Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

11. September 2013 13:15

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 477

Attended

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri
  • Málfríður Kristjánsdóttir starfsmaður
  • Berglind Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Brynjar Rafn Ólafsson starfsmaður
  • Þormóður Sveinsson starfsmaður

Secretary

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1309091 – Brekkuás 21, breyting á byggingarleyfi

      Hagbyggig sækir 03.09.13 um að breyta innraskipulagi og gluggum samkvæmt teikningum Sigurðar Hallgrímssonar dags. 07.05.2008

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.$line$13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.$line$Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi: $line$1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.$line$2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.$line$3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.$line$4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

    • 1309092 – Skipalón 1, breyting á byggingarleyfi

      Skipalón 1-7 ehf sækir 03.09.13 um að breyta áður samþykktum teikningum. Teiknaðar af Sigurlaugu Sigurjónsdóttur dags.16.10.2012.

      13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.$line$Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi: $line$1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.$line$2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.$line$3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.$line$4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

    • 1309093 – Skipalón 5,breyting á byggingarleyfi

    • 1309094 – Skipalón 7, breyting á byggingarleyfi

    • 1309137 – Brattakinn 23,breyting

      Hjalti Kristinn Unnarsson sækir 04.09.13 um leyfi fyrir breytingum á þaki samkvæmt áður samþykktum teikningum dagsettar. 15.06.1983

      13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.$line$Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi: $line$1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.$line$2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki. Skila þarf skráningartöflu fyrir húsið í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.$line$3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.$line$4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

    • 1309154 – Hvaleyrarbraut 27,breyting innra skipulag rými 01-02

      F.21 ehf sækir um breytingar á innra skipulagi í rými 01-02. Bætt bið millilofti, Reyndarteikningar dags. 30.07.13.

      13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.$line$Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi: $line$1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.$line$2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.$line$3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.$line$4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

    • 1308131 – Stapahraun 9, breyting á þaki

      Kaffibrennsla Hafnarfjarðar Hf leggur inn 14.08.13 inn reyndarteikningar, sjá teikningar. Samkvæmt teikningum Jens Bárðarsonar dag.06.08.13 Nýjar teikningar bárust 04.09.13 með stimpli slökkviliðs höfuðborgsvæðinss.

      13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.$line$Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi: $line$1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.$line$2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.$line$3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.$line$4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

    • 1309139 – Uppsetning siglingamerkis, gjöf frá Cuxhvaven

      Tekið fyrir erindi Cuxhavenfélagsins um uppsetningu “Kugelbake” (siglingarmerkis) frá stjórn vinabæjarfélagsins Cuxhaven-Hafnarfjörður í Hafnarfirði, varðandi fyrirhugaða 25 ára afmælisgjöf frá vinabæjarfélaginu í Cuxhaven. Skipulags- og byggingarráð fól skipulags- og byggingarsviði að skoða og vinna tillögu að því hvernig hægt sé að koma merkinu fyrir á lóðamörkum við gömlu Flensborgarlóðina/hafnarbúðirna.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur til aðra staðsetningu að höfðu samráði við skipulags- og byggingarsvið og hafnarstjóra. Skipulags- og byggingarfulltrúi veitir framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu siglingamerkisins við norð-austurenda lóðarinnar Strandgata 82, sjá meðfylgjandi gögn.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1302330 – Mjósund 10, fyrirspurn

      Mjósund 10 ehf leggur fram fyrirspurn um að breyta félagsmiðstöð í fjöleignahús, 3 íbúðir. Um er að ræða breytingar innanhúss og breytta notkun. Skipulagsstofnun hefur sent breytingu á aðalskipulagi til staðfestingar.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið og óskar eftir uppdráttum samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012 með umsókn um byggingarleyfi.

    • 1309252 – Ósk um staðbundin réttindi

      Gunnar Már Þórðarson óskar eftir staðbundnum réttindum sem járnsmiðameistari.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

    • 1305163 – Suðurgata 18,umgengni á lóð

      Ábending barst um að hlutir á lóð Suðurgötu 18 hindruðu innkeyrslu að Suðurgötu 24 og 28. M.a. númerslaus bíll, sem staðið hefur þar mjög lengi. Samkvæmt 20. grein lögreglusamþykktar Hafnarfjarðar, er Framkvæmdasviði heimilt að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum, að flytja burtu og taka í vörslu Hafnarfjarðarbæjar ökutæki sem brjóta í bága við 1. mgr. ? 5. mgr., ökutæki sem standa án skráningarnúmera á lóðum við almannafæri, götum og almennum bifreiðastæðum og ökutæki sem skilin eru eftir á opnum svæðum.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi beinir því til lóðarhafa Prentsmiðju Hafnarfjarðar ehf að fjarlægja bílinn. Verði ekki brugðist við því innan 3 vikna mun Umhverfis- og framkvæmdasvið fjarlægja bílinn.

    • 09103152 – Steinhella 14, byggingarstig og notkun

      Húsið er skráð á byggingarstigi 2, þó svo að það sé nær fullgert. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 01.02.12 byggingarstjóra skylt að óska eftir fokheldisúttekt innan fjögurra vikna og síðan lokaúttekt. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög. Nýr byggingarstjóri var skráður á verkið 16.02.12. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 13.02.13 byggingarstjóra skylt að óska eftir fokheldisúttekt innan þriggja vikna og bendir jafnframt á ábyrgð eigenda skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010. Yrði ekki brugðist við erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Fokheldisúttekt var synjað 28.02.13. Eftir að klæða norðurgafl og klára brunaskilveggi.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi gefur eigendum enn 4 vikur til að bregðast við athugasemdum, áður en boðaðar dagsektir koma til framkvæmda.

    • 1011337 – Gullhella 1, byggingarstig og notkun

      Gullhella 1, mhl 01 til 04 eru skráðir á bst 2 mst 1, þrátt fyrir að vera fullbyggðir og teknir í notkun. Um er að ræða vélaverkstæði og dreifistöð. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 24.11.10 byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldisúttekt innan þriggja vikna og síðan lokaúttekt í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við því myndi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa erindinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki var brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.01.12 byggingarstjóra skylt að óska eftir fokheldis- og lokaúttekt innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita heimildum mannvirkjalaga til að fá fram úrbætur. Fokheldisúttekt fór fram 12.02.2013.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra og eigendum skylt að sækja um lokaúttekt innan 4 vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 til að knýja á um úrbætur.

    • 1011376 – Melabraut 27, byggingarstig og notkun

      Melabraut 27 er skráð á bst/mst 1, byggingar- og framkvæmdarleyfi, þrátt fyrir að húsið sé fullbyggt og búið að taka í notkun. Vantar bæði fokheldis- og lokaúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 01.12.10 byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldisúttekt innan þriggja vikna og síðan lokaúttekt í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Dagsektir áður lagðar á, en frestur veittur 01.05.11 teikningar á leiðinni að sögn. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.01.12 eigendum skylt að skila umræddum teikningum innan fjögurra vikna og sækja jafnframt um fokheldisúttekt og lokaúttekt. Yrði það ekki gert mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög. Dagsektir lagðar á 01.03.12 en frestað þar sem byggingarstjóri sagðist 02.04.12 vera að undirbúa úttekt. Ekkert hefur gerst síðan í málinu.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir egianda skylt að skila inn leiðréttum gögnum sem standast ákvæði byggingarreglugerðar nr. 441/1998. Verði ekki brugðist við því innan 4 vikna munu áður boðaðar dagsektir koma til framkvæmda á eigendur og byggingarstjóra.

    • 1203183 – Hvaleyrarbraut 35, lokaúttekt

      Húsið er skráð á byggingarstigi 3, þrátt fyrir að hafa verið tekið í notkun, þ.e. ekki skráð fokhelt. Um er að ræða brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010. Íbúðir hafa verið innréttaðar í húsinu, sem ekki er leyfi fyrir. 15.02.12 var samþykkt að skipta eign 0202 í tvo hluta, en eignaskiptasamningur hefur ekki verið lagður inn, þannig að það leyfi er fallið úr gildi. Lokaúttekt fór fram 23.05.12, en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar, m.a. að verið væri að innrétta íbúð í húsinu, sem ekki er leyfilegt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði byggingarstjóra skylt að sækja um endurtekna lokaúttekt innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eigendur í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010. Bent er á ábyrgð eigenda skv. sömu lögum. Komið hefur í ljós að ósamþykktar íbúðir hafa verið auglýstar til sölu í húsinu, sem er í ósamræmi við aðalskipulag. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði 30.08.13 fyrirmæli sín um lokaúttekt sem skyldi fara fram þá þegar. Yrði ekki brugðist við erindinu innan einnar viku mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eigendur og byggingarstjóra án frekari fyrirvara. Byggingarstjóri hefur sagt sig af verki, þar sem innréttingu hússins var breytt án hans vitundar.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á eigendur Okt ehf frá og með 12.10.2013 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi eigendur ekki ráðið nýjan byggingarstjóra, og fært húseignina til samræmis við samþykkta uppdrætti fyrir þann tíma.

    • 0703086 – Breiðvangur 18, kvörtun

      Íbúar við Breiðvangi 18 leggja fram kvörtun vegna starfsemi gistiheimilis í húsinu, 3.hæð til vinstri. Skipulags- og byggingarfulltrúi óskaði eftir skýringum frá íbúðareiganda, sem ekki bárust. Borist hafa vísbendingar um að íbúðinni hafi verið breytt án tilskilinna leyfa, sem er brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekar fyrirmæli um upplýsingar frá eiganda. Berist þær ekki innan 2 vikna mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eiganda í samræmi við 56. grein sömu laga.

    • 1309254 – Hellisgata 12 Óleyfisskúr, aðgengi, bílastæði o.fl..

      Borist hafa ábendingar um uppsetningu skúrs á lóðinni, sem samræmist ekki byggingarreglugerð, og ekki liggur fyrir samþykki meðeganda í húsi, svo sem lög um fjöleignahús kveða á um. Enn fremur hefur verið gert bílastæði á lóðinni, sem er í ósamræmi við deiliskipulag svæðisins.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eiganda eignar 0101 skylt að fjarlægja skúrinn innan 4 vikna, eða að öðrum kosti færa hann þannig að hann samræmist byggingarreglugerð nr. 112/2012 og að fengnu samþykki meðeiganda í húsi. Ennfremur fjarlægja bílastæði eða sækja um staðsetningu þess að öðrum kosti.

    C-hluti erindi endursend

    • 1309124 – Austurgata 19, breyting á byggingarleyfi

      Björn Sigurðsson sækir 04.09.13 um að breyta og laga hús að utan samkvæmt teikningum Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 24.08.13

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem ákvæði byggingarreglugerðar eru ekki uppfyllt. Húsið er eldra en 1925, þannig að afla þarf samþykkis Minjastofnunar Íslands fyrir breytingunum, sbr lög um menningarminjar nr. 80/2012, 30. grein. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1309146 – Selvogsgata 16 breyting á byggingarleyfi

      Þórður Örn Guðbjörnsson sækir 05.09.13 um að gluggar feldir út í kjallarar samkvæmt teikningum Eyjólfs Valgarðssonar dag.20.11.2011

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1309135 – Móabarð 18, umsókn um merkt bílastæði.

      Gréta Aðalsteinsdóttir sækir 04.09.13 um endurnýjun á merktu stæði fyrir fatlaða að Móabarði 18.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru útrunnin.

    • 1309100 – Sléttuhlíð C-0 , byggingarleyfi

      Ragnheiður Kristjánsdóttir sækir 03.09.13 um að byggja heilsárshús samkvæmt teikningum Björgvins Víglundssonar dags. 27.08.13.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem það samræmist ekki deiliskipulagi svæðisins.

Suggestion portal