Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

19. December 2018 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 735

Attended

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi
  • Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður

Secretary

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1812062 – Hnoðravellir 35-37-39, breyting á klæðningu

      Byggingarfélagið X ehf. sækir 05.12.2018 um að breyta úr skeljun/perlun að utan, einangrað með steinullareinangrun og gipsklætt að innan, í plasteinangrun og múrhúðað að innan og utan skv. teikningum Sigurbjarts Halldórssonar dags. 29.08.2018. Nýjar teikningar bárust 13.12.18,

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2012.

    • 1809510 – Norðurhella 9, byggingarleyfi breyting

      Tekin fyrir að nýju umsókn Mótanda ehf. frá 28.09.2018 um að breyta úr gistiheimili í 5 iðnaðarbil samkvæmt teikningum Kjartans Sigurðssonar dags. 19.09.2018. Nýjar teikningar bárust 06.11.2018.
      Nýjar teikningar bárust 26.11.2018.
      Nýjar teikningar bárust 11.12.2018 með stimpli SHS og Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs.
      Nýjar teikningar bárust 18.12.2018 með stimpli SHS og Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1802018 – Ásbúðartröð 17, fjölgun eigna

      Tekið fyrir að nýju reyndarteikningar frá Hvalsnes ehf. sem lagðar voru inn 1.2.2018 unnar af Magnúsi Jenssyni dagsettar 29.1.2015.
      Nýjar teikningar, þar sem einni íbúð er breytt í tvær, bárust 28.9.2018.
      Nýjar teikningar bárust 12.10.2018
      Nýjar leiðréttar teikningar bárust 18.12.2018

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1812028 – Flatahraun 1, svalalokanir

      Flatahraun 1, húsfélag leggur 4.12.2018 inn fyrirspurn vegna svalalokana á 2-4 hæð. Með fyrirspurn fylgir fundargerð húsfélagsins frá 13.11.2018 og dreifibréf til íbúa á Flatahrauni 1.

      Tekið er jákvætt í erindið að uppfylltum skilyrðum.

    • 1811322 – Hólabraut 2, fyrirspurn

      Þann 20.12.18 leggur Hjördís Sigurbjörnsdóttir inn fyrirspurn þar sem óskað er eftir leyfi fyrir rekstri á snyrtistofu með sér aðgengi á jarðhæð tvíbýlishúss. Samþykki meðeiganda liggur fyrir.

      Tekið er jákvætt í fyrirspurnina að uppfylltum skilyrðum.

    • 18129618 – Lónsbraut 70, niðurrif

      Garðar Smári Vestfjörð byggingarstjóri f.h. eigenda sækir um niðurrif bátaskýlis að Lónsbraut 70.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1812017 – Stapahraun 10, fyrirspurn til skipulagsfulltrúa, stækkun

      Björgvin Sigmar Stefánsson leggur inn fyrirspurn dags. 3.12.2018 um að stækka iðnaðarhúsnæði að Stapahrauni 10 um 151 fermetra.

      Tekið er jákvætt í erindið. Erindið verður grenndarkynnt þegar fullnægjandi gögn berast.

    C-hluti erindi endursend

    • 18129543 – Hjallahraun 2, byggingarleyfi

      Sveinn Karlsson sækir 14.12.2018 um heimild fyrir loftpressuskúr og söfnunargám/skilju við austurenda Hjallahrauns 2, MHL 02 skv. teikningum Sveins Karlssonar dags. 12.10.2018.

      Frestað gögn ófullnægjandi

    • 18129542 – Fjóluás 24, viðbygging, umsókn um byggingarleyfi

      Kristín B Flygenring sækir um 12.12.18 um að byggja viðbyggingu samkvæmt teikningum Kristins Ragnarssonar dags. 11.06.2018.

      Frestað gögn ófullnægjandi.

    • 18129525 – Suðurvangur 7, fyrirspurn

      Þann 13.12.2018 leggja Trípóli arkitektar inn fyrirspurn fyrir hönd eigenda við Suðurvang 7 þar sem óskað er eftir að byggja við húsið. Með erindinu fylgja skissur er sýna fyrirhugaða stækkun.

      Tekið er neikvætt í erindið, samræmist ekki deiliskipulagi.

Suggestion portal