In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.
Bergsteinn Jónsson framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi kemur á fundinn og kynnir barnvæn sveitarfélög.
Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Fanney Dóróthe Halldórsdóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundaþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Á fundi bæjarstjórnar 7. 12. 2016 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar eftirfarandi tillögu: ,,Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að óska eftir samstarfi við Unicef og Akureyrabæ við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í allt sitt starf, reglur, samþykktir og stefnur til að uppfylla þær kröfur til að gerast Barnvænt samfélag og ná því markmiði að fá vottun vegna þessa og felur bæjarráði úrvinnslu þess og stofnun stýrihóps um verkefnið.“
Bæjarráð þakkar framkvæmdastjóra UNICEF kynninguna og felur bæjarstjóra undirbúning stýrihóps vegna verkefnisins fyrir haustið.
Til fundarins mættu Samúel Guðmundsson, formaður Hauka og Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri.
Geir Bjarnason íþróttafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarstjóra falin nánari greining á erindinu.
Til fundarins mættu Samúel Guðmundsson, formaður Hauka og Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri Hauka.
Erindinu er vísað til umhverfis- og framkvæmdaráðs til skoðunar.
Jón Rúnar Halldórsson og Viðar Halldórsson frá FH komu á fundinn.
Fram kom á fundinum að ekki sé vilji af hálfu FH til þess að gervigrasvöllur á Kaplakrika verði endurnýjaður eins og samþykkt var í fjárhagsáætlun 2017 en ítrekuð var beiðni um byggingu knatthúss, Skessunnar.
Lagt fram svar við fyrirspurn sem lögð var fram á bæjarráðsfundi þann 23. mars s.l.
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænna legga fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna þakka framlögð svör. Það er ánægjulegt að sjá skýr ákvæði í nýjum þjónustusamningum við íþróttafélögin sem styður við þá hugmynd að öll börn eigi þess kost að stunda íþrótta- og tómstundastarf óháð efnahag. Mikilvægt er tryggja að þær leiðir sem til boða eru utan samninganna séu starfsmönnum og þjálfurum kunnar svo hægt sé að grípa inn í þegar þess er þörf. Hvetjum við til þess að samstarfi við ÍBH um það hvernig eftirfylgni með samningunum sé háttað verði hraðað.
Lagt fram bréf frá HS Veitum dags. 23.mars sl.
Erindinu er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 29. mars sl. að vísa eftirfarandi tillögu til bæjarráðs.
Í ljósi alvarlegs skorts á leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði á húsnæðismarkaði leggja fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar til að Hafnarfjarðarbær stofni leigufélag sem ekki er rekið í hagnaðarskyni (non profit leigufélag) skv. heimild 38. gr. laga nr. 44/1998 um húsnæðismál. Leigufélagið væri húsnæðissjálfseignarstofnun sem sæi um byggingu íbúða sem standa almenningi til boða til leigu á tillits til efnahags eða annarra aðstæðna, gegn viðráðanlegu leigugjaldi sem miðast við afborganir, vexti af lánum, vaxtakostnað, almennann rekstrarkostnaðar og annars kostnaðar af íbúðinni.
Bæjarstjóra falið að skoða málið.
Lagt fram erindisbréf um skipun í starfshóp um framtíðarnotkun St. Jósefsspítala
Lagt fram.
Lagt til að Strandgata 4 verði auglýst til leigu.
Lagt til að Straumur verði auglýstur til sölu.
Bæjarráð samþykkir að Strandgata 4 verði auglýst til leigu. Ákvörðun um Straum er frestað.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu málsins.
Adda María Jóhannsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjóra falið að ræða við fulltrúa Rimmugýgjar um möguleika á notkun húnæðisins Kató um starfsemi félagsins.
7.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 4.apríl sl. Tekin fyrir á ný tillaga Yddu arkitekta ehf. að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar ásamt greinagerð/skilmálum. dags. 13.12.2016. Deiliskipulagið var auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 28.12.2016-13.02.2017. Athugasemd bárust og fól skipulags- og byggingarráð skipulagsfulltrúa að taka saman svör við athugasemdunum.. Lögð fram greinagerð skipulagsfulltrúa vegna athugasemda sem bárust dags. 03.04.2017. Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Skarðshlíðar 2. áfanga og að málsmeðferð verði lokið í samræmi við 42.gr skipulagslaga 123/2010. og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að deilskipulagi Skarðshlíðar 2. áfanga og að málsmeðferð verði lokið í samræmi við 42.gr. laga 123/2010.” Skipulags- og byggingarráð vekur athygli á bókun bæjarstjórnar 29.3.2017 varðandi afgreiðslu þessa máls.
Á bæjarstjórnarfundi þann 29.3.2017 samþykkti bæjarstjórn eftirfarandi tillögu: “Komi til þess að á fundi skipulags- og byggingarráðs, sem haldinn verður þann 4 apríl nk., verði samþykkt að vísa tillögu að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar 2 til samþykktar í bæjarstjórn, samþykkir bæjarstjórn samhljóða að veita bæjarráði umboð til að afgreiða málið f.h. bæjarstjórnar samkvæmt ákvæðum skipulagslaga.”
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
Umsögn
Bæjarráð fagnar framkomnu frumvarpi og leggur áherslu á við Alþingi að það verði samþykkt.
Lagt fram kauptilboð í íbúð að Eskivöllum 1.
Bæjarráð samþykkir framlagt kauptilboð í íbúð að Eskivöllum 1.
Lögð fram umsókn RK bygg ehf um lóðina Suðurhella 9.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að RK bygg ehf verði úthlutað lóðinni Suðurhellu 9.
Endurnýjun lóðarleigusamnings
Bæjarráð samþykkir endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Mjósunds 13.
Endurnýjun lóðarleigusamings.
Bæjarráðs samþykkir endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Kirkjuvegar 8.
Endurnýjun lóðaleigusamnings
Bæjarráð samþykkir endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Lónsbrautar 70.
Ársskýrsla og ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis vegna 2016 lögð fram.
Tilnefning í samráðshóp.
Bæjarráð samþykkir að skipa Sigurð Haraldsson og Helgu Stefánsdóttur í samráðshóp við Vegagerðina um gerð tillagna um lúkningu á tvöföldun Reykjanesbrautar innan Hafnarfjarðar. Tillögur liggi fyrir eigi síðar en 1. október nk.
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna óska eftir upplýsingum um afdrif eftirfarandi tillögu sem lögð var fram í bæjarstjórn þann 10. desember 2014. Bæjarfulltrúar Samfylkingar og VG leggja til að 2 milljón króna fjárveiting verði samþykkt til að standa undir kostnaði við verkefnið Lýðræðisvika í október, sem hófst á síðasta kjörtímabili og á sér fyrirmynd í hinni samevrópsku lýðræðisviku sveitarfélaga innan Evrópuráðsins. Sérstök áhersla verði á fræðslu um lýðræðismál í leik- og grunnskólum og áhugasömum starfsmönnum leik- og grunnskóla verði gert kleift að kynna sér sambærileg verkefni og fyrirmyndir í öðrum löndum. Markmiðið er að hvetja til lýðræðislegrar umræðu á öllum skólastigum og virkja þannig þátttöku ungs fólks í mótun bæjarins. Tillögunni var vísað til umfjöllunar í bæjarráði þar sem hún var samþykkt 15. janúar 2015.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 23.mars sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Hafnarborgar frá 23.mars sl.
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.mars sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24.mars sl., 848.fundur.
Lögð fram fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 10.mars sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 24.mars sl.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SSH frá 6. og 13.mars sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17.mars sl.