In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Úlfhildur Helga Guðbjartsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Valdimar Víðisson, áheyrnarfulltrúi skólastjórnenda grunnskóla, Inga Fríða Tryggvadóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Kristbjörg Helgadóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla, Sigríður Ólafsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskóla, Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Kynnt drög að rýmisáætlun leikskóla.
Fræðslustjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fram frekari upplýsingar á næsta fundi ráðsins.
Lögð fram fundargerð 248. fundar ÍTH.
Hörður Svavarsson úr Bjartri framtíð óskar bókað. Ég geri alvarlegar athugasemdir við niðurstöðu ÍTH í máli nr. 1 á 248. fundi ÍTH
Víðast hvar eru róluvellir aflagðir, enda barn síns tíma. Það hefur þó komið fram hér að í einu nágrannasveitarfélagi eru starfræktur róló í tvisvar sinnum tvo tíma á dag. Ég hef kynnt mér hvernig staðið er að starfsemi róluvallarins þar og hef því upplýsingar um að þar vinna fjórar fullorðnar manneskjur á vellinum, barnafjöldi þar er líka mjög takmarkaður.
Ég treysti mér ekki til að standa undir þeirri ábyrgð sem felst í því að reka róluvöll í Hafnarf. með því fyrirkomulagi sem kynnt hefur verið á fundinum og er fyrirhugað. Ég kann því illa að börn úr vinnuskólanum séu sett í þá stöðu að eiga að bera ábyrgð á öðrum börnum og efa að það standist lagalega skoðun.
Kynning á Erasmus styrkjum til endurmenntunar grunnskólastarfsmanna skólaárið 2017-2018 í Hafnarfirði og í samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Lagt fram og kynnt.
Kynntar bráðabirgðaniðurstöður úr samræmdum könnunarprófum í 9. og 10. bekk vorið 2017.
Tilnefningar til viðurkenningar fræðsluráðs 2017 lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Nöfn umsækjenda um starf leikskólastjóra Víðivalla lögð fram til kynningar.
Hulda Snæberg Hauksdóttir, leikskólastjóri Linda Hrönn Þórisdóttir, leikskólastjóri Kristin V Ellertsdottir Sverrir Jörstad Sverrisson, aðstoðarleikskólastjóri
Hörður Svavarsson úr Bjartri framtíð óskar eftir að bóka eftirfarandi: Ég geri athugasemd við að auglýsing eftir skólastjóra við Víðivelli er ekki í samræmi við nýja jafnréttisstefnu bæjarins. Í stefnunni segir að þegar auglýst eru störf þar sem hallar á annað kynið skuli vekja athygli á því markmiði jafnréttisstefnunar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreinar sbr. 26. gr. jafnréttislaga. Í auglýsingu bæjarins um skólastjórastöðu á Víðivöllum segir að samkvæmt stefnu bæjarins séu karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið, en það er ekki í samræmi við jafnréttisstefnuna og jafnvel þvert á móti.
Vinna við Remidu, skapandi efnisveitu kynnt.
Fræðsluráð hvetur til þess að þróunarfulltrúi leikskóla haldi áfram að vinna að því að skapandi efnisveita verði sett á laggirnar og starfrækt í Hafnarfirði, í samstarfi ýmissa aðila í hafnfirsku samfélagi. Markmið efnisveitunnar er að fá samfélagið til að taka þátt og hafa áhrif á umhverfið ásamt því að huga að bættri umgengni við náttúruna, minnka sóun og stuðla að endurnotkun.
Lögð fram fundargerð starfshóps um frístundaakstur frá 12. maí sl.