In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.
Umsókn Sigurbjörns Viðars Karlssonar og Svandísar Eddu Gunnarsdóttur um lóðarstækkun á lóðinni Lækjarhvammi 1 dags. 30.09.2019 er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarráðs. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 17.12.2019 var samþykkt að grenndarkynna erindið og tillögu að breytingu á deiliskipulagi með vísan til 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindið var grenndarkynnt frá 21.01.-18.02.2020. Athugasemdir bárust. Samantekt skipulagsfulltrúa dags. 27.2.2020 vegna framkominna athugasemda lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir lóðarstækkunina fyrir sitt leyti og vísar erindinu til bæjarráðs.
Skipulags og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 10.9.2019 að auglýsa framlagða deiliskipulagstillögu í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykki afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs á fundi sínum þann 18.9.2019 með 9 greiddum atkvæðum. Tillagan var auglýst tímabilið 11.11.-23.12.2019. Ein athugasemd barst. Á fundi skipulags- og byggingarráðs dags. 14.1.2020 var skipulagsfulltrúa falið að taka saman greinargerð vegna framkominna athugasemda. Greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 06.03.2020 lögð fram.
Greinagerð skipulagsfulltrúa gerir góða grein fyrir ferli deiliskipulagsins. Í greinagerðinni kemur fram að gott samráð hefur verið haft við íbúa um deiliskipulagstillöguna m.a. með íbúafundi. Einnig að leitað hafi verið umsagnar Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar og að brugðist hafi verið við ábendingum þeirra. Skipulags- og byggingarráð er sammála um að Ástjörnina og friðlandið við hana beri að vernda og bendir á að byggingarreitur knatthússins er allur innan lóðarmarka íþróttasvæðisins. Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Fulltrúi Viðreisnar í Skipulags og byggingarráði Hafnarfjarðar vill benda á að hluti samkomulags vegna uppbyggingar á svæði Hauka sem bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti virðist ekki vera í samræmi við lög. Í samkomulaginu er gefið upp að tekjur af gatnagerðagjöldum verði notaðar til þess að fjármagna íþróttahús Hauka. Nánar tiltekið segir í 4. grein samkomulagsins: 4. Tekjur af innheimtum lóðaverðum (gatnagerðargjald byggingarréttargjald) vegna hinnar nýju íbúðabyggðar á Ásvöllum verði nýttar til uppbyggingar knatthúss á Ásvöllum. Í 10. gr. laga um gatnagerðargjald 153/2006 segir um ráðstöfun gatnagerðargjalds: „Sveitarstjórn skal verja gatnagerðargjaldi til gatnagerðar í sveitarfélaginu og til viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja.“ Hafnarfjarðarbær hefur ekki lagaheimild til þess að skuldbinda sig í samningum til þess að ráðstafa gatnagerðargjaldi til annarra framkvæmda en gatnagerðar og viðhalds gatna. Er bæjarstjórn hvött til þess að afla lögfræðiálits um þennan hluta samkomulagsins við Hauka og ef ástæða reynist til, að uppfæra það sem fyrst til þess að tryggja að þetta verði ekki til þess að tefja verkefnið.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- og óháðra bóka eftirfarandi: Samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar og Knattspyrnufélagsins Hauka var á borði bæjarráðs þann 16. janúar 2020 og svo til endanlegrar staðfestingar í bæjarstjórn þann 22. janúar 2020. Hér á fundi skipulags- og byggingarráðs er til umræðu breyting á deiliskipulagi og svör skipulagsfulltrúa við þeirri athugasemd sem barst.
Nú tekur fulltrúi Viðreisnar upp á því um tveimur mánuðum eftir að samkomulagið við Knattspyrnufélagið Hauka var staðfest í bæjarstjórn Hafnarfjarðar að bóka um það samkomulag milli aðila ? þrátt fyrir að það mál sé ekki hér á dagskrá fundarins. Það er með ólíkindum að Viðreisn skuli nú á þessum tímapunkti gera tilraun til að leggja stein í götu Hauka til að hefja uppbyggingu á íþróttasvæði sínu.
Rétt er að ítreka að allt þetta ferli hefur verið í gangi í um tvö ár. Starfshópur hefur verið með málið á sínu borði og skilaði skýrslu sinni fyrir jól. Það var að frumkvæði Hauka ? og í samráði við bæjarfélagið – að hluta lóðar var skilað til bæjarins; á þeirri lóð stendur nú til að hefja kröftuga uppbyggingu um 100 íbúða og hefur það bæði farið í aðalskipulags- og deiliskipulagsferli. Slík uppbygging mun skila bæjarfélaginu tekjum, en rétt er að ítreka það að bæjarfélaginu er fullkunnugt um skyldur sínar þegar kemur að nauðsynlegum gatnagerðum á svæðinu.
Fulltrúi Viðreisnar í Skipulags og byggingarráði hafnar þeim gífuryrðum sem hér hafa verið látin fljóta. Fulltrúar Viðreisnar í bæjarstjórn, bæjarráði og skipulags- og byggingarráði hafa stutt þetta verkefni í gegnum allt skipulagsferlið og munu gera það áfram. Fulltrúum meirihlutans er bent á að lesa aftur bókun Viðreisnar þar sem skýrt koma fram áhyggjur af því að vinnubrögð við samningagerð á sínum tíma gætu tafið uppbyggingarferlið sem er framundan. Ekkert í bókun meirihlutaflokkanna svarar þeim ábendingum.
Skipulags- og byggingarráð samþykki á fundi sínum þann 11.02.2020 að unnið verði að deiliskipulagi sem byggir á tillögu A dags. 7.2.2020. Leitast verði við að bílastæðamál verði leyst innan lóðar og taki mið af stærð íbúða. Lögð fram tillaga að deiliskipulagi sem byggir á tillögu A. Helstu breytingar eru að í stað þriggja lóða er gert ráð fyrir fimm lóðum og mörk lóða breytast án þess að heildarstærð svæðis breytist. Nýbyggingar verða fjórar, tvö einbýli og tvö tvíbýli. Tillagan gerir auk þess ráð fyrir breytingu á gatnamótum Hlíðarbrautar og Hringbrautar vegna umferðaröryggis. Jafnframt er kynnt tillaga að breyttu aðalskipulagi reits S20.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögur að breyttu deiliskipulagi og aðalskipulagi og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar sbr. 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga.
Lögð fram skýrsla Eflu verkfræðistofu fyrir Skipulagsstofnunum um Mat á kolefnisspori á skipulagsstigi sem gefin var út í janúar 2020. Skýrslan var lögð fram á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 26.2. sl. og var vísað til vinnu umhverfis- og auðlindastefnu og til skipulags- og byggingarráðs.
Lagt fram.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykki á fundi sínum þann 04.07.2019 afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs um að hafin verði vinna við aðalskipulagsbreytingu á hafnarsvæðinu. Fyrir liggur rammaskipulag Flensborgarhafnar og nágrennis samþykkt í bæjarstjórn 5. feb. s.l. Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa dags. 09.03.2020 um áframhaldandi vinnu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hefja vinnu við breytt aðalskipulag hafnarsvæðis og að tekin verði saman lýsing vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar í samræmi við 30. og 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar Hafnarstjórnar.
Lagt fram erindi Minjastofnunar þar sem hvatt er til að hraða lögbundinni skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja á skipulagsreitnum Miðbær, Hraun vestur.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að lögbundinni skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja.
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Hagtaks hf. vegna byggingaráforma á lóðinni. Kynnt breytt tillaga ASK arkitekta að uppbyggingu Hvaleyrarbrautar 30.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og vísar til umsagnar Hafnarstjórnar.
Fyrirspurn ESAIT ehf. dags. 27.1.2020 er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa. Fyrirspurnin snýr að byggingu gistiheimilis að Norðurhellu 19.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og bendir á að grenndarkynna þarf tillöguna þegar hún berst skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga.
Lögð fram fundargerð 92. fundar SSK.
Lögð fram fundargerð 787. fundar.
Lögð fram fundargerð 788. fundar.