In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri og Kristján Sturluson sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Páll Magnússon bæjarritari í Kópavogi mætti til fundarins.
Bæjarstjóra falið að skoða málið frekar.
Lagt fram erindi frá GYM heilsa dags. 20.jan. sl. vegna rekstur heilsuræktar í Ásvallaug
Lagt fram.
Gatnagerðargjöld vegna atvinnulóða.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: ” Bæjarstjórn samþykkir að 4. grein samþykktar um gatnagerðargjald í Hafnarfjarðarkaupstað nr. 955/2007 ásamt áorðnum breytingum verði breytt þannig:
Stafliður c verði: Atvinnuhúsnæði 9% Stafliður d verði: Gripahús 15% Fyrri stafliður d verði stafliður e
Lokamálsgrein 4. greinar fellur út.
Tekið fyrir að nýju
Bæjarráð bendir á að samningur Hafnarfjarðarbæjar við Gaflaraleikhúsið með viðauka um Leikfélag Hafnarfjarðar rennur út í árslok 2016.
Stærsta ráðstefna Evrópusamtaka sveitarfélaga, CEMR, haldin á Kýpur 20.-22.apríl 2016
2.liður úr fundargerð hafnarstjórnar frá 10.des.sl. Bæjarstjórn vísaði liðnum til bæjarráðs á fundi sínum þ. 20.jan. sl.
Ósk umsækjanda um lækkun gatnagerðargjalda í samræmi við samþykkt umboð bæjarráðs frá bæjarstjórn 16. október 2015 er vísað til bæjarráðs til afgreiðslu, samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:”Bæjarstjórn samþykkir að gatnagerðargjald verði lækkað í samræmi við samþykkt umboð bæjarráðs frá bæjarstjórn 16. október 2015.”
Lögð fram skýrsla með niðurstöðum Hafnarfjarðar í könnun á þjónustu sveitarfélaga. Jóna Karen Sverrisdóttir hjá Gallup og Árdís Ármannsdóttir samskiptastjóri mættu til fundarins.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Bæjarfulltrúar Samfylkingar og VG harma þær niðurstöður sem fram koma í skýrslunni. Í ljósi stefnu nýs meirihluta í leik- og grunnskólamálum og gamaldags viðhorfa meirihlutaflokkanna til þjónustu við barnafólk og eldri borgara ættu þessar niðurstöður hins vegar ekki að koma neinum á óvart.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar leggja fram svohljóðandi bókun: Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup ber að taka alvarlega. Undanfarið ár hefur bæjarstjórn fjallað mjög opinskátt um stöðu bæjarins, samanburð þjónustu við önnur sveitarfélög og hvar þurfi að bæta úr. Meðal þess sem fram hefur komið er að Hafnarfjörður hefur verið dýr bær fyrir barnafjölskyldur hvað þjónustu varðar og núverandi meirihluti hefur þegar hafist handa við að bæta úr því. Ber þar fyrst að nefna raunlækkun leikskólagjalda tvö ár í röð, auknar niðurgreiðslur með þjónustu dagforeldra og lækkaðan inntökualdur barna á leikskóla, sem er markvisst beint að þessum hópi. Mikilvægt er að halda áfram á þessari braut, bæta þjónustuna og lækka gjöldin. Bókun minnihlutans er ekki svara verð.
Gísli Þ. Magnússon og Ársæll Guðmundsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu mættu til fundarins.
Fundur með heilbrigðisráðherra 10. des. 2015.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænna legga fram svohljóðandi bókun: Bæjarfulltrúar Samfylkingar og VG gera alvarlega athugasemd við það að bréf frá ráðherra dags. 30. nóvember sl. hafi ekki ekki verið lagt fram til kynningar í bæjarráði og ekki tekið til efnislegrar umræðu í fjölskylduráði sem er þó það fagráð sem um málið ætti að fjalla. Gerum við einnig athugasemd við það að bæjarstjóri hafi ekki upplýst bæjarráð um fund sem haldinn var 10. desember sl. í velferðarráðuneytinu og tveir bæjarfulltrúar meirihlutans sátu ásamt bæjarstjóra. Þessi vinnubrögð koma í veg fyrir eðlilegt upplýsingastreymi og samráð, bæði gagnvart bæjarstjórn og bæjarbúum. Þau ganga þvert gegn því markmiði að auka gegnsæi í ákvörðanartöku.
Bæjarstjóri óskar að eftirfarandi verði fært til bókar vegna bókunar minnihlutans um fund bæjarstjóra með heilbrigðisráðherra:
Bæjarstjórn hefur skipað verkefnastjórn um byggingu hjúkrunarheimilis við Sólvang. Á næsta fundi verkefnastjórnarinnar, sem haldinn var eftir fund bæjarstjóra með ráðherra, mætti bæjarstjóri og gerði verkefnastjórninni grein fyrir umræddu bréfi og fundi með ráðherra. Sú fundargerð fór síðan fyrir fjölskylduráð.
Bæjarstjóra falið að veita umsögn um frumvarpið.
Lögð fram vefumsókn Jóns Atla Magnússonar um lóð í Sléttuhlíð
Bæjarráð hafnar erindinu og vísar til umsagnar skipulags- og byggingaráðs varðandi framtíðarnotkun á svæðinu frá 21. október 2015.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 25.janúar sl.
Lögð fram fundargerð menningar-og ferðamálanefndar frá 22.jan.sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 22.jan.sl.
Lögð fram til fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 8.jan.sl.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SSH frá 13.apríl,11.maí, 1.júní,8.júní, 24.ágúst, 7.sept. og 7.desember sl.