In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Þá sátu fundinn Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Kristján Sturluson sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Tekið fyrir að nýju. Geir Bjarnason íþróttafulltrúi og Andri Ómarsson verkefnastjóri komu á fundinn.
Fundarhlé gert kl. 8:51. Fundi fram haldið kl. 9:04.
Fundarhlé gert kl. 9:16. Fundi fram haldið kl. 9:27.
Gerð grein fyrir stöðu málsins og bæjarstjóra falið að halda áfram vinnslu þess.
Fullrúar Samfylkingar og VG leggja fram svohljóðandi bókun: Fulltrúar Samfylkingar og VG óska eftir því að bæjarstjóri geri formlega grein fyrir og leggi fram þau gögn sem hann hefur nú þegar undir höndum um aðkomu bæjarins að fjármögnun og rekstri tveggja knatthúsa á Kaplakrika. Það sama á við um gögn sem tengjast fjármögnun bæjarins á nýju íþróttahúsi við Ásvelli. Eðlilegt er að þær upplýsingar liggi fyrir og séu bæjarbúum aðgengilegar.
Lagt til að úthlutun lóðarinnar Koparhellu 1 verði afturkölluð þar sem lóðarhafi hefur ekki brugðist við tilmælum um að greiða fyrir lóðina.
Bæjarráð samþykkir að afturkalla úthlutun lóðarinnar Koparhellu 1 þar sem lóðarhafi hefur ekki brugðist við tilmælum um að greiða fyrir lóðina.
Tekin fyrir bókun menningar- og ferðamálanefndar frá 3.maí sl. Björn Pétursson kom og kynnti verkefnið. Nefndin tekur jákvætt í erindið. Þar sem ekki er fjármagn til verkefnisins í áætlun yfirstandandi árs leggur nefndin til að málinu verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2017. Við fjárhagsáætlunargerðina er mikilvægt að haft sé í huga að um verði að ræða viðbótarfjárframlag þar sem ekki er hægt að taka féð af því fjármagni sem varið er til menningarmála í dag. Nefndin telur mikilvægt að við fjármögnun verkefnisins verði möguleg þátttaka annarra aðila en bæjarins könnuð.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2017. Bæjarráð leggur áherslu á mikilvægi þess sem fram kemur í bókun menningar- og ferðamálaráðs frá 3. maí 2016 að við fjármögnun verkefnisins verði könnuð möguleg þátttaka annarra aðila en bæjarins .
Tekið fyrir að nýju. Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður kom á fundinn.
Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur með áorðnum breytingum og vísar til bæjarstjórnar.
Lagt fram til staðfestingar samkomulag um slit leigusamnings. Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður kom á fundinn.
Guðlaug Kristjánsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag.
Drög að útboðsskilmálum lögð fram. Guðmundur Ragnar Ólafsson innkaupastjóri, Geir Bjarnason íþróttafulltrúi og Andri Ómarsson verkefnastjóri mættu á fundinn.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að útboðsskilmálum.
Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður gerir grein fyrir stöðu málsins.
Guðlaug Kristjánsdóttir tók aftur sæti á fundinum.
Bæjarráð felur bæjarlögmanni að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Lögð fram drög að áætlun um innleiðingu á gæðastjórnun.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að áætlun um innleiðingu á gæðastjórnun.
Tekin fyrir afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 4. maí: 1303149 – Brettafélag Hafnarfjarðar Tekið fyrir að nýju beiðni um viðbótarhúsnæði að Flatahrauni 14 fyrir Brettafélagið sem bæjarráð vísaði til umhverfis- og framkvæmdaráðs. Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við nýtingu viðbótarhúsnæðis á Flatahrauni 14 að því gefnu að ekki falli til viðbótarkostnaður.
Bæjarráð samþykkir erindi Brettafélags Hafnarfjarðar um viðbótarhúsnæði.
Skipað í starfshóp um húsnæðisstefnu.
Samþykkt að skipa eftirtalda í starfshóp um húsnæðisstefnu:
Guðlaug Kristjánsdóttir formaður Ólafur Ingi Tómasson Lára Árnadóttir Guðný Stefánsdóttir Sverrir Garðarsson
Ábendingar Öldungaráðs Hafnarfjarðar vegna fjárlagagerðar 2017 lagðar fram.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2017.
Lagðir fram minnispunktar vegna endurnýjunar á samningi við Stangveiðifélag Hafnarfjarðar
Bæjarráð heimilar að gengið verði til samninga við Stangveiðifélag Hafnarfjarðar.
Ársskýrsla Orlofsnefndar húsmæðra í Hafnarfirði 2015 lögð fram.
Lagt fram.
Kynnt umsókn Brynju hússjóðs Öryrkjabandalagsins um lóðina Kvistavelli 63-65.
Bæjarráð óskar eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs.
Kynnt umsókn Viðju ehf. um lóðina Kvistavellir 66-72.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 12.maí sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 29.apríl sl., 243.fundur.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 3.maí sl.