In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Ólafur W.Finnsson sækir 05.01.18 um svalalokun á íb.506 samkvæmt teikningum Sigurlaugar Sigjónsdóttur dagsettar 04.12.17. Samþykki húsfélagsins barst þann 08.01.2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010
Steinhella 17 er skráð sem fokhelt í fasteignaskrá. Lokaúttekt hefur ekki farið fram þrátt fyrir fjölmargar ítrekanir þess efnis.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eigandur að Steinhellu 17 og byggingarstjóra vegna þess að ekki hefur verið gerð lokaúttekt á húsnæðinu Dagsektir verða lagðar á frá og með 1. febrúar 2018 og eru 20.000 kr á dag í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki 160/2010
Steinhella 2 er skráð sem fokheld í Fasteignaskrá Íslands, öryggisúttekt fór fram 2013, en samkvæmt lögum þarf lokaúttekt að fara fram eigi síðar en þrem árum eftir öryggisúttekt, það hefur ekki verið gert. Eigendur fengu bréf vegna þessa og hafa ekki brugðist við
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eigandur að Steinhellu 2 og byggingarstjóra, vegna þess að ekki hefur verið gerð lokaúttekt á húsnæðinu, húsnæðið er skráð fokhelt. Dagsektir verða lagðar á frá og með 1. febrúar 2018 og eru 20.000 kr á dag í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki 160/2010
Plúsarkitektar senda inn 4.01.18 fyrirspurn hvort leyfi fáist til að stækka lóð og koma fyrir auka byggingarmagni samkvæmt teikningum dags.25.10.17
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir.
Rannveig Jónsdóttir hjá Rvk. studios óskar með tölvupósti 3.1. 2018 eftir leyfi til þess að taka upp atriði í Undirhlíðanámu vegna sjónvarpsseríunnar Ófærðar. Starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis liggur fyrir vegna vatnsverndarsjónarmiða og jákvæð umsögn Umhverfisstofnunnar þar sem náman er innan Reykjanesfólkvangs.
Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, eins litla röskun og unnt er og að allt verði lagað sem raskað verður. Náman er innan Reykjanesfólkvangs sem er friðlýstur skv. lögum um náttúruvernd og verður sérstaklega að gæta þess að valda ekki mengun, spjöllum eða neikvæðum umhverfisáhrifum. Vakin skal athygli á því að svæðið er á vatnsverndarsvæði og ekki skal stofna öryggi vatnsverndar í hættu. Hafnarfjarðarbær ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem kann að verða vegna þessarar kvikmyndagerðar. Skilyrt er að leikmynd og annar útbúnaður sem notast skal við tökunar, verði fjarlægður að kvikmyndatöku lokinni og svæðið skilið eftir í sama ástandi og fyrir tökur.
Borist hefur beiðni frá framkvæmda- og rekstardeild Hafnarfjarðar til þess að fá leyfi til að fjarlægja 4 aspir sem standa framan við húsið Strandgata 4 þar sem rætur þess hafa vaxið inní lagnir og stíflað fráveitulagnir.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar að umræddar aspir verði fjarlægðar.
Borist hefur beiðni frá framkvæmda- og rekstardeild Hafnarfjarðar þess efnis að fá leyfi til að grisja gróður á leikskólalóðinni Smáralundi, við Víðistaðaskóla, Bókasafn Hafnarfjarðar, Lækjarskóla, Setbergsskóla og við opið leiksvæði við Mávahraun. Einnig er óskað eftir að grisja gróður á Víðistaðatúni.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar að umræddur gróður verði grisjaður þar sem hér er um almennt viðhald grænna svæða að ræða og einnig eru stór tré að skemma klæðningu og lagnir.
Tekið fyrir að nýju erindi VHE ehf. dags. 21.12.2017 um leyfi að byggja 10 íbúða fjölbýlishús, samkvæmt teikningum Baldurs Svavarssonar dagsettar 19.12.2017, 03.01.18 Nýjar teikningar bárust A-100 OG A-101
Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi.