In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Kristján Sturluson sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Kynning á “Facebook at work” lausninni fyrir innri vef.
Á fundinn mæta Andri Ómarsson verkefnisstjóri og Árdís Ármannsdóttir samskiptastjóri.
Kynning.
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir 8 mánuði.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir á fundinn.
Lagt fram.
Skv. 4. gr. staflið A í reglum um Öldungaráð á bæjarráð að “halda a.m.k. einn fund með stjórn öldungaráðs þar sem kynntar eru með góðum fyrirvara hugmyndir og tillögur í fjárhagsáætlun sem varða álagningu gjalda og heimildir til niðurfellinga og lækkunar til handa eldri borgurum”
Stjórn Öldungaráðs Hafnarfjarðar mætir á fundinn.
Fulltrúar frá SSH mæta á fundinn.
Bæjarráð Hafnarfjarðar þakkar góða kynningu og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf hlutaðeigandi við undirbúning verkefnisins.
Lagðir fram tölvupóstar vegna tilkynningar frá Lífeyrissjóðnum Brú (áður LSS) um hækkun mótframlags í A-deild frá næstu áramótum. Rósa Steingrímsdótir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir á fundinn.
Lagt fram bréf Félags atvinnurekenda v. fasteignagjalda.
Lagt fram og vísað til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun vegna fjármálasviðs, stjórnsýslusviðs og menningar- og ferðamála. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir á fundinn.
Lagt fram svar innanríkisráðuneytisins við fyrirspurn um tímasetningu á afgreiðslu tillögu að fjárhagsáætlun. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir á fundinn.
Farið yfir tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunar.
Lögð fram tilboð sem bárust í lóðir vegna fjöleignahúsa í 1. áfanga Skarðshlíðar. Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður mætir á fundinn.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Lagður fram listi yfir 16 lóðir sem HS veitur óska eftir að gerðir verða lóðarleigusamningar um.
Á fundi í forsetanefnd 30.09.2016 var eftirfarandi mál tekið fyrir og afgreiðsla þess var:
1606514 Fulltrúar í sveitarstjórnum, viðmiðunarlaunatafla: Það er sameiginleg tillaga forsetanefndar að hlutfall af þingfararkaupi verði útfært á þann veg að ekki leiði til hækkana sbr. fylgiskjal. Nefndin er sammála um að tenging við þingfararkaup sé í samræmi við nýlegar tillögur og viðmiðunartöflu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Frekari breytingar á launum og starfshlutfalli telur nefndin þurfa að vera í samhengi við endurskoðun á starfsumhverfi kjörinna fulltrúa hjá Hafnarfjarðarbæ. Forsetanefnd leggur til við bæjarráð að settur verði saman starfshópur sem fái það hlutverk.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.
Hákon Örn Ómarsson f.h. Græna Víkingsins afsalar lóðinni með tölvupósti þann 19.9.2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar Selhellu 6 til Græna Víkingsins ehf. verði afturkölluð.
Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fram fara 29. október lögð fram. Á kjörská eru 20.689.
Bæjarráð staðfestir framlagða kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fram fara 29.október nk.
Endurskoðaðir samningar við velferðarráðuneyti lagðir fram.
Bæjarráð vísar endurskoðuðum samningum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Lagt til að Almenna íbúaðfélaginu hses verði úthlutað lóðinni Hraunskarð 2. Jafnframt að Hafnarfjarðarkaupstaður samþykki að veita 12% stofnframlag. Stofnframlagið verði veitt í formi samsvarandi kostnaðar við lóð. Jafnframt samþykkt að komið verði á samstarfshóp vegna verkefnisins og uppbyggingar á komandi árum sbr. viljayfirlýsingu ASÍ og Hafnarfjarðarbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Almenna íbúðafélaginu hses verði úthlutað lóðinni Hraunskarð 2. Jafnframt samþykkir bæjarráð að komið verði á samstarfshóp vegna verkefnisins og uppbyggingar á komandi árum sbr. viljayfirlýsingu ASÍ og Hafnarfjarðarbæjar.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs frá 21.sept. sl., 366.fundur.
Fundargerðir heilbrigðisnefndar frá 26.09.2016 og 3.10.2016 lagðar fram.