In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti til fundarins.
Bæjarráð í umboð bæjarstjórnar samþykkir lántökur í samræmi við fjárhagsáætlun og felur bæjarstjóra að ganga frá lántökunni í samræmi við minnisblað.
Bæjarráð tekur undir niðurstöður í framlögðu lögfræðiáliti og felur sviðsstjóra fjármálasviðs að afgreiða málið.
Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti til fundarins.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir framlagðarn viðauka.
Lagt fram minnisblað. Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskylduþjónustu mætir til fundarins
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir stöðu málsins.
Guðlaug Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi Bæjarlistans leggur fram svohljóðandi bókun:
Að fenginni reynslu er brýnt að sérstaklega verði hugað að viðkvæmustu notendum ferðaþjónustu við endurskoðun útboðs og þjónustuforms. Fólki sem síst þolir röskun á högum sínum og þarf ríkan stuðning vegna t.d. tjáningarmáta eða einhverfu. Notandinn á að vera í forgrunni, ekki kerfið. Þjónustutími er meðal þess sem þarf að skoða, en í dag er t.d. þjónustutími Strætó til grundvallar, sem er fyrst og fremst valkostur í samgöngum. Notendur ferðaþjónustu hafa margir ekki aðra valkosti og þurfa að geta komist leiðar sinnar á helgidögum og svo framvegis. Að auki hvet ég bæjarfulltrúa til að skoða málið með opnum hug, ekki gera breytingar breytinganna vegna heldur út frá málefnalegum forsendum á grundvelli yfirstandandi mats.
Lagt fram boð frá Ulric Getsch yfirborgarstjóra Cuxhaven í afmælishóf sem haldið verður í Cuxhaven 8. september n.k.
Andri Ómarson, verkefnastjóri mætti til fundarins.
Bæjarráð samþykkir að senda fimm fulltrúa frá Hafnarfjarðarbæ til afmælishófs í Cuxhaven 8. september nk.
Lagt fram bréf frá bæjarstjóra Tartu, vinabær Hafnarfjarðar.
Lagt fram.
Lóðarstækkun á Norðurbraut 11.
Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt mætti til fundarns.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir lóðarstækkun á Norðurbraut 11 og samþykkir endurnýjaðan lóðarleigusamning.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði á fundi sínum þ. 16.maí sl. eftirfarandi erindi til bæjarráðs: 1805224 – Blátunnulosun Lagt fram minnisblað um breytingar á losun blátunnu. Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að auka tíðni losunar úr 28 dögum í 21 dag. Erindinu er vísað í bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til fjárhagsáætlunargerðar 2019.
Lagt fram kauptilboð ásamt söluyfirliti í íbúð að Engjavöllum 5B
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir kaup á íbúð að Engivöllum 5B.
Beiðni frá lóðarhafa Selhellu 8 að framselja lóðina til HS veitna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og samþykkir að fela sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsþjónustu að gera minnisblað um ákvæði um framsal lóða. Minnisblaðið liggi fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
Beiðni um lóðarskipti Miðhellu 1 og Selhellu 10.
Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Móbergsskarði 1 þar sem fram kemur að óskað er eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir afsal Bjargar Gilsdóttur og Guðmundar Karlssonar á lóðinni Móbergsskarði 1.
Lagt fram svar kjörstjórnar Hafnarfjarðar vegna fyrirspurnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta gera greiningu á þéttni byggðar og almennum samgöngum með tilliti til staðsetningar kjörstaða.
Adda María Jóhannsdóttir fulltrúi Samfylkingar leggur til eftirfarandi:
Samkvæmt meðfylgjandi greinargerð um staðsetningu kjörstaða í bænum kemur fram mat yfirkjörstjórnar á því að kjörstaðir sem notaðir hafa verið undanfarið hafi þjónað hlutverki sínu vel. Í Sveitarstjórnarkosningunum árin 2014 og 2018 hefur kjörsókn í bænum verið dræm sem hlýtur að gefa tilefni til hugleiða það að fjölga kjörstöðum í bænum. Íbúum bæjarins fjölgar jafnt og þétt og með áframhaldandi uppbyggingu í Skarðshlíð er ljóst að mest verður fjölgunin sunnan Reykjanesbrautar. Í ljósi þessa legg ég til að staðsetning á kjörstöðum verði endurskoðuð og hugað að því að fjölga kjörstöðum í þrjá fyrir næstu alþingis- og sveitarstjórnarkosningar og bætt verði við kjörstað í Vallarhverfi.
Lagt fram þakkarbréf frá félagi eldri borgara vegna stuðnings við 50 ára afmælishátíð félagsins.
Lagt fram til kynningar. Samband ísl. sveitarfélaga stendur fyrir námsferð til Danmerkur 2.-6. september nk.
Lagt fram til kynningar.
Tillaga um launuð námsleyfi lögð fram.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að fjórum aðilum verði veitt launað námsleyfi.
Leiðrétt mistök frá síðsta bæjarstjórnarfundi.
Tilnefning varaáheyrnafulltrúa í færðsluráð er Harpa Þrastardóttir, Hamarsbraut 16, ekki Harpa Þorsteinsdóttir.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir tilnefninguna.
Barnavernd, lagður fram eftirfarandi listi fulltrúa:
Aðalmenn: Þórdís Bjarnadóttir, Heiðvangi 80 XD Mjöll Flosadóttir Traðarbergi 5, XD Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Miðvangi 10, XB Dagbjört Rún Guðmundsdóttir, Krókahrauni 12 xS Heimir Hilmarsson, Holtabyggð 1 Xc
Varamenn: Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Lækjarkinn 6,xD Jóhanna Fleckenstein, Arnarhrauni 20, xB Matthías Freyr Matthíasson, Suðurvangi 4, xS Sveindís Jóhannsdóttir, Svalbarði 9 xC
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir tilnefningar í barnaverndarnefnd.
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gerð verði úttekt á ástandi byggingar Menntasetursins við Lækinn (gamla Lækjarskóla) og viðhalds- og endurbótaþörf metin og kostnaðargreind. Einnig verði unnar tillögur að framtíðarstarfsemi í húsinu.“
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir úttekt á ástandi byggingar Menntasetursins við Lækinn og kostnaðarmetin viðhalds- og endurbótaþörf verði lögð fram á næsta fundi ráðsins.
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs: “Til að auka stuðning við ungt fólk í Hafnarfirði leggja fulltrúar Samfylkingar til eftirfarandi: Tryggt verði aðgengi að sálfræðingum í öllum grunnskólum bæjarins ásamt því að boðið verði upp á sálfræðiþjónustu fyrir 16-18 ára börn í Ungmennahúsi. Til að jafna og auðvelda aðgengi ungmenna að tómstundum leggjum við til að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði strætókort fyrir börn að 18 ára aldri sem verði þeim að kostnaðarlausu. Þannig minnkum við líka skutl og styðjum við umhverfissjónarmið. Þá leggjum við einnig til að börn að 18 ára aldri fái frían aðgang að Bókasafni Hafnarfjarðar.”
Þeim hluta tillögunnar sem snýr að sálfræðingum í grunnskólum bæjarins og Ungmennahúsi var vísað til fræðsluráðs til umfjöllunar. Fræðslusvið hefur einnig til vinnslu niðurgreiðslu á strætókortum. Bæjarstjóra falið að kostnaðarmeta frían aðgang að Bókasafni Hafnarfjarðar fyrir næsta fund bæjarráðs.
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs: “Mikilvægt er að Hafnarfjarðarbær stuðli að aukinni samveru fjölskyldna með skrefum í átt að styttingu vinnuviku ásamt því að stuðla enn frekar að styttri vinnudegi barna með aukinni samþættingu skóla og frístunda. Fulltrúar Samfylkingar leggja til að hafin verði undirbúningur á tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar í stofnunum bæjarins.”
Bæjarstjóra falið að halda áfram úrvinnslu málsins.
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs: “Áhersla á lýðheilsu á að vera forgangsmál í hverju samfélagi. Mikilvægt er að Hafnarfjarðarbær gangi fram með góðu fordæmi og stuðli að aukinni lýðheilsu starfsfólks. Fulltrúar Samfylkingar leggja til að teknir verði upp samgöngusamningar við starfsfólk bæjarins. Það eflir lýðheilsu og styður við umhverfissjónarmið.”
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka saman upplýsingar um mögulegt fyrirkomulag samgöngusamninga og kostnaðarmat.
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 20.júní sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs: “Stytting vinnuviku hjá starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar, tilraunaverkefni Hafið verði verkefni um styttingu vinnuviku í samráði við stéttarfélög og starfsfólk bæjarins. Starfsfólk félagsþjónustu hefur þegar óskað eftir slíkri tilraun og fjallaði bæjarráð um þá tillögu á fundi sínum þann 20. apríl síðastliðinn. Var bæjarstjóra falið að taka málið til skoðunar (1803258 – Stytting vinnuvikunnar, erindi). Einnig verði tekið upp samtal við aðrar stofnanir bæjarins um mögulegan áhuga á sambærilegu verkefni”
Bæjarráð vísar til bókunar í máli 20.
Fulltrúi Samfylkingar hvetur fulltrúa til að ganga frá hagsmunaskráningu innan settra tímamarka.
Guðlaug Kristjánsdóttir fulltrúi Bæjarlistans Hafnarfirði ber upp svohljóðandi fyrirspurn:
Fyrirspurn, óskast svarað í bæjarráði: Óskað er eftir kostnaðaráætlun meirihlutasáttmála Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, aðallega vegna sérgreindra verkefna: Stjórnsýsluúttekt Matráðar í skólum Sængurgjöf Aukin framlög og styrkir í mennta- og menningarmálum Hækkun frístundastyrkja Hjólabrettasvæði Hreyfigarður Knatthús Kaplakrika Knatthús Ásvöllum Endurbætur á Suðurbæjarlaug Uppbygging hjóla- og gönguleiða Rafhleðslustöðvar Framboð lóða í samræmi við eftirspurn Endurbætur á Hellisgerði Þjónustustarfsemi í Krýsuvík Lækkun gjalda almennt Lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði Þessi sáttmáli inniheldur fjölmörg verkefni sem munu kosta aukin útgjöld, fjölgun stöðugilda og fleira. Einnig mörg markmið um minni innheimtu gjalda. Að lokum, spurningar um Krúttkörfu: -undir hvaða bókhaldslið flokkast þessi fjárfesting? -hvernig verður innkaupum háttað? Verður tekið tillit til umhverfissjónarmiða (taubleyjur, fjárfesting í plasti), árvekni gegn mansali (hvar framleitt og af hverjum? Barnavinna/félagsleg undirboð?).
Fyrirspurn vísað til næsta fundar bæjarráðs.
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 28.maí sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 18.maí sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 15.júní sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 18. maí sl.