Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Umhverfis- og framkvæmdaráð

8. April 2020 08:15

á fjarfundi

Meeting 351

Attended

  • Helga Ingólfsdóttir formaður
  • Árni Rúnar Árnason varaformaður
  • Skarphéðinn Orri Björnsson aðalmaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Arnhildur Ásdís Kolbeins aðalmaður
  • Helga Björg Arnardóttir áheyrnarfulltrúi
  • Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þann 18. mars 2020 með vísan VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 að heimilt sé að halda fundi bæjarstjórnar, ráða og nefnda í fjarfundi.

Secretary

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þann 18. mars 2020 með vísan VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 að heimilt sé að halda fundi bæjarstjórnar, ráða og nefnda í fjarfundi.

  1. Almenn erindi

    • 2003508 – Covid 19, aðgerðaráætlun

      Lögð fram aðgerðaráætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar vegna Kórónuveirufaraldursins-fyrstu aðgerðir sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. apríl 2020. Vísað var til ráðsins liðum 3, 4 og 7.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð bókar eftirfarandi:
      Liður 3
      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að gera tillögur til þess að lækka rekstrarkostnað ársins með áherslu á þjónustu sem ekki er lögbundin.
      Liður 4
      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að taka saman lista yfir eignir sem hægt er að setja í söluferli. Hverri eign og tillögu skal fylgja umsögn.
      Liður 7
      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að gera þrjár sviðsmyndir um mögulegar viðbótarframkvæmdir á sviði nýfjárfestinga og viðhalds í samráði við fjármálasvið.

    • 2004063 – Umhverfis- og skipulagssvið, viðbragðsáætlanir - aðgerðaráætlanir

      Kynntar aðgerðaráætlanir.

      Lagt fram.

    • 1902408 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2020 og 2021-2023

      Kynnt staða rekstrarliða.

      Lagt fram.

    • 2003461 – Hamranes, jarðvegstippur

      Lagt fram erindi Gröfu og grjót varðandi móttöku jarðefna í Hafnarfirði til endurvinnslu.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og felur umhverfis- og skipulagssviði að hefja viðræður við Gröfu og grjót vegna erindisins.

    • 1912185 – Ásvallabraut, útboð

      Lögð fram niðurstaða útboðs á Ásvallabraut.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar umhverfis og skipulagssviði að leita samninga við lægstbjóðandi, Snókur ehf.

    • 2003582 – Krýsuvík meðferðarheimili, skógrækt

      Lagt fram erindi Meðferðarheimilisins í Krýsuvík þar sem óskað er eftir landsvæði fyrir skógrækt.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og felur umhverfis- og skipulagssviði að hefja viðræður við Meðferðarheimilið Krýsuvík vegna erindisins.

    • 1912184 – Vorhreinsun 2020

      Tekið til umræðu.

      Tekið til umræðu breytt fyrirkomulag vorhreinsunar vegna stöðunnar í samfélaginu.

    Fundargerðir

Suggestion portal