Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

6. October 2011 13:00

í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6

Meeting 380

Attended

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri
  • Málfríður Kristjánsdóttir starfsmaður
  • Anna Sofia Kristjánsdóttir starfsmaður
  • Berglind Guðmundsdóttir starfsmaður

Secretary

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1110057 – Norðurhella 2, breyting á innra skipulagi mhl 01

      Hafnarfjarðarkaupstaður sækir 05.10.2011 um breytingu á innra skipulagi á mhl 01 samkvæmt teikningum Sigurðar Einarssonar dagsettum 05.10.2011.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010.

    • 1109358 – Hamarsbraut 16,byggingarleyfi

      Þröstur Valdimarsson leggur 27.09.11 inn byggingarleyfi. Húsið er að öllu leiti byggð innan byggingarreits og í samræmi v. hæðarmörk. Samkvæmt teikningum Jóns Guðmundssonar dag.19.09.11. Nýjar teikningar bárust 06.10.11.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt. Sjá þó meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1110047 – Strandgata 51,minnisvarði um Friðrik Bjarnason

      Karlakórinn Þrestir sækja um að koma upp minnisvarða um Friðrik Bjarnason sunnan megin við inngang í Hafnarfjarðarkirkju. Sjá meðfylgjandi gögn.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

    • 1108263 – Álhella 3, reyndarteikningar

      Geymslusvæðið ehf leggja 25.08.2011 inn reyndarteikningar af Álhellu 3 samkvæmt teikningum Kjartans Rafnssonar dagsettar 01.06.2011 Nýjar teikningar bárust 28.09.11 og 12.10.11.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1007660 – Breiðvangur 63, girðing

      Eigendur Breiðvangs 65 kvarta yfir girðingu milli Breiðvangs 63 og Norðurvangs 8, sem nær fullri hæð allt að meintum lóðamörkum þeirra, og telja endastaur girðingarinnar vera innan sinna lóðarmarka. Girðingin er með skriflegu samþykki eigenda Breiðvangs 63 og Norðurvangs 8 og fyrir liggur sú umsögn eftirlitsmanns skipulags- og byggingarsviðs að staurinn sé á þessum meintu lóðamörkum en ekki innan lóðar nr. 65. Eigendur Breiðvangs 65 töldu eigendur Breiðvangs 63 einnig ætla að reisa girðinu milli lóðanna Breiðvang 63 og 65 án þeirra samþykkis. Eigendur Breiðvangs 63 hafa upplýst að horfið hafi verið frá því. Skipulags- og byggingarfulltrúi ályktaði 07.07.10 að girðing umhverfis Breiðvang 63 væri án heimildar, og bæri eiganda að sækja um leyfi fyrir henni eða fjarlægja að öðrum kosti. Með umsókn skyldi fylgja skriflegt leyfi frá lóðarhöfum þeirra lóða sem girðingin liggur að. Við nánari skoðun kom í ljós kom að um sameignarlóð er að ræða, og engin lóðamörk eru því milli lóða nr. 63 og 65. Skipulags- og byggingarfulltrúi benti því á að íbúum raðhússins bæri að stofna húsfélag í samræmi við 13. grein laga um fjöleignahús. Húsfélaginu bæri að taka málið upp og sækja um leyfi fyrir girðingar. – Lagður fram tölvupóstur frá Jóni Holbergssyni dags. 06.10.11, þar sem fram kemur álit lögfræðings Húseigendafélagsins að húsfélag sé nú þegar til staðar, þar sem lögin kveði á um það.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi fellst ekki á þá túlkun Húseigendafélagsins að hlutur sé til þótt lög kveði á um að hann skuli vera til. Engin umsögn liggur því fyrir frá löglegum aðila málsins hvaða girðingar skuli vera til staðar og hverjar ekki. Með vísan til 1. mgr. 11. greinar stjórnsýslulaga nr. 37/1993 (jafnræðisreglu) telur skipulags- og byggingarfulltrúi ekki fært að beita ákvæðum 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010 um að knýja fram úrbætur varðandi þessari girðingu fremur en fjölda annarra sambærilegra girðinga í Hafnarfirði. Skipulags- og byggingarfulltrúi mun því ekki aðhafast frekar í málinu, og málinu er vísað frá.

    • 11032757 – Stekkjaberg 9.Húsgrunnur.

      Borist hefur kvörtun frá nágrönnum um að grunnur byggingarinnar sé opinn og stafi hætta af vatnssöfnun í honum.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi felur eftirlitsmanni sviðsins að skoða málið milli funda.

    • SB060161 – Helluhraun 2, umgengni á lóð

      Jón Davíð Pétursson Flatahrauni 16 kvartar með tölvupósti dags. 14.04.2008 yfir umgengni á lóðinni Helluhraun 2. Eigendum húsnæðisins hefur áður verið bent á að fjarlægja gáma á lóðinni sem ekki er leyfi fyrir, og gefinn kostur á að tjá sig um málið. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði tillögu til skipulags- og byggingarráðs um að beitt verði dagsektum verði gámarnir ekki fjarlægðir. Húseigendum var gefinn frestur til 30. apríl að tjá sig um málið. Bréf barst frá lóðarhafa dags. 29.04.2008, þar sem lofað var að ganga frá lóðinni í viðunandi horf. Ekkert hefur gerst í málinu, og er lóðin ein af 8 verst útlítandi í hverfinu. Skipulags-og byggingarfulltrúi gerði 21.04.2010 húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Bréf dagsl 29.04.2008 barst bréf frá eiganda þar sem lýst var ásetningi um að bæta umgengni á lóðinni, helluleggja og fá hönnuð til að skipulaggja lóðina. Síðan hefur ekkert gerst. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði tilmæli sín 26.05.11.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi ákveður að leggja dagsektir á eiganda kr. 20.000 á dag frá og með 1. desember 2011 í samræmi við 2. mgr. 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010 verði ekki brugðist við erindinu fyrir þann tíma.

    • 0906048 – Skipalón 23, frágangur á byggingarstað

      Tekið fyrir að nýju bréf Páls Jónssonar f.h. húseigendafélagsins að Skipalóni 27, þar sem kvartað er yfir frágangi á lóðinni. Samþykktar voru dagsektir á lóðarhafa, Frjálsa fjárfestingabankann 13.08.2009, en þá voru gerðar nokkrar úrbætur á lóðinni. Girðing umhverfis svæðið er nú fallin niður, á lóðinni er óvarinn byggingarkrani og ónýtir gámar ásamt fleiru. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 25.05.11 lóðarhöfum skylt að koma lóðinni í viðunandi horf innan fjögurra vikna. Ekkert gerðist í málinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði 08.06.11 fyrirmæli til lóðarhafa um að koma lóðinni í viðunandi horf í samræmi við 68.6 grein skipulagsreglugerðar nr. 441/1998. Yrði ekki brugðist við erindinu innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á lóðarhafa í samræmi við 2. mgr. 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010. Ekki hefur enn verið brugðist við erindinu.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi ákveður að leggja dagsektir á lóðarhafa, kr. 20.000 á dag í samræmi við 2. mgr. 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010 frá og með 15. nóvember 2011 verði ekki brugðist við erindinu um tiltekt á lóðinni fyrir þann tíma.

    C-hluti erindi endursend

    • 1109333 – Fagrakinn 15,breyting

      Guðrún Bergsteinsdóttir sækir 26.09.11 um breytingu á byggingarleyfi. Kyndiklefa var breytt í baðherbergi, neðri hæð stækkar. Samkvæmt teikningum Sveinbjörns Hinrikssonar dag.26.09.11 Nýjar teikningar bárust 05.10.11 einning umboð frá eigendum.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1110080 – Álfhella 17, byggingarleyfi

      Slysavarnarfélagið Landsbjörg sækir 06.10.11 um að fá að setja skrifstofuskála á lóðina. Sótt er um að fá stöðuleyfi fyrir skálann á lóðinni þar til að sökkull hefur verið gerður á lokastaðsetningu. Teikningar af skálanum fylgja með eftir Gunnar Bergmann Stefánsson dags. 28.09.11.

      Ekki liggur fyrir lagaheimild til að veita stöðuleyfi fyrir hús og er erindinu því synjað.

    • 1110100 – Eyrartröð 13, breyting á innraskipulagi mhl.02

      Eyrarfell ehf og Stokkhylur ehf sækja 07.10.2011 um númerabreytingu og breytingu á innraskipulagi á MHL.02. sjá meðf. bréfi. teikningar samkvæmt Jóni Guðmundssonar dagsettar 28.09.2011.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1110097 – Strandgata 37, fyrirspurn

      Eggert Kristin Helgason leggur 07.10.11 fyrir hönd eiganda að húsinu fram fyrirspurn um reisa skjólvegg og skyggni við anddyri á bakhlið hússins.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu. Skriflegt samþykki allra húseigenda þarf að liggja fyrir.

    • 1110065 – Dalshraun 15, fyrispurn

      Fylkir ehf leggja inn 06.10.2011 fyrirspurn, óskað er eftir leyfi til að hækka girðingu á norðurhlið lóðar í 2,5m og einnig að byggja léttan timburvegg framan við aðalinngang verslunar, sbr meðfylgjandi þríviddarmyndir. Húsasmiðjan hyggst opna verslun í húsnæðinu og er tillögugerð til samræmingar við aðrar verslanir keðjunar.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu og óskar eftir frekari gögnum sem sýna útfærslu og staðsetningu girðingarinnar.

Suggestion portal