In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Hugmyndavinna er snýr að deiliskipulagi Vesturbæjar hefur verið í kynningu til íbúa í upphafi árs 2020. Þegar nýtt eða endurskoðað deiliskipulag er unnið fer annars vegar fram húsakönnun og hins vegar fornleifaskoðun, sem Minjastofnun síðan samþykkir. Byggðasafn Hafnarfjarðar og Gláma·Kím arkitektar hafa unnið að húsakönnun fyrir Vesturbæinn þar sem öll hús innan skipulagssvæðisins eru skráð. Húsakönnunin verður gerð aðgengileg fyrir íbúa þegar þar að kemur en verið er að leggja lokahönd á þá vinnu.
Skýrsla frá Fornleifastofu
Þegar hafa verið haldnir nokkrir kynningarfundir um endurskoðun á deiliskipulagi:
Kort af vesturbænum
Úr kynningunni um Vesturbæ sem verndarsvæði
Skipulagsvinnan hófst árið 2016, sem gengur út á endurskoðun deiliskipulags Vesturbæjar. Stefnt er að því að hluti innan skipulagssvæðisins verði að Verndarsvæði í byggð í samræmi við lög nr 87/2015. Markmið verndarsvæðisins er að stuðla að vernd og varðveislu byggðar sem hefur sögulegt gildi. Í samræmi við lög um verndarsvæði, sem tóku gildi 2015, verðum við sem sveitarfélag að finna stað sem við ætlum að horfa til að verði verndarsvæði í byggð. Þá fannst okkur tilvalið að velja Vesturbæinn því hann er einstakur á landsvísu.
Með verndarsvæði í byggð er verið að búa til nokkurs konar uppskrift og fólk geti leitað sér upplýsinga og skoðað leiðbeiningarit þannig að hægt sé að fara réttu leiðina í að breyta og bæta. Það er sama hvort hús er byggt 1880 eða 2000, það þarf alltaf að fá leyfi til að breyta húsum. Í Vesturbænum eru nú þegar fjöldi húsa sem falla undir lög um menningarminjar.
Byggingarár húsa í Vesturbæ
Hús byggð 1925 og fyrr eru umsagnarskyld. Minjastofnun Íslands veitir umsögn sem er leiðbeinandi. Hús sem hafa náð 100 ára aldri eru friðuð og ekki er heimilt að samþykkja breytingar á þeim nema með samþykki MÍ. Síðan eru það friðlýstu húsin, en öll hús sem voru friðuð fyrir gildistöku nýrra laga árið 2013 falla í þennan flokk. Hús eru friðlýst með undirskrift ráðherra að undangenginni tilheyrandi forvinnu. Friðlýst hús eru óháð aldri en hafa e.t.v. sögulegt gildi eða teljast hátt skrifuð út frá byggingarlist. Friðun húsa hafi oft verið mistúlkuð sem eitthvað slæmt en í raun setji friðun húsa þau á ákveðinn stall. Þar sem slíkum húsum er vel við haldið hefur það haft áhrif á jafnvel söluverð annarra eigna í sömu götu. Um það eru til ýmsar skýrslur erlendis frá sem sýna fram á gildi byggingararfsins. (Realdania; værdien af bygningsarven mars 2015).
Töluvert er um að fólk vilji breyta húsum á þessu svæði, t.d. stækka pínulítil timburhús þegar nútíma-heimilistæki komast ekki inn í rýmin. Það er líka húsvernd að koma slíku í farveg þar sem húsvernd getur líka falist í því að húsin eru í notkun, gegna ákveðnu hlutverki. Við endurskoðun deiliskipulags þarf m.a. að skoða þessa þætti, hvar sé mögulegt að byggja við og með hvaða hætti. Síðan þarf deiliskipulagið og Verndarsvæði í byggð að haldast í hendur.
Hér hefur verið vel að verki staðið