In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Tekin fyrir að nýju umsókn Magnúsar Páls Halldórssonar frá 31.1.2019 um að loka sundi á milli mhl 01 og mhl 02 samkvæmt teikningum Ársæls Vignissonar dags. 2.12.2018. Nýjar teikningar bárust 27.3.2019. Nýjar teikningar bárust 21.06.2019. Nýjar teikningar bárust 15.07.2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Áskilin er úttekt á rýminu og gera þarf eignaskiptayfirlýsingu.
Tekin fyrir að nýju umsókn Aqua Angels ICELAND ehf. frá 24.6.2019 um leyfi til að byggja stálgrindarhús á einni hæð samkvæmt teikningum Lárusar Ragnarssonar dagsettar 11.6.2019 stimplaðar af Heilbrigðiseftirliti. Nýjar teikningar bárust 01.07.2019 með stimpli Heilbrigðiseftirlitsins. Nýjar teikningar bárust 8.7.2019 með stimpli Heilbrigðiseftirlitsins Nýjar teikningar bárust 16.7.2019 með stimpli Heilbrigðiseftirlitsins.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Þann 16. júlí 2019 leggur Lárus Ragnarsson byggingafræðingur Arkís arkitekta, inn fyrirspurn til byggingarfulltrúa þar sem óskað er eftir að koma fyrir millilofti í að hluta til eða yfir allt loftið. Lagðar eru fram þegar samþykktar teikningar frá 2018.
Tekið er jákvætt í erindið enda mun nýtingarhlutfall lóðar verða innan þess sem greinagerð skipulagsins heimilar eða 0,4 á lóðinni.
Þann 12. júlí sl. leggur Björn Þór Gestsson inn fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa þar sem óskað er eftir að koma fyrir skjólgirðingu á lóðinni. Með erindinu fylgja skissur og ljósmyndir er gera grein fyrir erindinu.
Tekið er jákvætt í erindið samkvæmt skissum og öðrum gögnum sem lögð voru til skýringar með málinu.
Jón Bjarni Jónsson óskar eftir breytingu á deiliskipulagi þannig að viðbygging verði innan deiliskipulags. Áætluð stærð eftir stækkun er 197 fermetrar.
Erindi vísað til skipulags- og byggingarráðs.
Hagtak hf. sækir þann 20.06.2019 um deiliskipulagsbreytingu á Álfhellu 10.
Sótt er um að áður samþykkt íbúð verði sjálfstæð fasteign. Íbúðin er í dag skráð sem sérstök notkunareining 207-6480. Ekki er um breytingar á mannvirki að ræða.
Tekið er neikvætt í erindið, meðal annars vegna ákvæðis um bílastæði.
Ásta Sólveig Andrésdóttir í umboði eigenda Austurgötu 38 óskar eftir því að lóðinni verði skipt í tvo lóðarhluta þar sem hvorum hluta tilheyrir ákveðin hlutdeild í lóðinni.
Tekið er neikvætt í erindið.
Gunnar Helgason, fh. Gaflaraleikhússins óskar eftir leyfi til kvikmyndatöku á nokkrum stöðum í bænum svo sem í Hellisgerði, á Víðistaðatúni og við Lækinn.
Byggingarfulltrúi heimilar upptökur í bæjarlandinu. Allt rusl og drasl skal fjarlægt að kvikmyndatöku lokinni og svæðið skilið eftir í sama ástandi og fyrir tökur.
Hafdís Jóna Þórarinsdóttir fh. Ungmennadadeildar HRFÍ óskar þann 15. júlí 2019 að halda sýningarþjálfanir á Víðistaðatúni dagana 11. og 18. ágúst 2019 frá kl. 12 – 15.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar afnot af túninu á umræddum dögum og bendir á að ganga skuli snyrtilega um og hirða upp eftir hunda. Vakin er athygli á því að það er krikketkeppni á túninu þann 11. ágúst og þarf því að velja stað í samræmi við það þannig að ekki verði árekstar.
Breyting á deiliskipulagi sem felur í sér að byggingarreit er snúið um 90° skjólgirðingu utan byggingarreits, hæð girðingar og breyting á aksturstenginu var samþykkt í skipulags- og byggingarráði þann 9.4.2019 og hefur þegar verið sent í B deild til birtingar. Þann 15.7.2019 er lagður inn uppdráttur með byggingarreit fyrir eldsneytisdælu.
Erindið verður grenndarkynnt samanber A-lið 2.gr samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags-og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Grenndarkynnt verður fyrir eigendum að Norðuhellu 2,3 og 5.
HS Veitur hf. sækja 12.7.2019 um breytingu á útliti norðurhliðar mhl 01. Stiga og þaktúðu skipt út. Í MHL. 02. verður skipt um undirstöður fyrir nýjan spenni fyllt upp í gluggagöt og stigi fjarlægður samkvæmt teikningum Jóns Ólafs Ólafssonar dagsettar 2.7.2019 stimplaðar af brunahönnuði.
Frestað gögn ófullnægjandi.
Þann 11.7.2019 sækir Sigurður Hallgrímsson fh. lóðarhafa um byggingarleyfi fyrir steinsteyptu einbýlishúsi. Samþykki nágranna er fyrirliggjandi.