In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
á fjarfundi
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri, Ishmael David verkefnastjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þann 18. mars 2020 með vísan VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 að heimilt sé að halda fundi bæjarstjórnar, ráða og nefnda í fjarfundi. Heimild til fjarfunda var endurnýjuð í bæjarstjórn þann 19.8.2020.
Tekið til umræðu.
Lögð fram bókun Fræðsluráðs: “Fræðsluráð samþykkir að setja pannavöll á skólalóð Áslandsskóla. Fræðsluráð tekur jafnframt heilshugar undir mikilvægi þess að bæta útileikaðstöðu fyrir börn í Áslandsskóla. Vinnu við þá framkvæmd er vísað til umhverfis- og framkvæmdasviðs með ósk um að skólalóðin verði endurnýjuð á næsta fjárhagsári í samvinnu við FM hús. Fræðsluráð leggur áherslu á að hönnun og vinna verði gerð í samráði við skólastjórnendur Áslandsskóla, nemendaráð, foreldra, umhverfis- og framkvæmdasvið og ekki síst húseigenda, enda ber honum samkvæmt samningi að viðhalda og endurnýja leiktæki á skólalóðinni.”
Fulltrúi Samfylkingar tekur undir bókun fulltrúa foreldraráðs sem lögð var fram í fræðsluráði þann 7.10.2020. Þar sem bent er á brýna þörf þess að gera heildstæða úttekt á öllum skólalóðum í Hafnarfirði og bregðast við og gera endurbætur við fyrsta tækifæri. Með heilstæðri úttekt og metnaðaðarfullri endurbótaáætlun getum við bætt leiksvæði skóla í Hafnarfirði og stutt þannig við áherslur bæjarins sem Heilsubæ. Öflug og fjölbreytt leiksvæði styðja gott skólastarf innan og utan veggja skólanna.
Fulltrúar umhverfis- og framkvæmdaráðs taka undir bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og fela sviðinu að gera heildstæða úttekt á skólalóðum og taka upp viðræður við eigendur skólans um staðsetningu á pannavelli á skólalóðinni.
Tekin til umræðu á ný gönguleið í Gráhelluhrauni.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur áherslu á að aðgengi ólíkra hópa í upplandi Hafnarfjarðar sé í samræmi við skipulag og vill árétta að varúð og tillitsemi sé viðhögð á göngustígum sem þvera reiðleiðir í nágrenni við athafnasvæði Hestamannafélagsins Sörla sem og annars staðar í upplandinu. Sérstaklega eru reiðhjólamenn og þeir sem aka um á vélbúnum tækjum minntir á mikilvægi þess að taka tillit til hestamanna í upplandi Hafnarfjarðar. Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir samvinnu við Hestamannafélagið Sörla um endurskoðun á grunnreiðleiðum í nágrenni við athafnasvæði félagsins og tengingar við lengri reiðleiðir.
Tekið fyrir að nýju erindi Sörla vegna viðhalds og framkvæmda á reiðstígum í upplandi Hafnarfjarðar.
Tekið fyrir að nýju erindi Íshesta, Hraunhesta og Skátafélagsins Hraunbúa varðandi afnot af beitalandi í Kjóadal.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að auglýsa beitarhólf í Kjóadal.
Tekin til umræðu frétt um dreifingu moltu í Krýsuvík. Svæðið er innan sveitarfélagsmarka Hafnarfjarðar,
Umhverfis- og framkvæmdaráð vill árétta að leita þarf samþykkis landeigenda vegna aðgerða í landi Hafnarfjarðar af hvaða toga sem þær aðgerðir eru og felur sviðstjóra að koma athugasemdum til þeirra aðila sem stóðu að dreifingu á moltu í landi bæjarins í heimildarleysi.
Tekið fyrir að nýju erindi frá OSS rafrennur ehf. varðandi ósk um samstarf við sveitarfélagið vegna rafhlaupahjóla og rafhjólaleigu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og vísar nánari útfærslu varðandi leyfi fyrir staðsetningu og aðstöðu til sviðsins. Umsókn um fjárhagslegan stuðning er hafnað.
Tekið fyrir að nýju bréf dags. 12.10.2020 frá HS veitum þar sem tilkynnt er um ákvörðun stjórnar HS veitna þann 9.10.2020 um að hætta þjónustu vegna uppsetningu og reksturs gatnalýsingar. Lagt fram svar Hafnarfjarðarbæjar dagsett 22. október 2020.
Lagt fram.
Lagt fram bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi akstur minni vagna á innanbæjarleiðinni.
Lögð fram tilboð sem bárust í verkið Reykjavíkurvegur, endurnýjun fráveitulagna. Tilboð bárust frá 6 aðilum.
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar sviðinu að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
Lögð fram umsögn bæjarminjavarðar.
Lagt fram erindi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem óskað er eftir afstöðu Hafnarfjarðarkaupstaðar um hugsanlega breytingu á heilbrigðiseftirlitssvæðum. Bæjarráð vísaði málinu þann 22.10.2020 til umhverfis- og framkvæmdaráðs til umsagnar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að ósk sveitarfélaganna Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar um að vera bætt við starfssvæði heilbrigðiseftirlitssvæðis (Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis)verði samþykkt.
Lagður fram tölupóstur dags. 22.10.2020 frá Umhverfisstofnun þar sem tilkynnt er um útgáfu starfsleyfis fyrir jarðgerðarstöð SORPU í Álfsnesi og bent á kærurétt.
Lögð fram fundargerð 435. fundar.
Lögð fram fundargerð framkvæmdahóps dags. 21.10.2020.