In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar nema Kristín María Thoroddsen í hennar stað mætir Guðbjörg Oddný Jónasdóttir og Friðþjófur Helgi Karlsson í hans stað mætir Stefán Már Gunnlaugsson.
Forseti bæjarstjórnar Kristinn Andersen setti fundinn og stjórnaði honum.
Breytingar í ráðum og nefndum: Heilbrigðisnefnd: Inn fara: Elínbjörg Ingólfsdóttir aðalmaður Þrastarási 51 Hólmfríður Þórisdóttir varamaður Eskivöllum 5
Út fer: Sævar Gíslason aðalmaður Elínbjörg er hér að færast úr því að vera varamaður í það að vera aðalmaður.
Fjölskylduráð Inn kemur: Bjarney Grendal Jóhannesdóttir varaáheyrnarfulltrúi, Miðvangi 107 Út fer: Sævar Gíslason varaáheyrnarfulltrúi
Öldungaráð
Inn fer: Magnús Pálsson Sigurðsson Breiðvangi 16 Út fer: Elínbjörg Ingólfsdóttir
Framlagðar breytingar á heilbrigðisnefnd samþykktar samhljóða.
Framlagðar breytingar á fjölskylduráði samþykktar samhljóða.
Framlagðar breytingar á öldungaráði samþykktar samhljóða.
4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 8.október sl. Ásmundur Kristjánsson sótti 03.03.2017 um breytingu á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðra framkvæmda og starfsemi að Suðurgötu 73. Erindinu var synjað eins og það lá fyrir. Lögð fram ný tillaga að breyttu deiliskipulagi dags. 04.05.2019.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að málsmeðferð fyirliggjandi tillögu að deiliskipulagsbreytingu verði samkvæmt 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga 123/2010 og að tillagan verði jafnframt grenndarkynnt. Erindinu er jafnframt vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Til máls tekur bæjarfullrúi Ólafur Ingi Tómasson.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu.
2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 10.október sl. 1. liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 2.október sl. Lagt fram samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum til og með ársins 2033 til samþykktar. Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu til bæjarráðs til frekari umræðu og kynningar.
Hrafnkell Proppé svæðisskipulagsstjóri SSH mætir til fundarins.
Bæjarráð vísar málinu til seinni umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Sigurður Þórður Ragnarsson
Til máls tekur bæjarfulltrúi Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Adda María Jóhannsdóttir.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Ágúst Bjarni Garðarsson.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum til og með ársins 2033 með 10 atkvæðum, atkvæði á móti greiðir bæjarfulltrúi Sigurður Þórður Ragnarsson.
Bæjarfulltrúi Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir kemur að svohljóðandi bókun: Samkomulag um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu er að mörgu leyti tímamótaáfangi, þar sem öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa náð að setja fram sameiginlega sýn á forgangsröðun umferðarframkvæmda, í samráði við ríkisstjórnina. Sérstaklega ber að fagna skýrum ákvæðum í samkomulaginu um skuldbindingu af hálfu bæði fjármála- og samgönguráðherra, þar sem kveðið er á um að samkomulagið skuli verða hluti af komandi fjármála- og samgönguáætlunum ríkisins. Eins er það söguleg stund að Borgarlína skuli vera komin formlega á áætlun, studd bæði af sveitastjórnum og ríki og því ber að fagna. Bæjarfulltrúi Bæjarlistans telur engu að síður að hlutur umhverfisvænna samgangna hefði átt að vega þyngra í þessu samkomulagi, ekki síst í ljósi þróunar loftslagsmála til skemmri jafnt sem lengri tíma. Tæplega er hægt að lesa úr fyrirliggjandi samkomulagi áætlun um kröftugan viðsnúning í losun gróðurhúsalofttegunda, sem þó er rík og bráð þörf fyrir. Líklegt verður því að teljast að áætlunin muni þurfa að taka breytingum hvað þetta varðar á þeim 15 árum sem hún tekur til. Í samkomulaginu er ákveðið svigrúm til viðbótarbreytinga að því er Hafnarfjörð varðar. Má þar nefna gerð forgangsreina fyrir almenningssamgöngur á Hafnarfjarðarveginum sem og úrbætur á hjóla- og gönguleiðum. Mikilvægt er að Bæjarstjórn Hafnarfjarðar beiti sér fyrir þeim mikilvægu úrbótum í þágu bæjarbúa, og umhverfisins, héðan eftir sem hingað til. Þverpólitískri sátt um samgöngumál ber aldrei að taka sem sjálfsögðum hlut og því styður fulltrúi Bæjarlistans fyrirliggjandi samkomulag sem mikilvægt skref í rétta átt. Umhverfisþáttinn þarf þó án efa að endurskoða þegar fram líða stundir, með sterkari áherslu á loftslagsvænni samgöngur og brýnt að Bæjarstjórn Hafnarfjarðar haldi vöku sinni í umhverfismálum og þrýsti á um nauðsynlegar úrbætur framtíðinni til heilla.
Bæjarfulltrúi Sigurður Þórður Ragnarsson kemur að svohljóðandi bókun: Bæjarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: Með samkomulagi þessu er gert ráð fyrir að íbúar Hafnarfjarðar greiði 2 milljarða á tímabilinu og er gert ráð fyrir að tæplega helmingur samningsupphæðar renni til borgarlínu. Inni í þessari tölu eru ekki uppkaup á fasteignum sem sem nauðsynleg kunna að verða vegna legu borgarlínunnar í bænum. Það er því ljóst að þessi tala 2 milljarðar kann að verða mun hærri. Hvergi hafa komið fram hugmyndir um hvernig sveitarfélagið hyggist afla þessara fjármuna sem og hitt að fari kostnaður fram yfir áætlanir hver eigi að greiða það. Þá liggja engar greiningar fyrir um að hve miklu leyti borgarlína kann að auka hlutdeild íbúa í almenningssamgöngum. Ríkinu ber að greiða fyrir lagningu stofnbrauta í þéttbýli og með þessu samkomulagi er verið að velta hlutfallslegum kostnaði við nauðsynlegar vegaumbætur á vegum ríkisins yfir á sveitarfélagið. Þá liggur engan veginn fyrir hvernig afla skuli 60 milljarða upphæð vegna verkefnins, en þar er talað um óljósar hugmyndir um veggjöld. Hér er því verið að leggja í mikla óvissuför. Fulltrúi Miðflokksins gerir kröfu að upplýst sé samhliða samkomulagi þessu, hvernig þessum gríðarlegu fjármunum verður aflað áður en samkomulagið verður staðfest af kjörnum fulltrúum. Bæjarfulltrúi Miðflokksins greiðir því atkvæði gegn samkomulagi því sem hér liggur frammi.
10.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 10.október sl.
Lögð fram lóðarumsókn frá SSG verktökum ehf, kt. 681005-210 um lóðirnar Stuðlaskarð 6,8,10 og 12.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðunum Stuðlaskarði 6,8,10 og 12 verði úthlutað til SSG verktaka ehf.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðunum Stuðlaskarði 6, 8, 10 og 12 til SSG verktaka ehf.
Fundagerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 9.október sl. a. Fundargerð stjórnar SORPU bs.frá 27.sept. sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 8. október sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 9.október sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 23.september sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 3.október sl. Fundargerð bæjarráðs frá 10.október sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 25.september sl. b. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 30.september sl. c. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 27.september sl. d. Fundargerðir stjórnar SSH frá 9. og 25.september sl. Fundargerð forsetanefndar frá 14.október sl.