In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Kynning á drögum að stefnu Strætó og áherslum næstu ára.Jóhannes S. Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó bs. og Björg Fenger stjórnarformaður Strætó mæta til fundarins.
Lagt fram til kynningar.
Andri Ómarsson verkefnastjóri, mætir til fundarins og segir frá heimsókn á vinabæjarmótið.
Lagt fram.
Lagt fram boðsbréf dags. 29.maí sl. á vinabæjarmót í Uppsala árið 2021. Andri Ómarsson verkefnastjóri, mætir til fundarins.
Lagt fram bréf frá Sambandi ísl. sveitarfélaga dags. 28.maí sl. varðandi val á sveitarfélögum til að taka þátt í íbúasamráðsverkefni Sambands ísl. sveitarfélaga og Akureyrarkaupstaðar. Andri Ómarsson verkefnastjóri, mætir til fundarins.
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu, Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs og Örn Guðmundsson frá VSB mæta á fundinn.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til aukafundar ráðsins sem verður þriðjudaginn 11. júní nk. kl. 9.
Adda María Jóhannsdóttir fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurnir: Varðandi umræður um samkomulag um uppgjör vegna hjúkrunarheimilis á Sólvangi óskar fulltrúi Samfylkingar eftir svörum við eftirfarandi: – Frá áramótum hafa staðið viðræður við verktaka vegna verksins. Hvers vegna hefur staða málsins ekki verið kynnt bæjarráði fyrr en nú? – Hversu miklar tafir hafa orðið á verkefninu frá upphaflegri áætlun og hvaða ástæður eru fyrir þeim töfum? – Hver var upphafleg kostnaðaráætlun við nýtt hjúkrunarheimili á Sólvangi? Hvað var gert ráð fyrir að framkvæmdir myndu kosta skv. fjárhagsáætlun og hvað er nú gert ráð fyrir að heildarkostnaður verði mikill? – Hver er greiðslustaða verkefnisins nú, þ.e. hvað hefur Hafnarfjarðarbær greitt vegna framkvæmda við nýtt hjúkrunarheimili á Sólvangi?
Adda María Jóhannsdóttir
3.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 22. maí sl. Lagðar fram lykiltölur fyrir fyrstu 3 mánuði ársins sem og breytingar í fjárfestingum 2019. Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar breytingar í fjárfestingum 2019 og vísar til bæjarráðs.
Lagður fram viðauki.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir framlagaðan viðauka og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fulltrúi Samfylkingarinnar situr hjá við afgreiðslu framlagðs viðauka og leggur fram eftirfarandi bókun: Framlögðum tillögum Samfylkingarinnar um uppbyggingu á leikskóla í Öldutúnsskólahverfi hefur ítrekað verið hafnað. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra ákváðu þess í stað að stækka leikskólann Smáralund til að bregðast við skorti á leikskólaplássum í hverfinu. Nú hefur þeirri framkvæmd einnig verið frestað um óákveðin tíma þar sem lagt er til að lækka framlög til undirbúnings stækkunarinnar úr 15 m.kr. í 5 m.kr. Gert er ráð fyrir að viðbótarkennslustofa verði sett á lóðina sem gerir ráð fyrir 20 plássum til viðbótar en uppfyllir engan veginn þörfina sem fyrir er í hverfinu sem við síðustu samantekt voru rúmlega 100 pláss. Óskað er svara við því hvað eigi að rúmast innan þeirra 5 milljóna sem nú eru áætlaðar í stækkun leikskólans. Minnt er á að enn bíða þá foreldrar barna í Öldutúnsskólahverfi eftir að þessari mikilvægu nærþjónustu sé sinnt með viðunandi hætti innan hverfisins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi: Fræðsluráð samþykkti á fundi sínum 9. maí 2019 að kennslustofu verði komið fyrir á lóð Smáralundar. Við þá breytingu getur nemendum í Smáralundi fjölgað úr 50 í 70. Auk þess er rétt að benda á að nýr leikskóli í Skarðshlíð muni bæta við annarri deild í haust, til viðbótar við það sem áætlað var og opna tvær deildar í haust í stað einnar, alls 37 nemendur.
Lagt fram bréf til frá fjármála- og efnahagsráðuneyti dags. 3. maí 2019 um breytingar á lögum um opinber innkaup er varða sveitarfélögin.
Guðmundur Ragnar Ólafsson innkaupastjóri mætir til fundarins. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð felur innkaupastjóra að endurskoða innkaupareglur Hafnarfjarðarkaupstaðar m.t.t. nýrra laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Ósk um nýtt húsnæði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við aðila í samræmi við umræður á fundinum.
Ný lóð Hverfisgata 12.
Bæjarráð samþykkir að lóðin nr. 12 við Hverfisgötu verði auglýst laus til úthlutunar fyrir flutningshús skv. deiliskipulagi. Lóðarverð er lágmarksverð einbýlishúsalóða nú 13.065.540. Umsækjendur skulu skila ítarlegri greinargerð um það hús sem fyrirhugað er að flytja á lóðina og framkvæmdina að öðru leyti.
Endurnýjun lóðarleigusamnings.
Bæjarráð samþykkir endurnýjun lóðarleigusamnings og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Lögð fram umsókn Helgu Lindberg Jónsdóttur og Sumarliða Dagbjarts Gústafssonar um einbýlishúsalóðina nr. 7 við Tinnuskarð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Tinnuskarði 7 verði úthlutað til Helgu Lindberg Jónsdóttur og Sumarliða Dagbjarts Gústafssonar.
Lögð fram umsókn Einars Jóns Blandon um parhúsalóðina nr. 28-30 við Tinnuskarð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Tinnuskarði 28-30 verði úthlutað til Einars Jóns Blandon.
Lögð fram umsókn Edmunds Kampe um einbýlishúsalóðina nr. 3 við Völuskarð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Völuskarði 3 verði úthlutað til Edmunds Kampe.
Lögð fram umsókn Írisar Kristinsdóttur og Grettis Adolfs Haraldssonar um einbýlishúsalóðina nr. 4 við Völuskarð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Völuskarði 4 verði úthlutað til Írisar Kristinsdóttur og Grettis Adolfs Haraldssonar.
3.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 10. maí sl. Hálfdán Karl Þórðarson, umsjónarmaður fasteigna mætir á fundinn.
Fjölskylduráð þakkar Hálfdáni fyrir kynninguna. Fjölskylduráð samþykkir tillögu um sölu á íbúð í Suðurhvammi og vísar tillögunni til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir skv. tillögu fjölskylduráðs að fasteignin Suðurhvammur 11, íbúð 0401, fastanúmer 2079904, verði seld og annað hentugra húsnæði keypt í staðinn.
Lagður fram tölvupóstur frá Unicef á Íslandi dags. 22.maí sl. þar sem sveitarfélög eru hvött til að setja sér heildstætt og samræmt verklag, vegna gruns um ofbeldi og vanrækslu fyrir allar stofnanir sem starfa með börnum.
Bæjarráð bendir á að í gegnum nýundirritaðan samning milli Hafnarfjarðarkaupstaðar og ÍBH er formleg samþykkt um stofnun óháðs fagráðs sérfræðinga í Hafnarfirði sem tekur á ágreinings- og álitamálum frá íþróttafélögum í Hafnarfirði varðandi mál sem tengjast ofbeldi, þar á meðal kynferðislegu ofbeldi og eineltismálum. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til frekari vinnslu og skoðunar hjá fjölskylduráði.
Lögð fram stefna Enor ehf. á hendur Ríkiskaupum og Hafnarfjarðarkaupstað.
Bæjarráð felur bæjarlögmanni að taka til varna í málinu.
Lagðar fram fundargerðir Kaplakrikahóps frá 17.maí og 3.júní sl.
Lögð fram fundargerð starfshóps um Ásvelli frá 14.maí sl.
Lögð fram fundargerð starfshóps um miðbæ, deiliskipulag, frá 7.maí sl.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 29.maí sl.
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.maí sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 16.maí sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 29.maí sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 29.maí sl.
Lagðar fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 29. apríl og 29. maí sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17. maí sl.