In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sat Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi fundinn.
Með vísan til bréfs Skipulagsstofnunar dags. 20. maí 2016 og lagfærðra aðalskipulagsgagna dags. 30. maí 2016 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 08.06.s.l.,að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga. Í breytingunni felst að hluti af svæði S33 samfélagsþjónusta austan Hádegisskarðs milli Hraunskarðs og Apalskarðs breytist í íbúðarbyggð.
Jafnframt samþykkti bæjarstjórn að vinna og auglýsa samhliða skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar, sem samþykkt var 10. júní 2013. Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Ásvallabraut, Stuðlaskarði, Hraunskarði, Hádegisskarði og opnu svæði sem merkt er HVa9 á gildandi aðalskipulagsuppdrætti. Tillaga að breyttu aðalskipulagi var auglýst frá 14. júní til 2. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breyttan aðalskipulagsuppdrátt af svæði S33 samfélagsþjónusta austan Hádegisskarðs milli Hraunskarðs og Apalskarðs, sem breytist í íbúðarbyggð”.
Með vísan til bréfs Skipulagsstofnunar dags. 20. maí 2016 og deiliskipulagsgagna dags. 25. jan. 2016/19.02.2016 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 08.06.s.l.,að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var 10. júní 2013 skv. 41.gr. skipulagslaga Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Ásvallabraut, Stuðlaskarði, Hraunskarði, Hádegisskarði og opnu svæði sem merkt er HVa9 á gildandi aðalskipulagsuppdrætti. Tillaga að breyttu deiliskipulagi var auglýst frá 14. júní til 2. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breyttan deiliskipulagsuppdrátt af svæði sem afmarkast af Ásvallabraut, Stuðlaskarði, Hraunskarði, Hádegisskarði og opnu svæði sem merkt er HVa9 á gildandi aðalskipulagsuppdrætti dags. 25.01.2016/19.02.2016”.
Á fundi skipulag- og byggingarráðs þann 03.05.2016 var samþykkt að vinna að gerð deiliskipulagsbreytingar að legu Ásvallabrautar samkv. tillögu C. Lagður fram deiliskipulagsuppdráttur dags. 08.08.2016 að framtíðarlegu Ásvallabrautar samkvæmt tillögu C.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirhugaða legu Ásvallarbrautar eins og uppdrættir VSB verkfræðistofunar mótt. 08.08.2016 gera ráð fyrir, jafnframt samþykkir skipulags- og byggingarráð að breytt deiliskipulag af fyrirhugaðri legu Ásvallabrautar verði auglýst í samræmi við 42. gr. laga nr. 123/2010.
Lögð fram breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna breytinga á vatnsverndarmörkum til samræmis við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leiti breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 fyrir breytingu á mörkum vatnsverndar í landi Hafnarfjarðar, og hún auglýst í samræmi við 31.gr. laga 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 fyrir breytingu á mörkum vatnsverndar í landi Hafnarfjarðar, og hún auglýst í samræmi við 31.gr. laga 123/2010.
Vegatenging um Grísanes tekin til umfjöllunar.
Lagt fram
Tekið til umræðu.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir bréf sem sent var á Steypustöðina varðandi ólöglegt skilti við Reykjanesbrautina.
Deiliskipulagsforsögn sem samþykkti var í skipulags- og byggingarráði í desember 2013 tekin til umfjöllunar.Hugmyndir um uppbyggingu á lóðinni teknar til umræðu.
Hreinsunarátak í bænum tekið til umfjöllunar. Byggingarfulltrúi kynnir undirbúning að átaki sem hefst í sept. nk.
Hreinsunarátakið mun hefjast um miðjan september, verður gert í samstarfi við Markaðsstofu Hafnarfjarðar.
Kynning á “Verndarsvæði í byggð, Vesturbær”. Umsókn um styrk.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og umhverfisþjónustu að ganga frá umsókn til Minjastofnunar Íslands um verndarsvæði í byggð.
Á fundi Skipulags- og byggingarráðs þann 2. júni 2015 var eftirfarandi erindi á dagskrá: Geymslusvæðið sækir hér með um leyfi til að taka á móti jarðvegsefnum til endurvinnslu. Einnig eru hugmyndir uppi um að taka á móti mold, fleyggrjóti, og grús, efni þetta er hugsað til að taka lóðir okkar í hæðir. Skipulags- og byggingarráð óskaði frekari upplýsinga um umhverfisáhrif vinnslunnar og mengunarvarnir. Lagt fram svar Ástvaldar Óskarssonar f.h. Geymslusvæðisins dags. 18.05.15.
Niðurstaða fundar; Skipulags- og byggingarráð telur upplýsingarnar ekki fullnægjandi og ítrekar fyrri bókun. Að fenginni ábendingu og eftir skoðun á staðnum kom í ljós að framkvæmdir við losun voru hafnar án tilskyldra leyfa. Með bréfi dags. 03.08.2016 var lóðarhafa gert skylt að stöðva framkvæmdir.
Skipulags- og byggingarráð vísar eftirfarandi í bæjarráð: Með vísan til 53. gr. laga 123/2010 staðfestir sveitarstjórn stöðvun þessara framkvæmda.
Skipulag- og byggingarráð ítrekar bókun sína frá 5. mai 2015 Jafnframt tekur ráðið undir það sem kemur fram í bréfi skipulagsfulltrúa. Skipulags- og byggingarráð beinir því til umhverfis- og skipulagsþjónustu að losun malbiksúrgangs á þessu svæði verði kærð til lögreglu og Umhverfisstofnunar.
Með bréfi dags. 20.06.2016 kærir Lögmannsstofan Lausnir f.h. Hönnu B. Ragnarsdóttur og Elsu I Hansen, samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá 03.02.2016 á breyttu deilskipulagi Miðhverfis Setbergs vegna lóðrarinnar Stekkarberg 9. Lögð fram greinagerð skipulagsfulltrúa dags. 08.08.2016.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 08.08.2016.
Batteríið Arkitektar leggja fram fyrirspurn f.h. Jóhönnu Helgadóttur (kt.220677-4159), um að breyta deiliskipulagi lóðanna Breiðhella 18 og Breiðhella 20. Breytingin felst í því að sameina lóðirnar, breyta byggingarreit og innkeyrslu samanber tillögu uppdrátt dags. 02.08.2016.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar heimilar lóðarhafa að vinna deiliskipulagsbreytingu á lóðunum Breiðhella 18 og 20, í samræmi við framlagða fyrirspurn Batterísins dags. 02.08.2016.
Framhald umræðu varðandi nýtingu óbyggðra lóða/endurnýtingu lóða í eldri hverfum. Verndarsvæði í byggð, umsókn um styrk. Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt kynnir.
Gunnþóra Guðmundsdóttir kynnti stöðuna.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sækir 11.07.16 um að byggja geymsluhús úr einagruðum samlokueiningum, sökklar og botnplata eru staðsteypt samkvæmt teikningum Sigurðar Þorðrvarðarsonar dags. 20.10.2015. Erindið var grenndarkynnt 17.05-18.06.2016. Athugasemdir bárust. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 13.7. s.l. var erindinu vísað til ráðsins m.t.t. athugasemda.
Ekki er tekið undir þær athugasemdir sem fram koma í bréfum eigenda Skútahrauns 4, dags. 01.06.2016 og 10.06.2016. Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkir uppdrætti Sigurðar Þorvarðarsonar dags. 20.10.2015, með vísan til 1. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að uppbyggingu á lóðinni Skútahraun 6 samkvæmt uppdrætti Sigurðar Þorvarðarsonar dags. 20.10.2015, með vísan til 1. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010.”.
Lagt fram til kynningar.