In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Kynnt dagskrá fjármálaráðstefnu Sambands ísl. sveitarfélaga sem haldin verður 13. og 14. október nk.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram bréf Sambands ísl. sveitarfélaga dags. 29. september 2011 þar sem hvatt er til að sveitarstjórnir standi fyrir fundum vikuna 24. – 29. október nk. um stöðu og aðgerðir í jafnréttismálum kynjanna í sveitarfélaginu.
Lagt fram afrit af bréf Rio Tinto Alcan dags. 26. september 2011 til ríkstjórnar Íslands þar sem tilkynnt er sú ákvörðun Alcan Holdings Switzerland Limited að framlengja samning aðila um 10 ár í samræmi við 49. grein hans.
Fjármálastjóri mætti á fundinn og kynnti rekstrarniðurstöðu janúar – ágúst 2011.
Til kynningar.
Lagður fram undirskriftarlisti íbúa í Áslandi 3 dags. 19. september 2011 varðandi frágang hverfisins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tryggja að íbúum berist svör við erindinu.
Lagt fram til kynningar bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga dags. 21. september sl. með upplýsingum sem nefndin hefur unnið úr rafrænum skilum sveitarfélaganna á ársreikningum þeirra fyrir árið 2010.
Lögð fram lokaskýrsla starfshóps um lóðaverð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa eftir tilboðum í lausar íbúðahúsalóðir í þegar byggðum hverfum.
Lagt fram fundarboð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dags. 19. september 2011 þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins þann 12. október nk.
Lagt fram.
Gerð grein fyrir stöðunni.
Til upplýsinga.$line$Bæljarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:$line$”Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að hafin verði vinna við að gera raunhæfa áætlun fyrir Hafnarfjarðarbæ til að mæta skuldbindingum sínum og á sama tíma uppfylla skyldur sveitafélagsins um lögboðna þjónustu til íbúanna. $line$Færustu sérfræðingar yrðu fengnir til gera fjárhagslega endurskipulagningu á heildarskuldbindingum Hafnarfjarðarbæjar og hefja vinnu við að endursemja við kröfuhafa um uppgjör skulda sveitarfélagsins. Í slíku uppgjöri yrði gerð heildstæð áætlun um raunhæfa greiðslugetu bæjarfélagsins, bæði í fjárhagslegu og lagalegu tiliti en mikilvægt er að lánadrottnum verði ekki mismunað í slíku uppgjöri. $line$Auk fjárhagsskoðunar fari fram lögfræðileg skoðun á öllum þeim möguleikum sem bærinn hefur til þess að semja við kröfuhafa sína af hálfu lögmanna sem hafa reynslu af slíkum víðtækum samningum.”$line$$line$Bæjarráðsfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram eftirfarandi bókun:$line$”Í bókun Sjálfstæðisflokksins felast tillögur að verkefnum sem unnið hefur verið að undanfarna mánuði bæði í fjárhagslegu og lagalegu tilliti, af stjórnendum bæjarins og í samráði við færustu sérfræðinga landsins á viðkomandi sviðum.” $line$
Lagt fram tilboð Gunnhildar S. Gunnarsdóttur og Hilmars Þórðarsonar dags. 30. september 2011 í íbúð Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðar á fyrstu hæð hússins að Hellisgötu 16.$line$Einnig lögð fram afgeiðsla umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5.10. sl. þar sem mælti er með að gengið verði að tilboðinu.
Bæjaarráð samþykkir fyrirliggandi tilboð og felur umhverfis- og framvkæmdasviði að ganga frá málinu.
Lögð fram tillaga fjölskylduráðs frá 21.9.sl. um gjald fyrir lengda viðverðu sem vísað var til bæjarráðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gjald fyrir lengda viðveru verði 14.000 kr. á mánuði.”
Tekið fyrir að nýju.$line$Lögmaður bæjarins Anna Jörgensdóttir mætti á fundinn og fór yfir helstu breytingar.
Farið yfir gildandi siðareglur.
Bæjarráð vísar siðareglunum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Lögð fram lokaskýrsla verkefnahóps SSH um samstarf safna.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í menningar- og ferðamálanefnd.
Tekið fyrir að nýju.$line$Fjármálastjóri sem átti sæti í verkefnahópnum fór yfir vinnu hópsins og helstu niðurstöður.
Lögð fram skýrsla verkefnahóps SSH um byggðasamlög.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í umhverfis- og framkvæmdaráði.
Jóhannes Viðar Bjarnason sækir, f.h. Fjörukráarinnar ehf, með bréfi dags 26.9.2011 um lóðarstækkun á lóðinni nr. 55 við Strandgötu, skv. meðfl. lóðarblaði.$line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarsviðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Fjörukránni ehf viðbótarlóð við Strandgötu 55 í samræmi við fyrirliggjandi gögn, umsögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarsviðs.”
Lagt fram erindi Elsu H. Hjörleifsdóttur og Hjálmars Loftsonar varðandi stíg gegnum lóð þeirra að Vörðustíg 5 en afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísaði erindi þeirra um lóðarbreytingu til bæjarráðs.
Bæjarráð óskar eftir umsögn skipulags- og byggingaráðs.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 27.9. sl.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 4. október sl.