skráningu til að umbeðin breyting geti gengið fram.
Deiliskipulag lóðanna við Stapahraun 11-12 í Hafnarfirði
Með vísan í bréf Skipulagsstofnunar dags. 9.6.2106, greinagerð skipulagsfulltrúa dags. 27.6.2016 og deiliskipulagsuppdrátt NEXUS arkitekta samþykkir bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 14.7.2016 að auglýsa tillögu að deililskipulagi Stapahrauns 11 – 12 á ný með vísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í því að lóðirnar Stapahraun 11 og 12 verða sameinaðar og götustæði styttist. Nýtingarhlutfall hinnar sameinuðu lóðar verður 0.75. Tillagan var auglýst frá 20.07.2016-31.08.2016. Viðbótarfrestur var veittur til að koma á framfæri athugasemdum. Viðbótarfrestur rann út þann 27 sept s.l. Engar athugasemdir bárust. Tillagan hafði verið auglýst áður frá 28.12.2015-08.02.2016. Ein athugasemd barst þá.
Skipulags- og byggignarráð samþykkir umsögn skipulagsfulltrúa frá 4.3.2016, málsmeðferð vegna bréfs skipulagsstofnunar frá 9.6.2016 og leggur eftirfarandi til við bæjarsjtórn: ‘Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyriliggjandi tillögu og að henni verði lokið skv. 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.’
Gunnar Hjaltalín, Sævangi 44, Hafnarfirði, óskaði eftir að deiluskipulagi er varðar lóðina Hellubraut 7, yrði breytt og heimild veitt til þess að rífa núverandi hús og byggja nýtt í staðinn. Skipulags- og byggingarráð samþykkti að auglýsa framlagða deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Jafnframt samþykkti skipulags- og byggingarráð að næsta nágrenni yrði kynnt skipulagstillagan sérstaklega með bréfi. Auglýsingatími er liðinn.
Með bréfi dags. 14.07.2016 óskuðu eigendur Hamarsbrautar 8 eftir fresti til að skila inn athugasemdum til 16.09. n.k. Orðið var við þeirri beiðni. Athugasemdir bárust frá fimm aðliggjandi húsum við Hellu- og Hamarsbraut með bréfi dags. 23.09.2016..
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að vinna umsögn um athugasemdirnar.
Lagt fram erindi Kristins Ragnarssonar dags. 29.9.2016 þar sem hann f.h. lóðarhafa sækir um að breytta lögun og stærð byggingarreits á ofangreindri lóð.
Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Með umsókn dags. 28.09.2016, óskar Breiðhella ehf eftir að sameina lóðirnar Breiðhella 18 og Breiðhella 20, breyta byggingarreit og innkeyrslu á hina sameinuðu lóð. Lagður fram uppdráttur Batterísins dags. 31.08.2016.
Skipulags- og byggingarráð heimilar lóðarhafa að vinna deiliskipulagsbreytingu á sinn kostnað.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggignarfulltrúa frá 21. september s.l.
Lagt fram til kynningar.