Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Skipulags- og byggingarráð

21. March 2017 08:15

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 618

Attended

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Borghildur Sölvey Sturludóttir varaformaður
  • Eva Lín Vilhjálmsdóttir aðalmaður
  • Pétur Óskarsson aðalmaður
  • Júlíus Andri Þórðarson aðalmaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Ívar Bragason lögmaður stjórnsýslu fundinn.[line][line]Fyrsti dagskrárliður var sameiginleg kynning með umhverfis- og framkvæmdaráði.

Secretary

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Ívar Bragason lögmaður stjórnsýslu fundinn.[line][line]Fyrsti dagskrárliður var sameiginleg kynning með umhverfis- og framkvæmdaráði.

  1. Almenn erindi

    • 1411212 – Borgarlína

      Kynning á borgarlínuverkefninu. Sameiginlega með umhverfis- og framkvæmdaráði.
      Fulltrúar starfshóps SSH Hrafkell Proppé, Lilja Karlsdóttir og Eyjólfur Árni Rafnsson mættu til fundarins og kynntu stöðu verkefnisins.

      Skipulag og byggingarráð fagnar þeim farvegi sem Borgarlínan er komin í. Með þessum skrefum er verið að brjóta blað í umhverfislegum, efnahaglegum og samfélagslegum gæðum fyrir höfðuborgarsvæðið allt. Til að fylgja málinu eftir af festu samþykkir skipulags- og byggingarráð að Hafnarfjarðarbær ráði utanaðkomandi aðila til að taka verkefnið á næsta stig sem er greining umferðar og framtíðarlegu Borgarlínu í gegnum Hafnarfjörð. Horft verði til þeirra ferla sem nú þegar eru komnir af stað í nærliggjandi sveitafélögum.

    • 1607127 – Hafravellir 13, deiliskipulag

      Tekið fyrir að nýju erindi Eysteins H.Sigursteinssonar og Sigríðar D. Þórðardóttur sem sækja um deiliskipulagsbreytingu í framhaldi af máli 1409806, grendarkynning hefur farið fram.

      Lagður fram tölvupóstur Illuga Hermannssonar dags. 14. mars 2017 þar sem hann dregur áðursenda athguasemd til baka.
      Engar athugasemdir liggja því fyrir.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir fkyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    • 1611138 – Kvistavellir 63-65, beiðni um deiliskipulagsbreytingu

      Tekið fyrir að nýju.
      Gláma – Kím f.h. Brynju hússjóðs Öryskjabandalagsins óskaði með bréfi dags. 10.11.2016 eftir heilmild til að breyta deiliskipulagi ofangeindra lóða.
      Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 13.12.2016 s.l. var samþykkt að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr, 43. gr. 123/2010.
      Tillagan var auglýst frá 17.01.2017 – 01.03.2017. Athugasemdir bárust frá 5 aðilum með bréfi dags. 28.02.2017.

      Lögð fram drög að umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13.3.2017.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn skipulagsfulltrúa og fyrirliggjandi tillögu fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn:
      “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðanna Kvistavellir 63-65 og að málinu verði lokið skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.”

    • 1603516 – Lyngbarð 2, Þorlákstún, uppbygging og stöðuleyfi

      Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Syðra Langholts frá 19. janúar 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins.
      Lögð fram umsögn lögmanns stjórnsýslu dags.20. mars 2017.

      Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu með hliðsjón af fyrirliggjandi umsögn lögmanns stjórnsýslu.

    • 1703181 – Austurgata 3, lóðastækkun, deiliskipulag

      Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 15.3. 2017 var eftirfarandi erindi vísað til skipulags- og byggingarrráðs:
      Áslaug H.J. Servo óskar með bréfi ódags. bréfi, mótt. 9.3.2017, eftir lóðastækkun til að unnt sé að byggja sólkskála við húsið.
      Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa 20.3.2017

      Skipulags- og byggingarráð synjar fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi með hliðsjón af minnisblaði skipulagsfulltrúa.

    • 1702334 – Hraunkambur 2, ósk um lóðarstækkun

      TeikniStofan RÚM f.h. eiganda Guðjóns freys Eiðssonar sækir með tölvupósti um lóðarstækkun á ofangreindri lóð skv. skissutillögu RÚM dags. 17.2. 2017.
      Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2017.

      Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu eins og það liggur fyrir og vísar málinu til nánari skoðunar í yfirstandandi vinnu við deiliskipulag vesturbæjarins.

    • 1702130 – Einhella 6, breyting á deiliskipulagi, fyrirspurn

      Lögð fram breytt fyrirspun Zeppelin Arkitekta f.h. félagsins Stróks ehf dgas. 6. febrúar 2017 um breytingu á deiliskipulagi.
      Fyrirspurnin er breyting frá tillögu sem samþykkt var í skipulags- og byggingarráði 21.2.2017.
      Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13.3.2017..

      Skipulags- og byggingarráð synjar framkominni fyrirspurn með hliðsjón af umsögn skipulagsfulltrúa.

    • 1703032 – Suðurgata 73,breyting á deiliskipulagi

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 8. mars 2017 vísar eftirfarandi erindi til skipulgs- og byggignarráðs:
      Ásmundur Kristjánsson sækir 03.03.17 um breytingu á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda samkvæmt teikningum sem liggja fyrir hjá byggingarfulltrúa.

      Skipulags- og byggingarráð óskar eftir umsögn skipulagsfuflltrúa.

    • 1604204 – Óseyrarbraut 29, byggingarreitur

      Lögð fram tillaga Alark dags. 13.4.2016 um deiliskipulagsbreytingu á ofangreindri lóð en óskað var eftir breytingu á byggingarreit.
      Hafnarstjórn samþykkti breytinguna fyrir sitt leyti 12.4.2016.
      Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. mars 2017.

      Skipulags- og byggingarráð frestar afgreiðslu erindisins með hliðsjón af minnisblaði skipulagsfulltrúa dags. mars 2017 og vekur athygli umsækjanda á að áður en samþykkt er breyting á byggingarreit er óskað eftir gögnum frá lóðarhafa varðandi þær breytingar sem þarf að gera á lögnum undir fyrirhuguðum byggingarreit.

    • 1701236 – Grandatröð 12,umsókn um breytingu á deiliskipulagi.

      Lagður fram tölvupóstu H-berg ehf dags. 16. mars 2017 þar sem óskað er eftir deiliskipulagsbreytingu vegna ofangreindrar lóðar í samkvæmt skissuteikningu Hughrifa ehf dags. 16.3.2017.
      Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6.2.2017.

      Afgreiðslu frestað, skipulags- og byggingarráð óskar eftir nánari upplýsingum um fyrirhuguð byggingaráform.

    • 1702090 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting vegna þjóðlendu við Leiðarenda

      Tekin fyrir breytt staðarmörk aðalskipulags skv. úrskurði um þjóðlendur frá 20.6.2014, Mál S-1/2011.
      Samkvæmt úrskurðinum er hellirinn Leiðarendi innan staðarmarka Hafnarfjarðar.
      Senda þarf tillöguna til umsagnar aðliggjandi sveitarfélaga.

      Skipulags- og byggingarrráð samþykkir að kynna fyrirhugaða aðalskipulagsbreytingar fyrir þeim aðliggjandi sveitarfélögum sem þjólenduúrskurðurinn snertir og óska eftir umsögn þeirra fyrir 30. apríl n.k.

    • 1607496 – Lækjargata 2, framtíðarnýting

      Borist hefur fyrirspurn nokkurra íbúa við Suðurgötu, send í tölvupósti 13.3.2016, hvort hægt sé að fá hluta af reit við Dverg til þess að rækta upp “community garden” þar sem íbúar taka að sér að hugsa um reitinn með það að leiðarljósi að rækta og sjá um spilduna. Hugmyndin er að skapa umhverfis-og samfélagsvænt verkefni sem mun nýtast öllum bæjarbúum.

      Borghildur Sturludóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu þessa erindis.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að vísa fyrirspurninni til fyrirhugaðrar skipulagsvinnu á reitnum.

    Fundargerðir

    • 1702016F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 650

      Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 22. febrúar s.l.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1703005F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 651

      Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa frá 8. mars s.l.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1703011F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 652

      Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa frá 15. mars s.l.

      Lagt fram til kynningar.

Suggestion portal