In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt, Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.
Lögð fram bókun bæjarstjórnar frá 26. júní sl. Kosið var í nefndir og ráð til eins árs: Skipulags- og byggingaráð er þannig skipað: Ólafur Ingi Tómasson, Fjóluhvammi 9, formaður Ágúst Bjarni Garðarsson, Brekkuás 5, varaformaður Lovísa Traustadóttir, Spóaási 24, Stefán Már Gunnlaugsson, Glitvöllum 19 Jón Garðar Snædal Jónsson, Klukkuvellir 5 Gísli Sveinbergsson, Skipalóni 5, áheyrnarfulltrúi Sigurður P. Sigmundsson, Fjóluhlíð 14, áheyrnarfulltrúi
Varamenn: Kristján Jónas Svavarsson, Hverfisgötu 63 Anna Karen Svövudóttir, Smárabarði 2c Vaka Dagsdóttir, Drekavöllum 40 Einar Pétur Heiðarsson, Ölduslóð 24 Óli Örn Einarsson, Hverfisgötu 52b Arnhildur Ásdís Kolbeins, Gauksás 57, varaáheyrnarfulltrúi Helga Björg Arnardóttir, Álfaskeiði 1, varaáheyrnarfulltrúi
Allar framangreindar tillögur voru samþykktar samhljóða. Teljast framangreindir því réttkjörnir.
Lagt fram til kynningar. Guðmundur Sverrisson sérfræðingur á fjármálasviði Hafnarfjarðarbæjar mætir til fundarins.
Umsókn Jóns Bjarna Jónssonar dags. 12.7.2019 um breytingu á deiliskipulagi þannig að viðbygging rúmist innan deiliskipulags sbr. uppdrætti dags. 17.7.2017 var vísað til afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs frá 760 Afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22.8.2019.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Á fundi bæjarráðs 15.8.sl. var tekið jákvætt í beiðni lóðarhafa um stækkun á lóð í samræmi við nýtingu lóðar og umhverfis- og skipulagsþjónustu falið að vinna málið áfram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir stækkun lóðar samkvæmt fyrirliggjandi tillögu að mæliblaði og vísar erindinu til vinnu við deiliskipulag Vesturbæjar.
Lagt fram bréf Skógræktarinnar dagsett í júní 2019 til upplýsinga um landshlutaáætlanir og fyrirhugaðar kynningar og samstarf við sveitarfélög, skógarbændur og aðra hagsmunaaðila. Umhverfis- og framkvæmdaráð bókaði eftirfarandi á fundi sínum þann 14.8.sl. “Umhverfis og framkvæmdaráð áréttar mikilvægi þess að skipulagt verði svæði í upplandi Hafnarfjarðar fyrir loftlagsskóg.”
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsþjónustu að vinna að útfærslu þeirra hugmynda sem fram koma í bréfi skógræktarinnar.
Tekið fyrir að nýju erindi dags. 10.4.2019 frá Hestamannafélaginu Sörla þar sem óskað er eftir að göngustígur í Gráhelluhrauni verði aflagður og að leiðin verði skilgreind sem reiðleið í staðinn. Umhverfis- og framkvæmdaráð synjaði erindinu 2.5.2019 á grundvelli þess að umræddur göngustígur er skv. Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2015-2030. 19.6.2019 er erindið tekið fyrir að nýju og vísaði til afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs sem frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 2.7.2019.
Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu á grundvelli þess að umræddur göngustígur er skv. Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2015-2030 og gildandi deiliskipulagi.
Umsagnir vegna skipulagslýsingar fyrir nýtt deiliskipulag Leiðarenda lagðar fram.
Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025. Umsagnir vegna skipulagslýsingar vegna breytinga á mörkum sveitarfélagsins lagðar fram.
Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025 tekið til umfjöllunar. Stefna aðalskipulags er bindandi við gerð deiliskipulags og útgáfu byggingar- og framkvæmdaleyfa. Með vísan til 35.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hefja vinnu við gerð nýs aðalskipulags samkvæmt 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar til staðfestingar. Skipulags- og byggingarráð samþykkir jafnframt að skipa fimm manna starfshóp um endurskoðun aðalskipulagsins. Hópinn skipa þrír úr skipulags- og byggingarráði og tveir frá umhverfis- og skipulagsþjónustu. Nöfn fulltrúa í hópnum ásamt erindisbréfi verður lagt fram á næsta fundi ráðsins.
Tekin til áframhaldandi umræðu deiliskipulagsvinna á nýbyggingarsvæði Hamraness. Kynntar tillögur að skipulagi reita.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir drög að auglýsingu er varðar skipulag reita 1-4 og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Lögð fram á ný tillaga að mögulegri staðsetningu gistiheimila. Tekið er mið af landnotkun Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 og greinargerð ferðaþjónustuhóps frá 2016.
Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
Tekin til umræðu á ný hugmyndir um skipulag og framkvæmdir frá sjónarmiði um sjálfbærni.
Skipulags- og byggingarráð vísar lið c, að minnsta kosti 20% byggingarefna í nýframkvæmdum skuli hafa umhverfisvottun, til frekari úrvinnslu umhverfis og skipulagsþjónustu.
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 2. júlí sl. var samþykkt að breyta deiliskipulagsskilmálum í samræmi við 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga. Um er að ræða endurskoðun greinagerðar hvað varðar mænishæð, porthæð og stærð suðurhurða ásamt lengd austur – vestur hliðar. Erindið var sent í grenndarkynningu og frestur til að skila inn athugasemdum lauk 21.8.2019. Ein athugasemd barst.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman umsögn vegna framkominna athugasemda.
Sigurður Hallgrímsson ark. óskar f.h. lóðarhafa að færa núverandi lóðarmörk milli lóðanna á Dofrahellu 2 og 4. Reisa á lóðinni nr 2 einnar hæðar stálgrindarhús. Reisa á lóðinni nr 4 fjórar lengjur minni stálgrindarhús með möguleika á geymslulofti í húsunum. Að öðru leyti gildi núverandi skilmálar um girðingar, gróður og fl. á lóðunum. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22.8.2019.
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn dags. 3.1.2019 frá Eignatak ehf. þar sem óskað var eftir heimild til að breyta deiliskipulagi lóðar. Breytingin felst í því að byggingarreitur fer úr 40×30 í 54×27. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 9.1.sl. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26.8.2019 lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina sbr. umsögn skipulagsfulltrúa.
Fyrirspurn Hákons Inga Sveinbjörnssonar frá 24.4.2019 vegna stækkunar húss og bílskúr/vinnustofu á lóð var vísað til skipulags- og byggingarráðs frá Afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 21.8.sl. Um er að ræða fyrirspurn vegna tillögu að breyttu deiliskipulagi.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina.
Fyrirspurn Hagtaks hf. frá 20.06.2019 um deiliskipulagsbreytingu að Álfhellu 10 tekin fyrir á ný. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 13/8 s.l. var óskað eftir umsögn skipulagsfulltrúa. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26.08.2019.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa.
Lögð fram fundargerð 763. fundar.
Lögð fram fundargerð 764. fundar.
Fundargerðir starfshóps Miðbæjar nr. 9- 12 lagðar fram auk draga að skýrslu starfshópsins.
Fundargerð samráðsnefndar dags. 12. ágúst 2019, 18 fundur, lögð fram til kynningar