In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðstjóri fundinn.
Á afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa þann 13.7.2016, sótti Skák ehf. um að breyta verslunar-/veitingarými á 1. hæð í hótelíbúðir samkvæmt uppdráttum Arkþings dags. Erindinu var vísað til skipulags- og byggingarráðs. Jafnframt lagt fram bréf Edvards Björgvinssonar dags. 09.03.2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22.08.2016.
Lagt fram.
Með bréfi dags. 04.07.2016 óska Lausnir Lögmannsstofa f.h. eiganda Skógaráss 6 eftir að skilmálar hverfisins verði teknir til endurskoðunar m.t.t hæðarafsettningu húsa og hæðir þeirra.
Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu.
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 22.6.2016 var tekið fyrir á ný erindi Birkis Marteinssonar og Höllu S. Sigurðardóttur dags. 04.05.16 um að reisa hæð ofan á steinsteypt hús samkvæmt teikningum Olgu Sigfúsdóttur dags.29.04.2016. Samþykkt var að grenndarkynna erindið 11.5. sl. Grenndarkynningu er lokið og barst ein athugasemd. Erindinu var vísað til skipulags- og byggingarráðs. Ennfremur lögð fram andmæli eigenda Garðavegs 16 dags. 15.06.2016 og athugun á skuggavarpi dags. 14.07.2016, sem unnið var af eyLAND arkitektum.
Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22.08.2016.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn skipulagsfulltrúa og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyririliggjandi breytingu skv. 1. mgr. 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.”
Á fundi bæjarráðs þann 11.08.2016 var lagt fram erindi Svavars Þorsteinssonar dags. 18.07.2016, um svæði fyrir bílasölu á stæðum við Tjarnarvelli (Miðsvæði Valla. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar skipulags- og byggingarráðs. Lögð fram umsögn skipðulagsfulltrúa dags. 17.08.2016.
Skipulag- og byggingarráð tekur neitkvætt í erindið og tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa.
Tekin fyrir á ný fyrirspurn Taber ehf, dags. 1.6. 2016 um breytingu á skipulagi ofangreindrar lóðar svo koma megi fyrir um 56-60 stúdentaíbúðum. Ennfremur lagt fram bréf ADVEL lögmanna f.h. eiganda Mávahrauns 13 dags. 26.07.2016, þar sem fyrirhuguðum hugmyndum er mótmælt.
Lagt fram. Skipulags- og byggingarráð óskar eftir umsögn Tækniskólans um fyrirliggjandi fyrirspurn og jafnfram hugsanlega framtíðaráform skólans á lóðinni. Skipulagsfulltrúa er jafnframt falið að svara bréfi lögmanns lóðarhafa á Mávahrauni 13.
Vilhjámur Hilmarsson mætti á fundinn og kynnti hvað felst í verkefninu, hvers má vænta af niðurstöðum þess og í hverju tímaáætlunin felst.
Til upplýsinga.
Lagt fram bréf Jóns R. Halldórssonar f.h. Fornubúða eignarhaldsfélags ehf. dags. 16.08.2016 varðandi byggingaáform að Fornubúðum 5. Ennfremur lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags 22.08.2016.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í hugmyndir sem settar eru fram í bréfi Jóns Rúnars Halldórssonar, dags. 16. ágúst 2016, um uppbyggingu við Fornubúðir 5.
Jónas Þór Oddsson f.h. áhugafólks um strandblak og fjölbreytta iðkun almenningsíþrótta óskar með bréfi dags. 19.8. 2016 eftir strandblakaðstöðu við Suðurbæjarlaug.
Borghildur Sturludóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu þessa máls.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir umsögn skipulagsfulltrúa og íþrótta- og tómstundanefndar.
Tekin til umræðu samþykkt lýsing að breyttri notkun og skipulagi hafnarsvæðisins.
Til umfjöllun og skipulags- og byggingarráð vísar lýsingunni til frekari umfjöllunar í hafnarstjórn.
Á fundi bæjarráðs þann 11.08.2016 var eftirfarandi vísað til skipulags- og byggingarráðs: “Bæjarráð vísar málinu (Lækjargata 2, framtíðarnýting) til skipulags- og byggingarráðs og óskar eftir tillögum frá ráðinu varðandi Lækjargötu 2 í samræmi við deiliskipulagsforsögn sem samþykkt var í bæjarstjórn 17. febrúar 2016.”
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að leggja fram tillögu að málsferð á næsta fundi.
Hreinsunarátak í bænum tekið til umfjöllunar á ný. Byggingarfulltrúi gerði grein fyrir undirbúningi að átakinu. Átakið verður með sama sniði og áður og stendur yfir 15. – 30. september nk.
Hafnarfjarðarbær ákvað að innheimta stöðugjöld á gámum samkvæmt 2.6.1. gr byggingingarreglugerðar nr.112/2012 og reglum um stöðuleyfi sem samþykktar voru i bæjarstjórn Hafnarfjarðar 20. janúar 2016. Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi gerði grein fyrir stöðu verkefnisins.
Tekin til umræðu tillaga að hugmynda/vinnufundum skipulags- og byggingarráðs.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 9. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.