Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

14. September 2016 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 630

Attended

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi
  • Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður

Secretary

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1609061 – Skipalón 1, íbúð 506, breyting

      Jón Helgi Þórarinsson sækir með bréfi dags. 31.8.2016 um leyfi til að setja handrið og vestursvalagólf og opna úr stofu út svalir.

      Þormóður Sveinsson vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010

    • 1608241 – Hvaleyrarbraut 12 byggingarleyfi

      Tekið fyrir að nýju.
      Sýningarljós sækir 15.08.16 um leyfi til að byggja iðnaðar-þjónustu og lagerhúsnæði samk,m.f.teikningum Gísla G. Gunnarsonar. dags. 15.08.16
      Nýjar teikningar bárust 24.08.2016.Nýjar teikningar bárust 05.09.16.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010

    • 1608719 – Hverfisgata 52b,byggingarleyfi

      Óli Örn Eiríksson sækir 24.8. 2016 um stækkun á bílskúr, lengingu á norðurkvisti, nýja kvisti á suðurhlið og breytingu á innra fyrirkomulagi skv. teikningum Albínu Thordarson dags. 18.8.2016.

      Afgreiðslu frestað, gögn send Minjastofnun til umfjöllunnar

    • 1607274 – Suðurhella 5, umsókn um byggingarleyfi

      Stálnaust ehf sækir 18.07.2016 um byggingarleyfi á Suðurhellu 5 samkvæmt teikningum Hauks Ásgeirssonar dags. 01.03.2015.Nýjar teikningar bárust 02.09.16.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010

    • 1609256 – Vesturvangur 46 stækkun

      Fyrir hönd eigenda leggur Sunna Dóra Sigurjónsdóttir arkitekt inn fyrirspurn vegna stækkunar á húsinu við Vesturvang 46. Stækkun er bakatil á húsi og fer yfir byggingarlínu. Óskað er eftir svari frá skipulags- og byggingarfulltrúa hvort hægt sé að fallast á stækkun eins og meðfylgjandi uppdráttur/skissa sýnir.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs til umfjöllunnar

    • 1608814 – Álfaskeið 16, breyting,viðbygging

      Tekið fyrir að nýju.
      Gísli Jónsson sækir um leyfi 30.08.2016 á áður samþykktum teikningum á viðbyggingu, breyting úr sólstofu í gróðurhús.

      Hildur Bjarnadóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010

    • 1609063 – Kaplahraun 8, fyrirspurn

      Lögð fram fyrirspurn Traust fasteignafélag ehf dags. 1.9.2016 um hvort megi vera með viðbyggingu við húsið sem er þegar gerð og er notuð sem sprautuklefi fyrir bíla

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltúra tekur neikvætt í erindið. Ekki er til gildandi deiliskipulag sem heimilar viðbyggingu af þessu tagi.

    • 1604549 – Efstahlíð 6, breyting

      Baldur Fannar Andrésson sækir 28.4.2016 um breytingu á gluggum og óuppfylltu rými til notkunar, samkvæmt teikningum Páls Gunnlaugssonar dags. apríl 2016.
      Nýjar teikningar bárust 12.09.16

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010

    • 1606392 – Flatahraun 29, dagsektir, ólögleg búseta

      Dagsektir vegna ólöglegrar búsetu á efri hæð hússins teknar til umfjöllunr að nýju.
      Eiganda var sent bréf 27.05.2016 vegna þessa og ekki hefur verið brugðist við því.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda, sem er H.F.G. ehf. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1609324 – Hringhella 8, dagsektir vegna lausamuna á lóð

      Dagsektir vegna lausamuna sem eru á lóð teknar til umfjöllunr að nýju.
      Eiganda var sent bréf þessa efnis 25.07.2016 og ekki hefur verið brugðist við því

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1609325 – Kaplahraun 22, dagsektir vegna gáms sem búið er að tengja við hús

      Dagsektir vegna gáms sem búið er að tengja við húsið teknar til umfjöllunar að nýju.
      Eigenda var sent bréf þess efnis 10.08.2016 og ekki var brugðist við því.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1609327 – Kaplahraun 10, dagsektir vegna gáms sem búið er að tengja við hús.

      Dagsektir vegna gáms sem búið er að tengja við húsið teknar til umfjöllunar að nýju.
      Eigenda var sent bréf þess efnis 10.08.2016 og ekki var brugðist við því.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1609326 – Kaplahraun 18, dagsektir vegna gáms sem búið er að tengja við húsið

      Dagsektir vegna gáms sem búið er að tengja við húsið teknar til umfjöllunar að nýju.
      Eigenda var sent bréf þess efnis 10.08.2016 og ekki var brugðist við því.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1609328 – Drangahraun 7, dagsektir vegna lausamuna sem eru út fyrir lóðarmörk

      Lausamunir, bílar og fleira hefur verið sett út fyrir lóðarmörk og athafnarsvæði stækkað út fyrir lóðarmörk.
      Eiganda sent bréf 26.07.2016 vegna þessa og ekki hefur verið brugðist við því.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1609334 – Norðurbraut 39, dagsektir, engar úttektir farið fram

      Sótt var um að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhhúsnæði sem var samþykk. Engar úttektir hafa farið fram og engar verkteikningar borist.
      Eiganda var sent bréf þess efnis og hefur ekki brugðist við.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda 0103. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1609084 – Dalshraun 9, fyrirspurn, viðbygging

      IsoTec ehf sendir inn fyrirspurn dags. 2. september 2016 um heimild til að byggja 125 fm viðbyggingu við núverandi hús, við norður enda hússins bil 010101.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur neikvætt í erindið m.t.t framlagðara gagna og vísan til samþykktrar deiliskipulagsbreytingar frá 2012.

    • 1609211 – Hvaleyrarbraut 41, fyrirspurn til skipulags- og byggingafulltrúa

      Elite Seafood Iceland ehf leggur inn fyrirspurn dags. 09.09.16 varðandi starfsmannaaðstöðu,skrifstofu, nýtt rafmagn og vatnslagnir.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur jákvætt í erindið að uppfylltum skilyrðum reglugerða.

    • 1609257 – Undirhlíðanáma, breyting á deiliskipulagi vegna Sandskeiðslínu 1.

      Efla verkfræðistofa í umboði Landsnets óskar eftir að breyta deiliskipulagi í Undirhlíðanámu vegna raflína skv. meðfylgjandi gögnum. Matslýsing liggur fyrir skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu í skipulags- og byggingarráð.

Suggestion portal