In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Lagt fram minnisblað Ingvars S. Jónssonar íþróttafulltrúa og Guðbjörns Ólafssonar verkefnisstjóra á stjórnsýslu- og fjármálasvið dags. 17. 09.2007.%0DIngvar S. Jónsson mætti til fundarins og gerði grein fyrir málinu.
Bæjarráð felur íþróttafulltrúa og verkefnisstjóra að taka upp viðræður við ÍBH á grundvellir þeirra hugmynda sem fram koma í minnisblaðinu.
Lögð fram drög að samþykkt um gatnagerðargjald í Hafnarfirði dags í september 2007.
Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum að vísa samþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar með þeirri breytingu að álagningarprósentan verði 15% fyrir allar tegundir byggingar.%0DFulltrúi Sjálfstæðisflokksins sat hjá við afgreiðslu málsins.
Lagt fram minnisblað frá fundi með fjárlaganefnd þann 20. september sl.
Lagt fram.
Tekin fyrir að nýju tillaga að afmælismerkis vegna hátíðarhalda á komandi ári.
Bæjarráð samþykkir tillögu afmælisnefndar að afmælismerki.
Tekin fyrir að nýju drög að jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar sem lýðræðis- og jafnréttisnefnd vísaði til umsagnar bæjarráðs.
Bæjarráð fagnar því að í drögum að nýrri jafnréttisstefnu er jafnréttishugtakið útvíkkað með þeim hætti að stefnan tekur einnig til jafnréttisstarfs í þágu annarra hópa eins og aldraðra, fatlaðra, samkynhneigðra og nýbúa. Í drögum er jafnframt kveðið skýrar en áður á um ábyrgð og nánari útfærslu á framkvæmd stefnunnar auk þess sem lagðar eru fram tillögur um hvernig mæla skuli árangur í jafnréttisstarfi á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Bæjarráð telur að ný janfréttisstefna sé raunhæf stefnu- og aðgerðaráætlun fyrir næstu fjögur ár í þeim mikilvæga málaflokki sem jafnréttismálin eru og veitir því jákvæða umsögn.%0D
Lagður fram árshlutareikningur Sorpu bs sem stjórn byggðasamlagsins samþykkti á stjórnarfundi þann 27. ágúst 2007.
Gerð grein fyrir málavöxtum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
Lögð fram bókun framkvæmdaráðs frá 24. september sl. varðandi endurbætur hússins.
Bæjarráð staðfestir samþykkt framkvæmdaráðs um að taka tilboði fyrirtækisins Tólf ehf. með 3 atkvæðum gegn 1. %0D%0DFulltrúi Sjálfstæðisflokksins tekur undir bókun fulltrúa flokksins í framkvæmdaráði.%0D%0DFulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að staðið verði við samþykktir bæjarstjórnar um að ljúka endurgerð hússins fyrir 100 ára kaupstaðarafmæli bæjarins 1. júní 2008 enda tillögurnar í fullu samræmi við samhljóða samþykktir afmælisnefndarinnar um endurgerð Bungalowsins.
Lagt fram svohljóðandi svar við fyrirspurn VG frá fundi nr. 3181:%0D”Svar við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í bæjarráði. %0DForsetanefnd var skipuð á fundi bæjarráðs þann 29. júní sl. og í henni sitja forseti bæjarstjórnar og fyrsti og annar varaforseti. Í 44. gr. samþykktar um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar segir:”Bæjarstjórn skal kjósa fulltrúa í ráð, nefndir og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykkta þesssara.” Viðkomandi ráð nefndir og stjórnir eru talin upp í 55. gr í A. lið þau sem kosin eru til eins árs og í B. lið þau sem lögum samkvæmt eru kosin til fjögurra ára. Í %0D53. gr. samþykktarinnar segir: “Bæjarstjórn og ráð geta kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkrar nefndar fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Bæjarstjórn og ráð geta einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.” Forsetanefndin er kosin á grundvelli 53. gr.%0DBæjarráð fól forsetanefnd að yfirfara reglur um framkvæmd bæjarstjórnarfunda. Nefndin hefur fundað tvisvar og mun leyta samstarfs og ráðgjafar fulltrúa allra stjórnmálaflokka og annara þar til bærra aðila.” %0D%0D%0D%0D
Fulltrúi Vinstri grænna óskar bókað:%0D” Fulltrúi Vinstri gærnna skilur ekki afgreiðslu bæjarráðs frá 29. júní sl. um stofnun á starfshópi forsetanefndar og áskilur sér rétt til að bóka á næsta fundi bæjarstjórnar vegna málsins.”%0D%0DBæjarráð áréttar þá samþykkt sína að á fundinum 29. júní sl. þegar forsetum bæjarrstjórnar var falið að yfirfara verklagsreglur bæjarstjórnar var jafnframt um að ræða skipun í starfsnefnd þar að lútandi.
Lagt fram erindi Hafnarfjarðarkirkju dags. 11. sept. 2007 þar sem óskað er eftir styrk vegna framkvæmda við endurbætur á kirkjunni.
Bæjarráð óskar eftir að fá fulltrúa sóknarnefndar á fund ráðsins.
Lagt fram erindi Árna B. Stefánssonar dags. 07.09.2007 þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 250.000 vegna varðveislu hellisins Leiðarenda.
Bæjarráð óskar eftir umsögn umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21.
Lagt fram erindi Einars þórs Gunnlaugssonar f.h. Passport Kvikmyndir dags. 12.09.2007 þar sem óskað er eftir styrk (frjálsu framlagi) vegna heimildarmyndarinnar “Norð Vestur”.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
Lagt fram erindi Sögufélagsins og Stofnunar Árna Magnússonar dags. 13. september 2007 þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 250.000 vegna endurútgáfu Sýslu- og sóknarlýsingar Gullbringu- og Kjósarsýslu frá um 1840.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið með kr. 150.000 sem takist af fjárheimildum bæjarráðs til styrkveitinga.
Lögð fram umsókn Hermanns Guðmundsson f.h. N1 hf dags. 16. september 2007 um lóð á svæði merktu H3 eða H2 sunnan Straumsvíkur.
Bæjarráð óskar eftir umsögn skipulags- og byggingarsviðs.
Lögð fram umsókn Gunnars Árnason f.h. Verkvíkur – Sandtaks dags. 20.09.07 um lóðirnar Tinhellu 9 og 11.
Lögð fram fundargerð skólanefndar Flensborgarskóla frá 13.09.07.
Lögð fram fundargerð stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29. ágúst 2007.