In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Hrönn Bergþórsdóttir, áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla, Þórey Ósk Sæmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Jónína Rósa Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Hulda Þórarinsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla, Hrafnhildur Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskóla, Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Lagt fram minnisblað vegna framlags Hafnarfjarðarbæjar til frístundaheimilis Hjalla. Til afgreiðslu.
Afgreiðslu frestað.
Fulltrúi Vinstri grænna lagði fram eftirfarandi bókun;
“Ég geri alvarlegar athugasemdir við það að í bréfi Samtaka sjálfstæðra skóla til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar þann 17. okt sl. kemur það fram að Hafnarfjörður hafi nú þegar viðurkennt greiðsluskyldu til sjálfstætt starfandi frístundaheimila og fyrir liggi staðfesting á því. Þar segir m.a. „Að gefnu tilefni vekja SSSK sérstaka athygli á að fyrir liggur að Garðabær og Hafnarfjörður hafa nú þegar viðurkennt umrædda greiðsluskyldu og samþykkt að greiða sérstök framlög til sjálfstætt starfandi grunnskóla vegna reksturs þeirra á frístundaheimilum í þeim sveitarfélögum. Því liggur fyrir staðfesting þessara aðila á bæta beri sjálfstætt starfandi grunnskólum þann kostnað sem til fellur í rekstri þeirra vegna reksturs á frístundaheimilum í kjölfar áðurnefndra lagabreytinga“. Undir þetta bréf f.h. stjórnar SSSK ritar formaðurinn Kristján Ómar Björnsson sem einnig er heilsustjóri Grunnskólans Nú í Hafnarfirði. Varaformaður stjórnar er Þórdís Jóna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf. Ég óska eftir því að umrætt bréf verði lagt undir málið. Ég tel að öllum aðilum ætti að hafa verið ljóst, eftir að málinu var frestað í tvígang, að ekki ríkti pólitískur einhugur um málið. Auk þess höfðu komið fram greinargerðir hjá bæði Sambandinu og Ráðuneytinu þar sem það kemur skýrt fram að sjálfstætt reknir grunnskólar öðlast ekki sjálfkrafa kröfu á hendur sveitarfélagi um aukin framlög til þess að veita frístundaþjónustu. Það lá því fyrir snemma að ef að auka ætti framlög til sjálfstætt starfandi Grunnskóla hér í bæ, þá yrði það alltaf á endanum pólitísk ákvörðun. Ég fer fram á að formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar skýri það hvernig það komi til að liggi fyrir staðfesting á því að Hafnarfjarðarbær hafi nú þegar samþykkt að greiða sérstök framlög til sjálfstætt starfandi grunnskóla vegna reksturs þeirra á frístundaheimilum í bænum.”
Fundarhlé kl. 13:40 Fundi framhaldið kl. 14:05
Formaður fræðsluráðs bókar eftirfarandi:
Fullyrðingar sem koma fram í bréfi stjórnar sjálfstætt rekinna skóla til Reykjavíkurborgar koma á óvart. Ekki liggur fyrir samþykkt um málið hjá Hafnarfjarðarbæ og eru fullyrðingarnar ekki komnar frá bæjaryfirvöldum. Dylgjum um annað sem koma fram í bókun fulltrúa VG er vísað til föðurhúsanna og harmar undirrituð slíkan málflutning.
Sviðsstjóri kynnti tímasetta umbótaáætlun þar sem miðað er við að umbótaverkefni snúist um það sem hægt er að gera innan hvers skóla í samstarfi kennara og skólastjórnendur og áherslur í fjárhagsáætlun 2018 til úrbóta í grunnskólum út frá skýrslu starfshópsins frá 1. júní 2017
Fræðsluráð þakkar sviðsstjóra og öðrum sem unnið hafa að þessari metnaðarfullu umbótaáætlun. Hér er um að ræða mikilvægt skref og frumkvæði af hálfu Hafnarfjarðarbæjar í að bæta starfsaðstæður kennara í grunnskólum bæjarins eins og skilgreint var í bókun með kjarasamningi þeirra.
Lagt fram bréf dags. 30. október 2017 frá skólastjórum grunnskóla Hafnarfjarðar.
Sviðsstjóra falið að taka saman svar við bréfi skólastjóra.
Fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu, ásamt greinargerð og skýrslu umhverfis- og skipulagsþjónustu með samantekt yfir viðhaldsþörf fyrir íþróttamannvirki, leik- og grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar lögð fram til kynningar.
Guðmundur Sverrisson sérfræðingur á fjármálasviði fór yfir fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu fyrir árið 2018.
Íþrótta – og tómstundafulltrúi kynnti verkefnið Heilsueflandi samfélag á árinu 2017 og áætluð verkefni á næstu misserum.
Lögð fram fundargerð 258. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.