In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Sigurður Nordal sviðsstjóri.
Til umræðu.
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að gera tillögur að endurbótum á lóðum og byggingum Skarðshlíðar íbúðafélags við Hádegisskarð 12 og 16.
Tekið fyrir, til afgreiðslu.
Síðustu mánuðir í heimsfaraldri hafa haft veruleg áhrif á aksturþjónustuna frá upphafi samningstímans og hafa áhrifin varað lengur en gert var ráð fyrir og vonir stóðu til. Hér er um viðkvæma og mikilvæga þjónustu að ræða sem brýnt er að haldi hnökralaust áfram. Bæjarráð veitir fjármálastjóra bæjarins heimild til að ganga frá endanlegu samkomulagi í samræmi við það sem fram kemur í fyrirliggjandi minnisblaði.
Til upplýsinga.
Bæjarstjóra falið að halda áfram að vinna að málinu.
Til úthlutunar.
Bæjarráð samþykkir að lóðin verði auglýst til úthlutunar og óskað er eftir að greinargerð fylgi umsókn.
Lagt fram erindi frá Stólpi gámar ehf varðandi nýtt athafnasvæði fyrir starfsemina.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Lögð fram viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði fyrir Tækniskólann sem undirrituð var 7. júlí sl.
Bæjarráð fagnar viljayfirlýsingu milli ríkisins, Tækniskólans og Hafnarfjarðarbæjar um að framtíðarhúsnæði skólans verði í Hafnarfirði. Með nýrri skólabyggingu er ætlunin að sameina starfsemina undir einu þaki, í nútímalegu húsnæði sem uppfyllir þarfir skólans og nemenda hans. Bæjarráð telur fyrirhugaða byggingu falla vel að því rammaskipulagi sem liggur fyrir á hafnarsvæðinu og að tilkoma skólans yrði mikil lyftistöng fyrir bæjarfélagið.
Fulltrúi Viðreisnar óskar eftir því að upplýst verði um söluverðmæti lóðarinnar sem Hafnarfjarðarbær leggur til ásamt því að upplýst verði hversu mikill annar kostnaður gæti numið sem gæti fallið á Hafnarfjarðarbæ vegna verkefninsins.
Fulltrúi Samfylkingarinnar óskar bókað: Það er mikið fagnaðarefni að Tækniskólinn sjái Hafnarfjörð fyrir sér sem ákjósanlegan stað fyrir framtíðarhúsnæði skólans. Erindi frá skólanum var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 11. febrúar sl. þar sem ákveðið var að fela utanaðkomandi aðila verkefnastjórn varðandi samningaviðræður við lóðarhafa og fulltrúa skólans. Málið hefur ekki komið inn á borð bæjarráðs síðan en nú er lögð fram undirrituð viljayfirlýsing milli Tækniskólans og Hafnarfjarðarbæjar um samstarf um framtíðarhúsnæði. Ýmsu er þó ósvarað um fjármögnun verkefnisins, kostnaðarþátttöku ríkisins og eignarhald. Þá hefur ekki komið fram hvernig viðræður við lóðarhafa hafa þróast. Allt voru þetta þó atriði sem bæjarráð var sammála um að mikilvægt væri að kæmu fram áður en lengra væri haldið. Fulltrúi Samfylkingarinnar óskar eftir að þau gögn sem þegar liggja fyrir verði birt bæjarráði og leggur áherslu á að næstu skref verði unnin á opinn og lýðræðislegan hátt þannig að fulltrúar allra flokka sem sæti eiga í bæjarstjórn séu upplýstir um framgang verkefnisins.
Lögð fram yfirlýsing ríkis og Reykjvíkurborgar dags. 6. júlí sl. vegna lagningu Sundabrautar.
Lagt fram.
Lagt fram erindi frá Samfés varðandi framtíðarhúsnæði fyrir samtökin og starfsemi SamfésPlús.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umsagnar hjá mennta- og lýðheilsusviði og inn í vinnu stýrihóps um Menntasetrið við Lækinn.
Lögð fram fundargerð stýrihóps frá 23. júní sl.
Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 30. júní sl.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 28. maí og 24. júní sl.
Lögð fram fundargerð 33. eigendafundar Sorpu bs. frá 29. júní sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 5. júlí sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 11. júní sl.