In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars sækir 24.07.2018 um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði á lóðinni skv. teikningum Ómars Péturssonar dags. 09.07.2018. Nýjar teikningar bárust 27.04.2021 stimplaðar af Heilbrigðiseftirliti og Lotu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Krads ehf. fh. lóðarhafa leggur 26.04.2021 inn umsókn um byggingarleyfi. Um er að ræða fjölbýlishúsaklasa sem er ein til tvær hæðir auk nýtilegrar rishæðar og kjallara, með samtals 23 íbúðum, ásamt einu atvinnurými. Í kjallara eru geymslur og sameiginleg rými auk tæknirýma og bílgeymslu. Nýjar teikningar bárust 30.04.2021.
ÞG verktakar ehf. fh. lóðarhafa sækja 28.04.2021 um heimild til að byggja einlyfta vinnustofu skv. teikningum Kristins Ragnarssonar. dags. 28.04.2021.
Kári Eiríksson fh. lóðarhafa sækir um frávik frá skilmálum sem felst í að koma fyrir 3 íbúðum í húsinu, án þess að breyta byggingarreit eða nýtingarhlutfalli. Húsið verður byggt úr CLT einingum.
Erindinu vísað í skipulags-og byggingarráð.
Þann 28.4.2021 leggur Erlendur Ö. Erlendsson inn umsókn þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi Skarðshlíðar 2. áfanga. Breytingin nær til lóðarinnar við Drangsskarð 8. Í breytingunni felst að byggingarreit er breytt. Húsið verður tveggja hæða parhús í stað tvíbýlis á einni til tveimur hæðum. Tvö bílastæði verða á íbúð. Að öðru leyti haldast skilmálar óbreyttir.
Skipulagsfulltrúi samþykkir að grenndarkynna erindið í samræmi við 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga. Þeir sem fá grenndarkynninguna eru aðliggjandi lóðarhafar og aðrir þeir sem taldir eru kunna að eiga hagsmuna að gæta.
Á afgreiðslufundi skipulags og byggingarfulltrúa þann 26.4.sl. samþykkti skipulagsfulltrúi að grenndarkynna deiliskipulagsbreytingu er nær til lóðarinnar við Hádegisskarð 31 skv. 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga. Erindið var grenndarkynnt frá 28.4. – 2.6.2021 með heimild til styttingar. Embættinu bárust undirskriftir þeirra sem kynninguna fengu. Engar athugsemdir eru gerðar við deiliskipulagsbreytinguna.
Skipulagsfulltrúi samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og að málmeðferð skuli lokið í samræmi við skipulagslög.
Þann 20.04.2021 samþykkti skipulags- og byggingarráð að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Haukasvæðisins á ný. Bæjarstjórn staðfesti samþykkt ráðsins á fundi sínum þann 28.04.2021. Lögð fram uppfærð umhverfisskýrsla vegna uppbyggingar á Íþróttasvæði Hauka.
Skipulagsfulltrúi samþykkir að auglýsa umhverfisskýrslu samhliða auglýsingu um breytt deiliskipulag. Málsmeðferð verður í samræmi við 1.mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Veitur Hafnarfirði tilkynna 4.5.2021 um framkvæmd. Um er að ræða 12,3 fm dæluhús fyrir fráveitu. Veggir og botnplata steypt með timburgrind ofaná. Húsið verður klætt með bárujárni.
Erindið er móttekið. Samræmist tilkynningarskyldum framkvæmdum sem tilgreindar eru í grein 2.3.5. byggingarreglugerðar 112/2012. Tilkynna skal til byggingarfulltrúa um lok framkvæmdar.
Þann 30. apríl sl. leggur Fritz H. Berndsen inn fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar 3. áfanga er nær til lóðarinnar við Völuskarð 1. Í breytingunni felst að húsið verði einnar hæðar. Byggingareitur breytist. Fjölgað er um 2 stæði innan lóðar.
Tekið er jákvætt í erindið.
Þann 3.5. sl. leggur Lárus K. Ragnarsson inn fyrirspurn þar sem óskað er eftir að byggja viðbyggingu við húsið. Á þaki hennar yrðu svalir og sólstofa fyrir 2.hæð. Jafnframt er óskað eftir að koma fyrir inndregnum þaksvölum í risi og að sú hæð verði skráð sem sér íbúð. Á lóðinni er vilji til þess að koma fyrir steinsteyptu smáhýsi 15m2 að stærð.
Tekið er jákvætt í að húsið verði stækkað. Stækkunin skal taka mið af aldri og gerð hússins. Tekið er neikvætt í að ris verði ein íbúð þar sem ekki er hægt að leysa bílastæði innan lóðar. Staðsetning skúrs alveg við gangstétt er ekki góð. Færa skal fyrirhugaðan skúr a.m.k. 2m frá lóðamörkum við bæjarland. Leggja þarf inn skriflegt samþykki aðliggjandi lóðarhafa við Langeyrarveg 13 þar sem skúrinn er á lóðamörkum.
Dagný Dís Magnúsdóttir og Nicolas Karim Boumour leggja inn fyrirspurn þann 21.04.2021 vegna viðbygginga við aðalinngang hússins við Norðurbraut 17.
Tekið er jákvætt í að gert verði bíslag við húsið og byggt aftan við það. Við nánari útfærslu á þeim framkvæmdum sem nú er óskað eftir skal huga að aldri og gerð hússins. Viðbyggingar skulu taki mið af byggingarlist hússins og draga skal fyrirhugaðan sólskála inn frá gafli.
Eimskip Ísland ehf. sækir 21.4.2021 um að klæða húsið með báruklæðningu og loka tveimur aksturshurðum. Teikningar unnar af Önnu Margréti Hauksdóttur bárust 23.04.2021.
Erindi frestað gögn ófullnægjandi.
Þann 26.04.2021 leggur Þórður Kristjánsson fh. lóðarhafa inn teikningar vegna þegar gerðra beytinga á húsinu við Furuvelli 17.
Dómus ehf. sækir 3.5.2021 um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými 0101, byggja millivegg og millipall, setja innkeyrsluhurð á suðurhlið. Einnig að byggja utan um inntök og setja inngönguhurð á vesturhlið.