Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bæjarráð

28. June 2018 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Meeting 3497

Attended

  • Ágúst Bjarni Garðarsson formaður
  • Kristinn Andersen varaformaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Bjarney Grendal Jóhannesdóttir Varaáheyrnarfulltrúi

Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

Secretary

  • Guðríður Guðmundsdóttir

Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

  1. Almenn erindi

    • 1806284 – Lántökur 2018

      Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti til fundarins.

      Bæjarráð í umboð bæjarstjórnar samþykkir lántökur í samræmi við fjárhagsáætlun og felur bæjarstjóra að ganga frá lántökunni í samræmi við minnisblað.

    • 1806283 – Lögfræðiálit, dráttarvextir, heimild til innheimtu

      Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti til fundarins.

      Bæjarráð tekur undir niðurstöður í framlögðu lögfræðiáliti og felur sviðsstjóra fjármálasviðs að afgreiða málið.

    • 1704040 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2018 og 2019-2021

      Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti til fundarins.

      Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir framlagðarn viðauka.

    • 1405420 – Ferðaþjónusta fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu

      Lagt fram minnisblað. Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskylduþjónustu mætir til fundarins

      Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir stöðu málsins.

      Guðlaug Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi Bæjarlistans leggur fram svohljóðandi bókun:

      Að fenginni reynslu er brýnt að sérstaklega verði hugað að viðkvæmustu notendum ferðaþjónustu við endurskoðun útboðs og þjónustuforms. Fólki sem síst þolir röskun á högum sínum og þarf ríkan stuðning vegna t.d. tjáningarmáta eða einhverfu. Notandinn á að vera í forgrunni, ekki kerfið. Þjónustutími er meðal þess sem þarf að skoða, en í dag er t.d. þjónustutími Strætó til grundvallar, sem er fyrst og fremst valkostur í samgöngum. Notendur ferðaþjónustu hafa margir ekki aðra valkosti og þurfa að geta komist leiðar sinnar á helgidögum og svo framvegis.
      Að auki hvet ég bæjarfulltrúa til að skoða málið með opnum hug, ekki gera breytingar breytinganna vegna heldur út frá málefnalegum forsendum á grundvelli yfirstandandi mats.

    • 1804072 – Vinabæir í 30 ár, Cuxhaven og Hafnarfjörður

      Lagt fram boð frá Ulric Getsch yfirborgarstjóra Cuxhaven í afmælishóf sem haldið verður í Cuxhaven 8. september n.k.

      Andri Ómarson, verkefnastjóri mætti til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir að senda fimm fulltrúa frá Hafnarfjarðarbæ til afmælishófs í Cuxhaven 8. september nk.

    • 1806248 – Tartu, vinabær, hamingjuóskir

      Lagt fram bréf frá bæjarstjóra Tartu, vinabær Hafnarfjarðar.

      Lagt fram.

    • 1803387 – Norðurbraut 11, ósk um lóðarstækkun

      Lóðarstækkun á Norðurbraut 11.

      Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt mætti til fundarns.

      Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir lóðarstækkun á Norðurbraut 11 og samþykkir endurnýjaðan lóðarleigusamning.

    • 1805224 – Blátunnulosun

      Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði á fundi sínum þ. 16.maí sl. eftirfarandi erindi til bæjarráðs:
      1805224 – Blátunnulosun
      Lagt fram minnisblað um breytingar á losun blátunnu.
      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að auka tíðni losunar úr 28 dögum í 21 dag. Erindinu er vísað í bæjarráð.

      Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til fjárhagsáætlunargerðar 2019.

    • 1806164 – Engjavellir 5B, kauptilboð

      Lagt fram kauptilboð ásamt söluyfirliti í íbúð að Engjavöllum 5B

      Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir kaup á íbúð að Engivöllum 5B.

    • 1806332 – Selhella 8, framsal lóðar, HS Veitur

      Beiðni frá lóðarhafa Selhellu 8 að framselja lóðina til HS veitna.

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og samþykkir að fela sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsþjónustu að gera minnisblað um ákvæði um framsal lóða. Minnisblaðið liggi fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

    • 1805331 – Miðhella 1 og Selhella 10, skipti á lóðum, erindi

      Beiðni um lóðarskipti Miðhellu 1 og Selhellu 10.

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og samþykkir að fela sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsþjónustu að gera minnisblað um ákvæði um framsal lóða. Minnisblaðið liggi fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

    • 1803268 – Móbergsskarð 1, umsókn um lóð, úthlutun, afsal

      Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Móbergsskarði 1 þar sem fram kemur að óskað er eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.

      Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir afsal Bjargar Gilsdóttur og Guðmundar Karlssonar á lóðinni Móbergsskarði 1.

    • 1609335 – Alþingiskosningar 2016

      Lagt fram svar kjörstjórnar Hafnarfjarðar vegna fyrirspurnar.

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta gera greiningu á þéttni byggðar og almennum samgöngum með tilliti til staðsetningar kjörstaða.

      Adda María Jóhannsdóttir fulltrúi Samfylkingar leggur til eftirfarandi:

      Samkvæmt meðfylgjandi greinargerð um staðsetningu kjörstaða í bænum kemur fram mat yfirkjörstjórnar á því að kjörstaðir sem notaðir hafa verið undanfarið hafi þjónað hlutverki sínu vel. Í Sveitarstjórnarkosningunum árin 2014 og 2018 hefur kjörsókn í bænum verið dræm sem hlýtur að gefa tilefni til hugleiða það að fjölga kjörstöðum í bænum. Íbúum bæjarins fjölgar jafnt og þétt og með áframhaldandi uppbyggingu í Skarðshlíð er ljóst að mest verður fjölgunin sunnan Reykjanesbrautar. Í ljósi þessa legg ég til að staðsetning á kjörstöðum verði endurskoðuð og hugað að því að fjölga kjörstöðum í þrjá fyrir næstu alþingis- og sveitarstjórnarkosningar og bætt verði við kjörstað í Vallarhverfi.

    • 1801248 – Félag eldri borgara í Hafnarfirði, styrkbeiðni

      Lagt fram þakkarbréf frá félagi eldri borgara vegna stuðnings við 50 ára afmælishátíð félagsins.

      Lagt fram.

    • 1806285 – Námsferð til Danmerkur 2.-6. september 2018

      Lagt fram til kynningar. Samband ísl. sveitarfélaga stendur fyrir námsferð til Danmerkur 2.-6. september nk.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1805517 – Launuð námsleyfi, haust 2018

      Tillaga um launuð námsleyfi lögð fram.

      Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að fjórum aðilum verði veitt launað námsleyfi.

    • 1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar

      Leiðrétt mistök frá síðsta bæjarstjórnarfundi.

      Tilnefning varaáheyrnafulltrúa í færðsluráð er Harpa Þrastardóttir, Hamarsbraut 16, ekki Harpa Þorsteinsdóttir.

      Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir tilnefninguna.

      Barnavernd, lagður fram eftirfarandi listi fulltrúa:

      Aðalmenn:
      Þórdís Bjarnadóttir, Heiðvangi 80 XD
      Mjöll Flosadóttir Traðarbergi 5, XD
      Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Miðvangi 10, XB
      Dagbjört Rún Guðmundsdóttir, Krókahrauni 12 xS
      Heimir Hilmarsson, Holtabyggð 1 Xc

      Varamenn:
      Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Lækjarkinn 6,xD
      Jóhanna Fleckenstein, Arnarhrauni 20, xB
      Matthías Freyr Matthíasson, Suðurvangi 4, xS
      Sveindís Jóhannsdóttir, Svalbarði 9 xC

      Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir tilnefningar í barnaverndarnefnd.

    • 1806351 – Menntasetrið við Lækinn

      Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs:
      “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gerð verði úttekt á ástandi byggingar Menntasetursins við Lækinn (gamla Lækjarskóla) og viðhalds- og endurbótaþörf metin og kostnaðargreind. Einnig verði unnar tillögur að framtíðarstarfsemi í húsinu.“

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir úttekt á ástandi byggingar Menntasetursins við Lækinn og kostnaðarmetin viðhalds- og endurbótaþörf verði lögð fram á næsta fundi ráðsins.

    • 1806324 – Stuðningur við ungt fólk í Hafnarfirði.

      Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs:
      “Til að auka stuðning við ungt fólk í Hafnarfirði leggja fulltrúar Samfylkingar til eftirfarandi: Tryggt verði aðgengi að sálfræðingum í öllum grunnskólum bæjarins ásamt því að boðið verði upp á sálfræðiþjónustu fyrir 16-18 ára börn í Ungmennahúsi.
      Til að jafna og auðvelda aðgengi ungmenna að tómstundum leggjum við til að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði strætókort fyrir börn að 18 ára aldri sem verði þeim að kostnaðarlausu. Þannig minnkum við líka skutl og styðjum við umhverfissjónarmið.
      Þá leggjum við einnig til að börn að 18 ára aldri fái frían aðgang að Bókasafni Hafnarfjarðar.”

      Þeim hluta tillögunnar sem snýr að sálfræðingum í grunnskólum bæjarins og Ungmennahúsi var vísað til fræðsluráðs til umfjöllunar. Fræðslusvið hefur einnig til vinnslu niðurgreiðslu á strætókortum. Bæjarstjóra falið að kostnaðarmeta frían aðgang að Bókasafni Hafnarfjarðar fyrir næsta fund bæjarráðs.

    • 1806352 – Stytting vinnuvikunnar

      Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs:
      “Mikilvægt er að Hafnarfjarðarbær stuðli að aukinni samveru fjölskyldna með skrefum í átt að styttingu vinnuviku ásamt því að stuðla enn frekar að styttri vinnudegi barna með aukinni samþættingu skóla og frístunda. Fulltrúar Samfylkingar leggja til að hafin verði undirbúningur á tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar í stofnunum bæjarins.”

      Bæjarstjóra falið að halda áfram úrvinnslu málsins.

    • 1806353 – Samgöngusamningar

      Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs:
      “Áhersla á lýðheilsu á að vera forgangsmál í hverju samfélagi. Mikilvægt er að Hafnarfjarðarbær gangi fram með góðu fordæmi og stuðli að aukinni lýðheilsu starfsfólks. Fulltrúar Samfylkingar leggja til að teknir verði upp samgöngusamningar við starfsfólk bæjarins. Það eflir lýðheilsu og styður við umhverfissjónarmið.”

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka saman upplýsingar um mögulegt fyrirkomulag samgöngusamninga og kostnaðarmat.

    • 1806354 – Stytting vinnuviku hjá starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar, tilraunverkefni

      Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs:
      “Stytting vinnuviku hjá starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar, tilraunaverkefni
      Hafið verði verkefni um styttingu vinnuviku í samráði við stéttarfélög og starfsfólk bæjarins. Starfsfólk félagsþjónustu hefur þegar óskað eftir slíkri tilraun og fjallaði bæjarráð um þá tillögu á fundi sínum þann 20. apríl síðastliðinn. Var bæjarstjóra falið að taka málið til skoðunar (1803258 – Stytting vinnuvikunnar, erindi). Einnig verði tekið upp samtal við aðrar stofnanir bæjarins um mögulegan áhuga á sambærilegu verkefni”

      Bæjarráð vísar til bókunar í máli 20.

    • 1604144 – Hagsmunaskráning kjörinna fulltrúa

      Fulltrúi Samfylkingar hvetur fulltrúa til að ganga frá hagsmunaskráningu innan settra tímamarka.

    • 1806156 – Stefnuyfirlýsing meirihluta bæjarstjórnar 2018

      Guðlaug Kristjánsdóttir fulltrúi Bæjarlistans Hafnarfirði ber upp svohljóðandi fyrirspurn:

      Fyrirspurn, óskast svarað í bæjarráði:
      Óskað er eftir kostnaðaráætlun meirihlutasáttmála Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, aðallega vegna sérgreindra verkefna:
      Stjórnsýsluúttekt
      Matráðar í skólum
      Sængurgjöf
      Aukin framlög og styrkir í mennta- og menningarmálum
      Hækkun frístundastyrkja
      Hjólabrettasvæði
      Hreyfigarður
      Knatthús Kaplakrika
      Knatthús Ásvöllum
      Endurbætur á Suðurbæjarlaug
      Uppbygging hjóla- og gönguleiða
      Rafhleðslustöðvar
      Framboð lóða í samræmi við eftirspurn
      Endurbætur á Hellisgerði
      Þjónustustarfsemi í Krýsuvík
      Lækkun gjalda almennt
      Lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði
      Þessi sáttmáli inniheldur fjölmörg verkefni sem munu kosta aukin útgjöld, fjölgun stöðugilda og fleira. Einnig mörg markmið um minni innheimtu gjalda.
      Að lokum, spurningar um Krúttkörfu:
      -undir hvaða bókhaldslið flokkast þessi fjárfesting?
      -hvernig verður innkaupum háttað? Verður tekið tillit til umhverfissjónarmiða (taubleyjur, fjárfesting í plasti), árvekni gegn mansali (hvar framleitt og af hverjum? Barnavinna/félagsleg undirboð?).

      Fyrirspurn vísað til næsta fundar bæjarráðs.

    Fundargerðir

    • 1801608 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fundargerðir 2018

      Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 28.maí sl.

    • 1802034 – Samband ísl. sveitarfélaga, fundargerðir 2018

      Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 18.maí sl.

    • 1802056 – Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs, fundargerðir 2018

      Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 15.júní sl.

    • 1801243 – Strætó bs, fundargerðir 2018

      Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 18. maí sl.

Suggestion portal