Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Hafnarstjórn

4. November 2020 10:00

á fjarfundi

Meeting 1585

Attended

  • Kristín María Thoroddsen formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson aðalmaður
  • Magnús Ægir Magnússon aðalmaður
  • Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður
  • Gylfi Ingvarsson varamaður

Til fundarins mætti Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.

Secretary

  • Lúðvík Geirsson hafnarstjóri

Til fundarins mætti Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.

  1. Almenn erindi

    • 2010327 – Hamar - slipptaka 2020-21

      Lögð fram fundargerð frá fjarfundi vegna opnunar verðtilboða í endurbætur á dráttarbátnum Hamri samkvæmt útboðslýsingu 2489-20 gerð af Sætækni ehf fyrir Hafnarfjarðarhöfn. Þrú tilboð bárust. Eitt þeirra var gilt, frá Skipasmíðastöð Njarðvíkur að upphæð 12 milljónir. Kostnaðaráætlun verkkaupa er 14 milljónir. Jafnframt lögð fram minnisblöð frá Sætækni ehf. dags. 22. okt. og lögmanni bæjarins dags. 2. nóv.

      Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ganga til samninga við Skipasmíðastöð Njarðvíkur um fyrirkomulag og framkvæmd verksins.

    Kynningar

    • 2001191 – Framkvæmdir á hafnarsvæðum 2020

      Hafnarstjóri fór yfir stöðu mála og helstu framkvæmdir á hafnarsvæðum í Hafnarfirði og Straumsvík.

    • 2007364 – Hafnasambandsþing 2020

      Lögð fram fundargerð Hafnasambands Íslands frá 19. október sl. þar sem fram kemur að í ljósi aðstæðna hefur stjórn sambandsins samþykkt að halda hafnasambandsþing 2020 rafrænt þann 27. nóvember nk.

Suggestion portal