In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Guðbjörg Dögg Gunnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla, Anna Sigríður Þorsteinsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara,Arnrún Einarsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Sólveig Reynisdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla, Kristín Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Brúin kynning.
Fræðsluráð þakkar Huldu Björk Finnsdóttur deildarstjóra fjölskyldu- og skólaþjónustu Brúarinnar fyrir kynninguna. Einnig þakkar fræðsluráð starfsfólki leik- og grunnskóla og sérfæðingum fjölskyldu- og barnamálasviðs og mennta- og lýðheilsusviðs fyrir framsækna frumkvöðlavinnu við að endurhugsa og skipuleggja alla aðkomu sviðanna beggja og öflugt samstarf við snemmbæran stuðning við börn og ungmenni í Hafnarfirði. Verklag Brúarinnar er frumkvöðlastarf sem eftir er tekið og mikilvægt skref í farsæld og velferð framtíða kynslóða. Fræðsluráð er stolt af vinnu Hafnarfjarðar við innleiðingu nýrrar hugsunar í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
Lögð fram að nýju drög að reglum um skólavistun í grunnskólum Hafnarfjarðar fyrir börn úr öðrum sveitarfélögum.
Fræðsluráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að verklagsreglum um skólavist hafnfirskra grunnskóla fyrir börn úr öðrum sveitarfélögum og vísar til frekara samþykkis í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Lögð fram að nýju tillaga að gjaldskrá fyrir skólavist í grunnskólum Hafnarfjarðar fyrir börn úr öðrum sveitarfélögum.
Fræðsluráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir skólavist í grunnskólum Hafnarfjarðar fyrir börn úr öðrum sveitarfélögum og vísar til frekara samþykkis í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Lagt fram bréf leikskólastjóra Álfabergs þar sem óskað er eftir tilfærslu á skipulagsdögum. Samþykki foreldraráðs fylgir með.
Samþykkt.
Á fundi bæjarstjórnar þ. 29. september sl. var eftirfarandi tekið fyrir og samþykkt að vísa til fræðsluráðs:
Tillaga 5. Ungmennaráð leggur til að boðið verði upp á myndlistanámskeið fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði
Hafnfirskir unglingar hafa ekki nægan aðgang að myndlistanámi. Þau þurfa að sækja myndlistanámskeið til annarra sveitarfélaga. Þá bjóða ekki allir grunnskólar upp á myndlistakennslu upp að 10. bekk. Í Hafnarfirði er fjöldi hæfileikaríkra ungmenna sem geta ekki þroskað hæfileika sína vegna skorts á tækifærum. Bæta þarf aðgengi 12 til 16 ára ungmenna í Hafnarfirði að myndlistanámi.
Fræðsluráð vísar tillögu ungmennaráðs til mennta- og lýðheilsusviðs. Óskað er eftir samantekt sviðsins á núverandi aðgengi ungmenna að myndlistarnámi í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Erindi: Tillögur ungmennaráðs 2021 Foreldraráð fagnar tillögum ungmennaráðs og gleðst yfir því að ungt fólk nýti tækifærin sem gefast til að taka þátt í lýðræðislegu samfélagi. Foreldraráð gleðst einnig yfir því að bærinn okkar skuli veita ungu fólki rödd og taki til skoðunar þau mál sem á þeim brennur. Samfélag sem hefur sjónarmið allra að leiðarljósi verður ósjálfrátt það samfélag sem allir einstaklingar fá að blómstra og þannig sköpum við jöfnuð. Fh. foreldraráðs grunnskólabarna Kristín Blöndal Ragnarsdóttir
Á fundi bæjarstjórnar þ. 29.september sl. var eftirfarandi tekið fyrir og samþykkt að vísa til fræðsluráðs:
Tillaga 4. Ungmennaráð leggur til að ráðist verði í endurskoðun á sundkennslu í grunnskólum Hafnarfjarðar
Í bréfi til Mennta- og menningarmálaráðherra þann 18. júní síðastliðinn hvatti Umboðsmaður barna til þess að sundkennsla á unglingastigi í grunnskólum verði endurskoðuð. Þar kom fram að í samtölum umboðsmanns við fjölbreyttan hóp barna um allt land hafa mörg börn kallað eftir því að gerð verði breyting á fyrirkomulagi sundkennslu í efstu bekkjum grunnskóla, m.a. með þeim hætti að sundkennsla verði gerð valkvæð að einhverju leyti. Sumir nemendur telja sig eiga erfitt með að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra í sundtímum ásamt því að margir nemendur, sér í lagi hinsegin börn, hafa lýst upplifun sinni af einelti og áreitni í sundkennslu.
Fræðsluráð vísar tillögu ungmennaráðs um endurskoðun á sundkennslu í grunnskólum til umfjöllunar í foreldraráði grunnskóla og mennta- og lýðheilsusviðs.
Á fundi bæjarstjórnar þ. 29.september sl. var eftirfarandi tekið fyrir og samþykkt að vísa til fræðlsuráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs:
Tillaga 8. Ungmennaráð leggur til að aðstaða nemenda verði bætt í grunnskólum Hafnarfjarðar
Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar hafa ekki nægilega góða aðstöðu til náms eða frítima utan kennslustunda. Til dæmis í Víðistaðaskóla eru göt á borðum, stólar í kennslustofu eiga til að detta í sundur og í frímínútum eiga nemendur enga aðstöðu til að setjast niður nema á gólfinu. Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar eiga betra skilið.
Fræðsluráð tekur jákvætt í tillögu ungmennaráðs og vísar til umfjöllunar í fjárhagsáætlun ársins 2022.
Tillaga 6. Ungmennaráð leggur til að ráðist verði í úttekt á stöðu jafnréttisfræðslu í grunnskólum Hafnarfjarðar
Kynjafræðsla eykur vitund ungmenna um marg- og fjölbreytileika mannlífsins, auk þess sem hún stuðlar að heilbrigðum samskiptum kynja með áherslu á mikilvægi samþykkis og gagnkvæmrar virðingar í daglegu lífi. Það er mismunandi hversu mikil áhersla er lögð á jafnréttisfræðslu innan skólanna og mikilvægt að gerð verði úttekt á fræðslunni til að hægt sé að bæta hana þar sem þörf er á.
Fræðsluráð tekur undir með ungmennaráði um mikilvægi þess að kynfræðsla verði aukin í grunnskólum Hafnarfjarðar og vísar tillögu til umræðu við gerð fjárhagsáætlun ársins 2022 og inn í forvarnarteymi grunnskólanna.
Tillaga 2. Ungmennaráð leggur til að aðgengi að ókeypis tíðavörum verði tryggt í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar Í mars 2021 samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur, að frumkvæði ungmennaráða Reykjavíkur, að bjóða nemendum upp á ókeypis tíðavörur í öllum grunnskólum og félagsmiðstöðvum borgarinnar. Frá árinu 2018 hefur tilraunaverkefni með ókeypis tíðavörur í tveimur skólum borgarinnar gefist vel og þykir þeim nemendum sem hafa blæðingar öryggi í því að geta gengið að tíðavörum vísum. Ungmennaráð hvetur bæjarstjórn Hafnarfjarðar til að fylgja frumkvæði Reykjavíkurborgar og bjóða upp á ókeypis tíðavörur í öllum grunnskólum bæjarins.
Fræðsluráð samþykkir tillögu ungmennaráðs um frjálst aðgengi að tíðarvörum í grunnskólum og samþykkir að fundin verði leið í hverjum grunnskóla svo tíðarvörur verði aðgengilegar á að minnst einu salerni í hverjum skóla strax nú á haustdögum 2021. Sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs falið að vinna að frekari útfærslu í samvinnu við skólastjórnendur hvers skóla.
Tillaga 3. Ungmennaráð leggur til að hugað verði betur að líðan og andlegri heilsu ungmenna í bænum Undanfarið eitt og háflt ár hefur verið mörgum erfitt og margt sem bendir til þess að andleg heilsa ungmenna fari versnandi. Upplifun margra ungmenna er að námsálag í skólanum geri slæma stöðu enn verri. Ungmennaráð Hafnarfjarðar hvetur bæjarstjórn til að leita leiða til að draga úr námsálagi og grípa til aðgerða til að bæta andlega líðan ungmenna í Hafnarfirði.
Fræðsluráð vísar tillögu ungmennaráðs um að hugað verði betur að líðan og andlegri heilsu ungmenna í bænum og óskar eftir samantekt á þeim aðgerðum, verkefnum og vinnu sem nú þegar er í gangi á sviðinu.
Lagt fram til umræðu.
Fræðsluráð vísar málinu til sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs milli funda og óskar eftir því að tillagan sé kynnt á stjórnendafundi leikskóla.
Fræðsluráð vísar málinu til sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs milli funda og óskar eftir því að tillagan sé kynnt á stjórnendafundi grunnskóla.
Tölvubúnaður leikskóla.
Fræðsluráð óskar eftir því að kannaður verði tölvubúnaður á sameiginlegum vinnusvæðum leikskólastarfsmanna og vísar málinu til sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs
Lögð fram eftirfarnadi fyrirspurn fulltrúa Samfylkingar.
1. Hve margir leikskólakennarar hafa sagt upp það sem af er ári. 2. Hve margir með aðra menntun en leikskólakennaramenntun hafa sagt upp á árinu. 3. Hve margir starfsmenn eru á leikskólum í Hafnarfirðir í dag. 4. Eru einhverjir leikskólar sem ekki eru fullmannaðir/ ekki hefur tekist að ráða inn. 5. Hve margir leikskólakennarar starfa á leikskólum bæjarins í dag. 6. Hve margir af þeim sem hafa sagt upp en eru ennþá starfandi eru inni í tölunum um fjölda leikskólakennara í dag.
Fulltrúi Samfylkingar óskar eftir svörum við þessari fyrirspurn sem send var Mennta- og lýðheilsusviði 3. maí síðastliðinn.