In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
á fjarfundi
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri, Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Ívar Bragason bæjarlögmaður.
Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Höfðaskógar og Hvaleyrarvatns dags. 30.3.2021. Markmið breytingarinnar felst m.a. í að bæta aðkomu að Hvaleyrarvatni og aðstöðu til útivistar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að breyttu deiliskipulagi Höfðaskógar og Hvaleyrarvatns, reitur 2 og 3, verði auglýst. Gert verður ráð fyrir bílastæðum hreyfihamlaðra norðan við vatnið með aðgangsstýringu. Málsmeðferð fari skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Kópavogsbær og Reykjavíkurborg hafa samþykkt að kynna drög að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélaganna vegna Borgarlínu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum er til 30. apríl n.k.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman umsögn.
Lagt fram til kynningar rannsóknarverkefni er snýr að hugmyndum um framtíðar uppbyggingu sögulegs miðbæjar.
Lagt fram til kynningar.
Örugg verkfræðistofa kynnir hermun á vindi með áherslu á gæði byggðar. Hermun á vindi sýnir samspil bygginga og vinda úr öllum vindáttum þar sem fyrirkomulag bygginga hefur mikil áhrif á vindafar á svæðinu og segir þar af leiðandi mikið til um gæði svæðanna.
Skipulags- og byggingarráð þakkar Herði Páli Steinarssyni fyrir kynninguna.
Á fundi bæjarstjórnar þann 3. feb. s.l. var samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarstækkunar til norðurs að sveitarfélagsmörkum Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Tillaga að breyttu deiliskipulagi var auglýst frá 15.02. til 29.03.2021. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að erindinu verði lokið í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
Tekið til umræðu breyting á aðalskipulagi og deiliskipulagi Selhrauns suður. Skipulagsfulltrúi gerir grein fyrir erindinu.
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu deiliskipulag Áslands 4 og Áslands 5. Skipulagsfulltrúi gerir grein fyrir erindinu.
Tekið til umræðu deiliskipulag Miðbæjar, reits 1. Skipulagsfulltrúi gerir grein fyrir erindinu.
Tekið fyrir að nýju erindi Basecamp Iceland ehf. um stuðning til frekari uppbyggingar á aðstöðu til norðurljósa- og stjörnuskoðunar við Snókalönd. Skipulags- og byggingarráð tók jákvætt í erindið á fundi sínum þann 23.3.2021 og fól umhverfis- og skipulagssviði að taka saman umsögn. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags 7. apríl 2021 lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa og að unnin verði breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar í samræmi við ofangreint og vísar til samþykktar í bæjarstjórn sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Í bréfi dags. 6. apríl sl. frá Skipulagsstofnun kemur fram að stofnunin felst ekki á að málsmeðferð um breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar, vegna heimildar til að leigja út frístundahús í atvinnuskyni í Sléttuhlíð, geti verið í samræmi við 2. mgr. 36 gr. skipulagslaga heldur skuli fara með skipulagstillöguna skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga sem er veruleg breyting á aðalskipulagi. Umsögn Skipulagsstofnunar lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Tekin til umræðu á ný umferðarmál í Norðurbæ vegna lokunar gamla Álftanesvegar.
Skipulags- og byggingarráði þykir miður að bæjarráð Garðabæjar sjái ekkert athugavert við lokun gamla Álftanesvegar við gatnamót Herjólfsbrautar. Með þeirri aðgerð er Garðabær að loka á eigin íbúa í Hleinahverfi svo og íbúa og starfsmenn Hrafnistu auk íbúa í Norðurbæ. Skipulags- og byggingarráð leggur til að efnt verði til íbúafundar sem verði streymt sem allra fyrst þar sem minnisblað EFLU verður kynnt auk mögulega mótvægisaðgerða vegna lokunar gamla Álftanesvegar við Herjólfsbraut.
Lögð fram að nýju fyrirspurn frá fulltrúa Samfylkingarinnar.
Kynnt drög að svari við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar.
Lögð fram til kynningar fundargerð 828 fundar.
Lögð fram til kynningar fundargerð 829 fundar.
Lögð fram til kynningar fundargerð 830 fundar.