In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Lögð fram bókun Hafnarstjórnar frá 3.6.2020 varðandi sjóvarnir við Norðurbakka. “Hafnarstjórn samþykkir að láta hanna útfærslu grjótvarnar við Norðurbakka og undirbúa útboð á verkinu. Verkið verði unnið í nánu samstarfi við framkvæmdasvið bæjarins.”
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leiti fyrirhugaðar endurbætur á Norðurbakka sem felur í sér gerð sjóvarnargarðs við þil Norðurbakka.
Helgi Þ Ingason framkvæmdastjóri Sorpu mætir til fundarins og kynnir verkefnið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og felur sviðinu að undirbúa heimsókn í Gaia í ágúst.
Lögð fram til kynningar drög að skipulagslýsingu aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna endurskoðunar. Skipulags- og byggingarráð óskar umsagnar nefnda og ráða til umsagnar og kynningar á fundi sínum þann 19. maí síðastliðinn.
Lagt fram.
Lögð fram tillaga að gróðri.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagða tillögu um endurnýjun götutrjáa og gróðursetningu á gráreyni við Strandgötu 31-33.
Tekið fyrir að nýju.
Fyrir liggur beiðni um áhættumat á þeim hluta Bláfjallavegar sem nú sætir tímabundinni lokun og óskað er eftir að vinnu við það verði flýtt. Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar jafnframt eftir að Vegagerðin framkvæmi kostnaðarmat vegna endurbóta á þeim veghluta Bláfjallavegar sem samþykkt var að loka tímabundið vegna vatnsverndar og fyrirhugaðrar uppbyggingu á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Kostnaðarmatið taki mið af því að þessi hluti Bláfjallavegar verði endurbættur með sama verklagi og fyrirhugað er að gera á þeim hluta vegarins sem er opinn frá Suðurlandsvegi. Ennfremur að framkvæmt verði nýtt áhættumat sem taki mið af endurbættum vegarhluta með tilliti til vatnsverndar, nýtingar og almannavarna.
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við framlagða viðbragðsáætlun og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagt fram bréf Brynjars Þórs Þorsteinssonar fh. íbúa við Klukkuvelli vegna ónæðis sem tímajöfnunarstöð Strætó bs. við Klukkuvelli veldur.
Lagt fram kostnaðarmat sem gert var í aðdraganda fjárhagsáætlunar.
Erindi frestað.
Kynnt staða á ruslatunnum í bænum.
Lagt fram erindi N4 varðandi boð í Garðarölt sem væri tekið upp í Hafnarfirði.
Tekin til umræðu bókun sem lögð var fram á fundi ráðsins þann 3.6.2020 þar sem lagt er til að Hafnarfjarðarbær móti skýra stefnu um bæjartré, staðsetningu trjáa í bæjarlandinu, hvaða tegundir henta á hverjum stað og forgangsröðun ræktunarsvæða. Bent var á stefnu Reykjavíkurborgar um trjárækt til hliðsjónar. Lagt var til að stefnan yrði hluti af Umhverfisstefnu Hafnarfjarðarbæjar, nr 6.7, við næstu endurskoðun hennar. Bent var á kosti trjáræktar í bæjum þar sem þau grípa svifryk, lækka umferðarhraða, auka skjól og bæta þannig veðurgæði.
Tekið til umræðu uppsetning á öryggismyndavél í þágu öryggis- og eignavörslu.
Lögð fram umsókn um leyfi til Kayak siglinga á Hvaleyrarvatni.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að óska eftir umsögnum hagsmunaaðila.
Lagt fram svar Vegagerðarinnar varðandi vetrarþjónustu á Krýsuvíkurvegi.
Tekið til umræðu viðurkenningar til íbúa og fyrirtækja um fallega og vel hirta garða, götur, opin svæði og stofnanalóðir.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að óska eftir ábendingum um fallega og vel hirta garða, götur, opin svæði og stofnanalóðir vegna Snyrtileikinn 2020.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. nr. 324.
Lögð fram fundargerð stjórnar Sorpu bs. nr. 427.
Lagðar fram fundargerðir framkvæmdahóps nr. 3 og 4.
Lögð fram fundargerð framkvæmdahóps nr. 1.