Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

3. January 2018 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 689

Attended

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi
  • Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður

Secretary

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1711056 – Bæjarhraun 26, byggingarleyfi breyting

      Tekið fyrir a nýju erindi Sigríðar Erlendsdóttur dags. 3.11. 2017 um að fjölga eignarrýmum og breyta innra fyrirkonulagi rýma 0101 og 0102 lítillega. Eigandi mhl. 0101 og 0102 er Fjóluvellir ehf sem er meðumsækjandi Sigríðar Erlendsdóttur. Nýjar teikningar með stimpli SHS bárust 16.11.2017.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010. Eiganda bent á að gera þarf nýjan eignaskiptasamning vegna þessa.

    • 1801070 – Bergskarð 3, byggingarleyfi

      VHE ehf sækir um byggingarleyfi þann 04.01.18 fyrir fjölbýlishús á lóðinni Bergskarð 3, teikningar gerðar af Orra Árnasyni

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.

    • 1801071 – Bergskarð 1, byggingarleyfi

      VHE ehf sækja um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús þann 04.01.2018, teikningar gerðar af Orra Árnasyni

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.

    • 1712284 – Tinhella 8,fyrirspurn

      Vaka hf leggur inn fyrirspurn sags. 20.12. 2017 um að vera með brotajárnsvinnslu á lóðinni Tinhella 8.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur er jákvætt í erindið að uppfylltum skilyrðum.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1712136 – Kaldárselsvegur, lóð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, fyrirspurn

      Skógræktarfélag Hafnarfjarðar gerir þann 11.12.2017 fyrirspurn um leyfi fyrir stækkun og fjölgun byggingareita fyrir hús og gróðurhús.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.

    • 1712195 – Breiðhella 18,Fyrirspurn

      Breiðhella ehf leggur 14.12.17 inn fyrirspurn um að reisa á lóðinni 3 samskonar byggingar, sem ætlað er að hýsa minni fyrirtæki í iðnaði og skyldum rekstri en að öðru leyti óskilgreindar á þessu stigi.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur er neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir.

    • 1712103 – Dofrahella 7, fyrirspurn

      Studio F ehf fyrirhönd Stálheima ehf gerir fyrirspurn dags. 7.12. 2017 um deiliskipulagsbreytingu á lóðinni Dofrahellu 7.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.

    C-hluti erindi endursend

    • 1712251 – Bæjarhraun 2, breyting 3.hæð

      Sjúkraþjálfarinn ehf sækir 19.12.2017 um leyfi til að innrétta húsnæði fyrir þjónustu fyrir sjúkraþjálfara, samkvæmt teikiningum Helgi Thoroddsen dagsettar 14.12.2017

      Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi.

    • 1712318 – Dalshraun 15, breyting

      Asista Verktakar ehf. sækir 22.12.2017 um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum, samkvæmt teikningum Aðalsteins Júlíussonar dagsettar 25.11.2017

      Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi.

    • 1712187 – Staðarhvammur 23, breyting

      Hafnarfjarðarbær sækir með umsókn dags. 13.12.2017 um leyfi til að byggja við leikskólann Hvamm skv. teikningum Hjartar Pálssonar dags. 13.12 2017.
      Teikningar með stimpli SHS, Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis og Mannvit hf. bárust 27.12.2017.

      Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi.

    • 1712330 – Tjarnarbraut 21, fyrirspurn til skipulags- og byggingafulltrúa

      Sigríður Jónsdóttir gerir fyrirspurn 27.12. 2017 um að fjölga eignum úr einbýli í tvíbýli.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir.

    • 1712062 – Hringbraut 9, p-stæði

      Albert Sigurðsson sækir þann 13.11. 2017 um p stæði á Hringbraut 9.

      Afgreiðslufundur skiplags- og byggignarfulltrúa synjar erindinu með hliðsjón af umsögn arkitekts.

Suggestion portal