In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Höfnin mun styrkja samspil hafnar og bæjar með áherslu á mótun strandlengjunnar, bættum tengingum að miðbæ og þéttingu byggðar við höfnina. Almenningsrýmið er límið í skipulaginu á milli mismunandi þróunarreita og myndar samfellda byggð. Skipulaginu er ætlað að standast tímans tönn og á sama tíma vera sveigjanlegt. Gert er ráð fyrir almenningssvæði í háum gæðaflokki, fjölbreyttri atvinnu og íbúðum í nánum tengslum ásamt afþreyingu. Þannig mun höfnin laða að sér öflugt mannlíf sem stuðlar að bættri notkun og upplifun.
Á Óseyrarsvæðinu, þar sem áður var iðnaðarhverfi, er fyrirhuguð íbúðabyggð sem hefur góða tengingu við sjóinn, Slippsvæðið og miðbæinn. Einnig verður gott aðgengi að almenningssamgöngum. Þar verður hægt að bjóða upp á fjölbreyttar gerðir íbúða þar sem áhersla verður lögð á gott aðgengi hjólandi og gangandi umferðar með góðum skjólgóðum inngörðum, en bílastæði á íbúðasvæðinu eru að mestu í bílageymslum í kjallara. Á Flensborgarhafnarsvæðinu, frá Kænunni til nýrrar Hafróbyggingar, verður möguleiki á blandaðri starfsemi í hvaða formi sem er.
Slippsvæðið, frá Fornubúðum í átt að miðbænum, er hugsað sem blönduð byggð þar sem gert er í meginatriðum ráð fyrir starfsemi á neðri hæðum og íbúum eða skrifstofum á efri hæðum. Lögð er áhersla á lága byggð með ásættanlegu byggingarmagni og kvarða húsa í takt við sérkenni Hafnarfjarðar. Unnið er út frá því að greiðar göngu- og hjólaleiðir séu um svæðið til að tengja Strandstíginn við Fjarðargötuna, alveg frá Norðurbakkanum að Fornubúðum í gegnum Slippsvæðið. Gert er ráð fyrir að almennings-stoppistöð sé á móti Slippsvæðinu sem þjónustar íbúa, atvinnustarfssemi og ferðamenn sem heimsækja svæðið.
Á Slippsvæðinu er gert ráð fyrir skjólgóðu hafnartorgi með útsýni yfir smábátabryggjuna og miðbæinn en þær nýbyggingar sem verða á svæðinu skapa möguleika á fjölda veitingahúsa, kaffihúsa og afþreyingar af ýmsu tagi. Möguleikar á gosbrunni, leiktækjum fyrir börn og aðlaðandi setsvæði verður á torginu en torgið er hugsað til að styrkja svæðið og möguleika Hafnfirðinga til að heimsækja höfnina. Þá er einnig hugað að menningarminjum og lagt til að minningin um slippinn verði með einum eða öðrum hætti gerð skil.
Siglingarklúbburinn færist nær miðbænum og aukast þá möguleika þeirra til að stækka og dafna. Á því svæði er einnig lagt til að setja opna heita potta og skapa þannig möguleika á að nýta svæðið til frekari tækifæra í takt við núverandi tíðaranda eins og sjósund eða böð. Mikil áhersla er lögð á að tengja vel miðbæinn við höfnina með gróðri, bekkjum, göngustígum og möguleikum á veitinga- og kaffihúsum sem taka á móti gestum og gangandi. Væntingar eru til að á svæðinu dafni matarmarkaður og skapandi starfsemi í bland við iðandi mannlíf og íbúa. Hafnfirsku trillurnar eiga enn sinn stað og verður bryggjum fyrir smábáta fjölgað í átt að miðbænum sem enn frekar dregur upp það mannlíf og þau sérkenni sem einkennir sögu Hafnarfjarðar.