Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

5. April 2017 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 655

Attended

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi
  • Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður

Secretary

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1703482 – Skipalón 1, glerskáli, íbúð 0506

      Sólveig S. Einarsdóttir og Jón Helgi Þórarinsson sækja 28.03.2017 um að reisa glerskála í lokunarflokki B á þakverönd við íbúð 0506 í Skipalóni 1 samkvæmt teikningum Sigurlaugar Sigurjónsdóttur dags. 16.10.2012. Teikningar stimplaðar með stimpli Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins.

      Þormóður Sveinsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu þessa erindis.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 1703525 – Birkihlíð 6, svalalokun, íbúð 301

      Jón Ingimundarsson sækir 29.03.2017 um svalalokun samkvæmt teikningum Sigurðar Hafssteinsonar dags 20.12.2016. Umsókninni fylgir samþykki íbúa í Birkihlíð 6.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 1502505 – Kvistavellir 13, breyting á texta

      Tekið fyrir að nýju erindi Fannars Más Sveinssonar dags. 27.2.2015 um breytingu á texta á áður samþykktum teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 1703471 – Dalshraun 6, breytingar inni og úti, matshluti 01

      Trönur ehf sækir 28.03.2017 um breytingu á innraskipulagi, klæða og einangra húsið að utan og breyta gluggum á austurhlíð samkvæmt teikningum Sigurðar Hafsteinssonar dags. 17.03.2017.

      Afgreiðslu frestað, gera þarf grein fyrir breytingum á teikningum.

    • 1612350 – Þrastarás 39, breyting

      Jón Einarsson sækir 23.12.16 um svalalokun sem fellst í framlengingu á kvisti þannig að svalir falli undir þak. Samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar dag.20.12.16.
      Teikningar bárust í einriti. Nýjar teikningar bárust 4.4.2017.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 1703575 – Daggarvellir 4, sorpgerði

      Húsfélag Daggarvellir 4a og b sækir 31.03.2017 um leyfi til að loka sorpgerði samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar dags. 29.09.2003.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    B-hluti skipulagserindi

    • 1703252 – Fjarðargata 9a (Pylsubarinn), ruslagámur, lóð

      Manning ehf óskar með bréfi dags. 14.3.2017 eftir lóðarstækkun fyrir sorpgám eða heimild til að staðsetja hann utan lóðar.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.

    • 1704042 – Krýsuvík, matarvagn við Seltún.

      Júlíus Grettir Margrétarson óskar eftir í tölvupósti dags. 30. mars sl. að fá leyfi til að staðsetja matarvagn við Seltún.

      Afgreisðlusfundur skipulags- og byggingarfulltrúar vísar erindu til skipulags- og byggingarráðs.

    • 1507054 – Krýsuvík, stæði fyrir súpubíl

      Jónína Gunnarsdóttir sækir um leyfi fyrir matarbíl í Seltúni frá 15. maí – 15. september 2017. Opnunartíminn er 10-18 og er bílinn keyrður í burtu eftir að sölu líkur á daginn.
      Umsækjandi var með leyfi síðasta sumar á þessum stað.

      Skipulags- og byggingarfulltrúar vísa erindinu til skipulags- og byggingarráðs.

    • 1704019 – Ljósleiðaravæðing, ósk um kaffiskúra á bæjarlandi

      Steingarður ehf sækir með töpvupósti dags. 4.4.2017 um leyfi til að setja upp kaffiskúra og lagerhald vegna vinnu við að setja ljósleiðara í Hafnarfirði á vegum Gagnaveitu Rv., verklok er áæltuð í lok nóv 2017, staðsetning er við Lækjarskóla og við Erluhraun á bæjarlandi.

      Skipulagsfulltrúi samþykkir að sett verður upp vinnuaðstaða fyrir starfsmenn á þessum tveim stöðum til lok nóvember 2017

Suggestion portal