Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Umhverfis- og framkvæmdaráð

25. January 2017 08:15

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 275

Attended

  • Helga Ingólfsdóttir formaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Helga Björg Arnardóttir varaformaður
  • Birna Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Bára Friðriksdóttir varamaður
  • Sverrir Jörstad Sverrisson varamaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðsstjóri fundinn.

Secretary

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir skrifstofustjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðsstjóri fundinn.

  1. Almenn erindi

    • 1411212 – Borgarlína strætó

      Eyjólfur Árni Rafnsson verkefnisstjóri hjá SSH mætti til fundarins og kynnti Borgarlínuna.

      Til kynningar.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir bókun skipulags- og byggingarráðs á fundi ráðsins 24. janúar s.l.

    • 1604401 – Framkvæmdir Gagnaveitu Reykjavíkur hf, ljósleiðaravæðing

      Kynntar fyrirhugaðar framkvæmdir Gagnaveitu Reykjavíkur í Norðurbæ, Vesturbæ og Hraununum.
      Ishmael R. David verkefnisstjóri mætti til fundarins og fór yfir málið.

      Til kynningar.

    • 1701171 – Krýsuvík, uppgræðsla 2017

      Lagt fram erindi Landgræslunnar dags. 10. janúar 2017 varðandi áframhaldandi styrki til uppgræðslu í Krýsuvík við Arnarfell og í beitarhólfi. Jafnframt lögð fram Áfangaskýrsla 2016.
      Ishmael R. David verkefnisstjóri mætti til fundarins og fór yfir málið.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlögð erindi.

    • 1701172 – Grenndargámar í miðbænum

      Lagðar fram tillögur að staðsetningu á genndargámastöð í miðbæ Hafnarfjarðar og tillögu að útliti.
      Ishmael R. David verkefnisstjóri mætti til fundarins og fór yfir málið.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir endurnýjun grenndargámastöðvar skv. tillögu A í miðbæ Hafnarfjarðar.
      Jafnframt samþykkir ráðið að skoðað verði með að setja upp gámastöð við dælustöðina Krosseyri við Vesturgötu.

    • 1310277 – Hleðslustaurar fyrir rafmagnsbíla

      Lagðar fram tillögur að staðsetningu á rafmagnshleðslustöð í miðbæ Hafnarfjarðar.
      Ishmael R. David verkefnisstjóri mætti til fundarins og fór yfir málið.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að skoða nánar staðsetningu F í miðbæ og við Ásvallalaug.

    • 1701381 – Hreinsun gróðurbeða á opnum svæðum 2017

      Lögð fram niðurstaða á útboði á hreinsun gróðurbeða 2017. Lægst bjóðandi var Garðlist hf.
      Ishmael R. David verkefnisstjóri mætti til fundarins og fór yfir málið.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að leita eftir samningum við lægstbjóðanda Garðlist ehf.

    • 1701380 – Grassláttur á opnum svæðum 2017

      Lögð fram niðurstaða á útboði á grasslætti 2017. Lægst bjóðandi var Garðlist hf.
      Ishmael R. David verkefnisstjóri mætti til fundarins og fór yfir málið.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að leita eftir samningum við lægstbjóðanda Garðlist ehf.

    • 1608822 – Reykjanesbraut, Lækjargata, hringtorg

      Umferðarflæði í hringtorginu við Lækjargötu Reykjanesbraut tekið til umfjöllunar á ný.
      Lögð fram drög af bréfi til Vegagerðarinnar.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð vill árétta að mikil þörf er á að marka heildarstefnu varðandi vegabætur á Reykjanesbraut og Fjarðargötu. Síðustu misseri hefur umferð á þessari leið aukist mjög mikið og því miður orðið nokkur mjög alvarleg umferðarslys eins og fram kemur í bréfi ráðsins til Vegagerðarinnar.

    • 16011208 – Leiðarendi, aðgerðir og verndun

      Berglind Guðmundsdóttir ark. mætti til fundarins og fór yfir stöðu málsins.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að leggja fram drög að umgengnisreglum fyrir hellinn á næsta fundi og skoða kostnað við uppsetningu teljara.

    • 1608407 – Vellir vegtengingar, hagkvæmniúttekt Ásvallabrautar

      Lögð fram lokaskýrsla Mannvits hf dags. janúar 2017 varðandi hagkvæmnisúttekt á Ásvallabraut.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1602126 – Strætó, leiðarkerfi í Hafnarfirði

      Skipun starfshóps vegna endurskoðunar á leiðarkerfi Strætó og tilnefnt í hópinn.

      Hópinn skipa:
      Helga Ingólfsdóttir
      Helga Björg Arnardóttir
      Eyrún Ósk Jónsdóttir

      Með hópnum starfa Helga Stefánsdóttir og Lilja Karlsdóttir ráðgjafi.

    • 1506568 – Sólvangsvegur, hjúkrunarheimili Sólvangssvæði

      Kynnt staða verkefnisins.

      Til upplýsinga.

    • 1006286 – Umhverfis- og auðlindastefna.

      Lögð fram bókun bæjarstjórnar frá 18. janúar sl.

      Tillaga frá fulltrúum Samfylkingar og Vinstri grænna liggur fyrir fundinum.

      “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að fara í endurskoðun á Umhverfis og auðlindastefnu Hafnarfjarðar og meta árangur sem náðst hefur af henni frá samþykkt hennar.”

      “Einnig samþykkir bæjarstjórn Hafnarfjarðar að fara í markvissa vinnu í samstarfi við Landvernd og Höfn í Hornafirði við að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda um 3 % á ári, draga úr matarsóun og minnka umferð plastpoka og plast í sveitarfélaginu.”

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir með 10 samhljóða atvæðum að fara í endurskoðun á Umhverfis og auðlindastefnu Hafnarfjarðar og meta árangur sem náðst hefur af henni frá samþykkt hennar. Málinu er vísað til afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdaráðs.

      Þá samþykkir bæjarstjórn Hafnarfjarðar með 10 samhljóða atkvæðum að vísa til umhverfis- og framkvæmdaráðs til umfjöllunar tillögu um að fara í markvissa vinnu í samstarfi við Landvernd og Höfn í Hornafirði við að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda um 3 % á ári, draga úr matarsóun og minnka umferð plastpoka og plast í sveitarfélaginu.

      Lagt fram.

      Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna leggja fram eftirfarandi fyrirspurn:

      Hafa allar stofnanir bæjarins sett sér umhverfisstefnu á grundvelli umhverfis- og auðlindastefnu Hafnarfjarðar?
      Ef svarið er nei þá hversu hátt hlutfall hafa mótað sér slíka stefnu?
      Vinna allar stofnanir bæjarins eftir framkvæmdaáætlun um flokkun sorps?
      Ef ekki þá hversu hátt hlutfall og hvaða sorp er flokkað með markvissum hætti hjá þeim stofnunum sem það gera?

    Fundargerðir

    • 1701117 – Strætó bs, fundargerðir 2017

      Lögð fram fundargerð nr 257 frá 6. janúar 2017.

      Lagt frm til kynningar.

Suggestion portal