Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bæjarráð

29. August 2013 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Meeting 3357

Attended

  • Gunnar Axel Axelsson formaður
  • Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Eyjólfur Sæmundsson aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri og Kristján Sturluson sviðsstjóri fundinn.

Secretary

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri og Kristján Sturluson sviðsstjóri fundinn.

  1. Almenn erindi

    • 1308488 – Cuxhaven vinbæjarsamstarf 25 ára

      Lagt fram erindi Cuxhavenfélagsins sent í tölvupósti 26. ágúst 2013 varðandi 25 ára afmæli vinarbæjarsamstarfs Hafnarfjarðarbæjar og Cuxhaven en stefnt er að afmælishátíð í Hafnarfirði þann 12. október nk. í tengslum við´”Íþróttaviku” sem haldin verður 7. – 14. október.$line$Menningar- og ferðamálafulltrúi mætti á fundinn og fór yfir málið.

      Lagt fram.$line$$line$Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:$line$”Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir upplýsingum um allan kostnað við vinabæjarsamstarf frá janúar 2012- dagsins í dag. Einnig er óskað eftir sundurliðun á ferðakostnaði, uppihaldi, þátttökufjölda jafnt vegna vinabæjarheimsóknanna sjálfra sem undirbúningsfunda og ferða þeim tengdum.”

    • 1110157 – Geymslusvæði Kapelluhrauni, gatnagerð og gjöld

      Tekið fyrir að nýju.$line$Lagðar fram umbeðnar umsagnir.

      Það er eitt af hlutverkum sveitarfélaga að annast alla gatnagerð og leggja á gatnagerðargjöld í samræmi við gildandi lög þar að lútandi.$line$Í ljósi þessa og jafnræðissjónarmiða synjar bæjarráð erindinu.

    • 1308465 – Heilsugæslan til sveitarfélagsins, viðræður

      Gerð grein fyrir bréfi til heilbrigðisráðherra vegna viðræðna um hugsanlega yfirfærslu heilsugæslunnar til sveitarfélagsins sbr. ítrekaðar óskir þar að lútandi.$line$Jafnframt gerð grein fyrir viðræðum við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins varðandi nýja heilsugæslustöð á Völlum.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1308486 – Samtök orkusveitarfélaga, stefnumótun

      Lagt fram erindi Samtaka orkusveitarfélaga sent í tölvupósti 23. ágúst 2013 þar sem óskað er eftir umsögn um stefnumörkun stjórnar.

      Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi stefnumörkun.

    • 1303287 – Skarðshlíð lóðaúthlutun

      Lagðir fram úthlutunarskilmálar, úthlutunarreglur og verðtillögur vegna fyrirhugaðrar úthlutunar í Skarðshlíð.$line$Jafnframt mætti upplýsinga- og kynningarfulltrúi á fundinn og fer yfir kynningarefni sem er í vinnslu.

      Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögum til bæjarstjórnar:$line$$line$”Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi úthlutunarskilmála.” $line$$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggandi reglur um úthlutun íbúðalóða.”$line$$line$”Bæjarstjórn Hafnfjarðar saþykkir að verð lóða í Skarðshlíð verði eftirfarandi:$line$Einbýli 11.007.830 kr. lágmarksverð miðað við 220m2 hús $line$Parhús 8.895.216 kr. lágmarksverð miðað við 200m2 hús$line$Raðhús 8.005.694 kr. lágmarksverð miðað við 180m2 hús $line$Fjölbýli 3.961.151 kr. hver íbúð í 4-8 íbúða húsi 950m2$line$Fjölbýli 3.335.706 kr. hver íbúð í 9 og fleiri íbúða húsi 1200m2$line$$line$Vísitala ofangreindra verða er 118,6 (bvt.)”

    • 1304541 – Byr - SPH, lífeyrisskuldbinding eftirlaunasjóðs

      Tekin fyrir að nýju.$line$Bæjarstjóri fór yfir málið.

      Með vísan til ákvörðunar bæjarstjórnar þann 20. febrúar 1973 þegar innganga starfsmanna Sparisjóðs Hafnarfjarðar var heimiluð í Eftirlaunasjóð starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar er það afstaða bæjarráðs að ábyrgð bæjarins á greiðslu lífeyris taki ekki til sjóðfélaga sem verið hafa starfsmenn Sparisjóðs Hafnarfjarðar. $line$Er bæjarstjóra falið að senda stjórn og framkvæmdastjóra LSS bréf þar að lútandi.

    • 1308515 – Árshlutauppgjör 2013

      Kynnt rekstrarniðurstaða janúar – júni 2013 fyrir bæjarsjóð Hafnarfjarðar.$line$Fjármálastjóri fór yfir niðurstöðuna.

      Bæjarráð vísar uppgjörinu til kynningar í bæjarstjórn.

    Fundargerðir

    • 1301060 – Sorpa bs, fundargerðir 2013

      Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sorpu bs frá 19. 8. sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1301061 – Strætó bs, fundargerðir 2013

      Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs frá 21. júní, 9. og 14. ágúst sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1308004F – Hafnarstjórn - 1432

      Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 13. ágúst sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1308014F – Hafnarstjórn - 1433

      Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 27.8. sl.

      Lagt fram til kynningar.$line$Lið 1 er vísað til bæjarstjórnar.

    • 1308006F – Menningar- og ferðamálanefnd - 206

      Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 19. ágúst sl.

      Lagt fram til kynningar.

Suggestion portal