In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sat Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fundinn
Samvinna Fjölskylduþjónustu og Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar. Anna Guðný Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingarinnar og Soffía Ólafsdóttir, deildarstjóri á Fjölskylduþjónustunni mæta á fundinn.
Fjölskylduráð þakkar Önnu Guðný og Soffíu fyrir góða kynningu.
Bókun: Fjölskylduráð leggur á það áherslu að samstarf fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar og Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar verði eflt enn frekar. Leitast þarf við að skapa störf innan sveitarfélagsins til að einstaklingar sem nýta þjónustu Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar geti snúið aftur út á vinnumarkaðinn. Sviðstjóra er falið að taka þetta upp á fundi sviðstjóra bæjarins og kanna hvar hægt sé að auka svigrúm til fjölbreyttra starfa. Ennfremur verði skoðað að taka upp samstarf við Markaðstofu Hafnarfjarðar.
Kynning á stöðu samstarfsverkefnis Fjölskyldu- og Fræðslu- og frístundaþjónustu en meginmarkmið verkefnisins er að auka lífsgæði barna og fjölskyldna í Hafnarfirði. Hulda Björk Finnsdóttir, verkefnastjóri Hafnarfjarðarlíkansins mætir á fundinn.
Fjölskylduráð þakkar Huldu fyrir góða kynningu.
Bókun: Fjölskylduráð fagnar þessari auknu samvinnu fjölskyldu- og fræðslu ? og frístundasviðs. Hér er um að ræða stórt skref í átt að bættri þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
Guðmundur Pálsson, ráðgjafi hjá KPMG mætir á fundinn og fer yfir drög að húsnæðisstefnu.
Fjölskylduráð þakkar Guðmundi fyrir góða kynningu.
Drög að húsnæðisstefnu lögð fram. Vísað í bæjarráð og skipulagsráð til kynningar og óskað er eftir umsögn þessara ráða.
Guðmundur Sverrisson og Elsa Guðrún Jóhannsdóttir frá fjármálasviði mæta á fundinn og fara yfir stöðu fjárhagsáætlunar sviðsins árið 2018.
Elsa Guðrún Jóhannsdóttir frá fjármálasviði mætti til fundarins og fór yfir stöðu fjárhagsáætlunar sviðsins árið 2018.
Fjölskylduráð þakkar Elsu Guðrúnu fyrir kynninguna.
Fyrir fundinum liggja upplýsingar um uppbyggingu heimilis fyrir fatlað fólk, fundargerð Ráðgjafarráðs í málefnum fatlaðs fólks og minnisblað sviðsstjóra dagsett 13. sept. 2018.
: Fjölskylduráð samþykkir samvinnu við sjálfseignarstofnunina Ásgarð/Embla. Um er að ræða samning um rekstur á heimili fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu sem eiga við fjölþættan vanda að stríða. Með samningi við Ásgarð/EMBLU fær Hafnarfjarðarbær pláss fyrir tvo einstaklinga.
Fyrir fundinum liggur minnisblað vegna lóðar að Smyrlahrauni °41a. Óskað er eftir lóðinni fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Fjölskylduráð samþykkir að óska eftir lóðinni að Smyrlahrauni 41a fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að verið sé að bregðast við vanda í húsnæðismálum fatlaðs fólks í Hafnarfirði með þessari lóðarumsókn. Skv. svörum við fyrirspurn Samfylkingarinnar frá 17. ágúst sl. kom fram að þörf væri á 3-4 búsetukjörnum í viðbót við þá sem voru í undirbúningi. Það blasir við að vandinn er alvarlegur og aðkallandi að bregðast við honum eins fljótt og kostur er.
Fjölskylduráð óskar eftir upplýsingum um stöðu verkefna sem eru í undirbúningi og óskar eftir kynningu frá Sviðstjóra Umhverfis og skipulagsþjónustu á næsta fundi og Ráðgjafarráði fatlaðra verði boðin þáttaka á fundinum.
Lagt fram svar við fyrirspurn Samfylkingarinnar frá 17.ágúst 2018.
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar framlögð svör við fyrirspurnum um þetta mál sem lagðar voru fram á fundi Fjölskylduráðs þann 17. ágúst sl. Á síðustu rúmu fjórum árum hefur Hafnarfjarðarbær keypt 21 íbúð inn í félagslega íbúðakerfið en að teknu tilliti til íbúafjölda þyrfti Hafnarfjarðarbær að fjölga íbúðum um 221 til þess að íbúðir innan kerfisins teldust jafn margar og í Reykjavík. Félagslegar íbúðir eru 7,9 á hverja þúsund íbúa í Hafnarfirði en landsmeðaltalið er 10,5 íbúðir á hverja þúsund íbúa. Svörin sýna því að nauðsynlegt er að setja aukinn kraft í að fjölga íbúðum í félagslega kerfinu til þess að mæta þeirri brýnu þörf sem til staðar og stytta biðtíma.
Fyrir fundinum liggja drög að erindisbréfi starfshóps um dagdvöl fyrir heilabilaða.
Lagt fram erindisbréf fyrir starfshóp sem hefur það verkefni að leggja fram hugmyndir um húsnæði sem hentar fyrir dagdvöl fyrir heilabilaða í sveitarfélaginu. Starfshópurinn á að ljúka störfum í lok október.
Fjölskylduráð hefur skipað eftirtalda aðila í starfshópinn:
Valdimar Víðisson, fulltrúi meirihluta. Formaður. Erla Sigríður Ragnarsdóttir, fulltrúi meirihluta. Auðbjörg Ólafsdóttir, fulltrúi minnihluta. Starfsmaður starfshópsins er sviðsstjóri Fjölskyldusviðs.
Samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002 skulu sveitarfélög marka sér stefnu og gera framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar innan sveitarfélagsins. Fyrir fundinum liggur drög að erindisbréfi starfshóps um gerð framkvæmdaáætlunar.
Fjölskylduráð hefur skipað eftirtalda aðila í verkefnastjórnina:
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, fulltrúi meirihluta. Formaður. Kristjana Ósk Jónsdóttir, fulltrúi meirihluta. Dagbjört Rún Guðmundsdóttir, fulltrúi minnihluta. Starfsmenn hópsins eru Ólína Birgisdóttir, deildarstjóri barnaverndar, Haukur Haraldsson, sálfræðingur Fjölskylduþjónustu og Eiríkur Þorvarðarson, yfirsálfræðingur á fræðslu- og frístundasviði.
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 8/2018 og 9/2018.
Fjölskylduráð staðfestir niðurstöðu afgreiðslu málskotsnefndar.
Fjölskylduráð leggur til að skoðað verði aðgengi fatlaðra að menningarstofnunum og íþróttamannvirkjum bæjarins. Mikilvægt er að tryggt sé jafnt aðgengi allra að þessum mannvirkjum. Málinu vísað til ráðgjafaráðs fatlaðra sem tekur málið til umsagnar.