Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bæjarstjórn

22. January 2014 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Meeting 1717

Attended

  • Lúðvík Geirsson aðalmaður
  • Margrét Gaua Magnúsdóttir forseti
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Eyjólfur Sæmundsson aðalmaður
  • Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Geir Jónsson aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri
  • Ólafur Ingi Tómasson varamaður
  • Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir varamaður

Secretary

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 04.12.13, 11.12.13., 18.12.13 og 08.01.14. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.$line$ $line$Lagt fram.$line$

      Lagt fram til kynningar.

    • 1006284 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar heildarendurskoðun.

      Lögð fram uppfærð aðalskipulagsgreinargerð fyrir þéttbýli, uppland og Krýsuvík dags. 17.01.2014, þar sem brugðist hefur verið við innkomnum umsögnum. Lagður fram uppfærður skipulagsuppdráttur fyrir þéttbýli og uppland dags. 17.01.2014 ásamt séruppdrætti fyrir Krýsuvíkurhlutann dags. 14.01.2014. Áður lögð fram og samþykkt uppfærð samantekt umsagna og tillaga að svörum við þeim. Lögð fram uppfærð umhverfisskýrsla fyrir breytingar frá AH 2005-2025 dags. janúar 2014.$line$$line$Tillaga að afgreiðslu: $line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 til auglýsingar skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010: Greinargerð dags. 17.01.2014, skipulagsuppdrátt fyrir þéttbýli og uppland dags. 17.01.2014, séruppdrátt fyrir Krýsuvík dags. 14.01.2014 og umhverfisskýrslu aðalskipulags dags. janúar 2014.”$line$

      Til máls tók Sigríður Björk Jónsdóttir, þá bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, síðan Ólafur Ingi Tómasson, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við ræðu Ólafs Inga Tómassonar, Margrét Gauja Magnúsdóttir kom einnig að andsvari við sömu ræðu og tók Kristinn Andersen við stjórn fundarins á meðan. $line$Þá tók Lúðvík Geirsson til máls,síðan Sigríður Björk Jónsdóttir, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir koma að andsvari. Gunnar Axel Axelsson tók þessu næst til máls, síðan Eyjólfur Sæmundsson.$line$$line$Bæjatjórn Hfnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 0901125 – Fjárhagsaðstoð, reglur

      1. liður úr fundargerð FJÖH frá 19.des.sl.$line$Kynntar tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ. Soffía Ólafsdóttir og Guðríður Guðmundsdóttir Félagsþjónustu mættu til fundarins.$line$$line$Fjölskylduráð samþykkir reglur um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ.$line$$line$Fjölskylduráð vísar reglum þessum til staðfestingar í bæjarstjórn.$line$

      Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls og tók Kristinn Andersen við stjórn fundarins undir ræðu hennar, Geir Jónsson kom að andsvari við ræðu Margrétar Gauju Magnúsdóttur.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi reglur með 11 samhljóða atkvæðum.$line$$line$

    • 0908195 – Leiguhúsnæði og húsaleigubætur, reglur um úthlutun

      2.liður úr fundargerð FJÖH frá 19.des. sl.$line$Kynntar tillögur að breytingum á reglum um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur. Soffía Ólafsdóttir og Guðríður Guðmundsdóttir Félagsþjónustu mættu til fundarins.$line$ $line$Fjölskylduráð samþykkir breytingar á reglum um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur til samræmis við lagaákvæði 3.mgr. 10.gr.laga um húsaleigubætur frá 1997. $line$Og fellir þá úr gildi bókun fjölskylduráðs frá 2.mars 2011. $line$$line$Fjölskylduráð vísar reglum þessum til staðfestingar í bæjarstjórn.$line$

      Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls, Geir Jónsson kom að andsvari.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi reglur með 11 samhljóða atkvæðum.$line$$line$

    • 1205349 – Íþróttastyrkir 16 ára og yngri. ÍBH-Rio Tinto- Hafnarfjarðarbæjar.

      4. liður úr fundargerð FJÖH frá 19.des. sl.$line$Íþrótta- og tómstundanefnd vísaði drögum að samningi til fjölskylduráðs. Ingvar Jónsson íþróttafulltrúi mætti til fundarins.$line$ $line$Fjölskylduráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.$line$

      Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi samning með 11 samhljóða atkvæðum.$line$$line$Margrét Gauja Magnúsdóttir tók við stjórn fundarins að nýju.

    • 1210361 – Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2013-2016

      8.liður úr fundargerð BÆJH frá 19.des. sl.$line$Lagður fram viðauki IV við fjárhagsáætlun ársins 2013.$line$ $line$Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir viðauka IV við fyrirliggjandi fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar fyrir árið 2013.”$line$

      Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi viðauka IV við fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar 2013 með 6 atkvæðum, 5 bæjarfulltrúar sitja hjá við afgreiðsluna.

    • 1204187 – Sorphirða í Hafnarfirði - útboð

      9.liður úr fundargerð BÆJH frá 16.jan.sl.$line$4. liður úr fundargerð UMFRAM frá 15.jan.sl. $line$Tekið til umræðu. Til fundarins mætti Ishmael David$line$ $line$Umhverfis- og framkvæmdarráð þakkar kynninguna og fagnar þeim góða árangri sem er að nást í flokkun sorps. $line$Umhverfis- og framkvæmdarráð óskar eftir því við bæjarráð að samþykkt hækkun sorphirðugjalda fyrir 2014 verði dregin til baka. $line$$line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi tillögu: $line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vill leggja sitt af mörkum með aðilum vinnumarkaðarins til að halda niðri verðlagi í landinu og skapa stöðugleika í efnahagsmálum. Í ljósi þessa samþykkir bæjarstjórn að draga til baka áður samþykktar breytingar á sorphirðugjaldi fyrir árið 2014.$line$

      Gunnar Axel Axelsson tók til máls, þá Ólafur Ingi Tómasson, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari við ræðu Ólafs Inga Tómassonar.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 10 samhljóða atkvæðum.

    • 1305167 – Austurgata, Reykjavíkurvegur, Hverfisgata deiliskipulag.

      3.liður úr fundargerð SBH frá 14.janúar sl.$line$Tekið til umræðu deiliskipulag reits sem afmarkast af Austurgötu, Reykjavíkurvegi, Álfaskeiði, lóðamörkum húsa austan Hverfisgötu og Læknum. Að hluta til nýtt skipulag og að hluta til endurskoðun deiliskipulags Miðbæjar 1981. Deiliskipulag Hverfisgata-Mjósund-Austurgata-Gunnarssund verði fellt inn í deiliskipulagið. Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu og húsaskráning (vinnuskjal).$line$ $line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagslýsinguna með áorðnum breytingum, þ.m.t. stækkun skipulagsreitsins þannig að austurmörk hans verði við Arnarhraun, og að farið verði með lýsinguna skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Nafni svæðisins verði breytt í Miðbær-Hraun austur. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulagsslýsingu fyrir Miðbæ-Hraun dags. 14.1.14, þ.m.t. stækkun skipulagsreitsins þannig að austurmörk hans verði við Arnarhraun, og að farið verði með lýsinguna skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”$line$

      Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar saþykkti fyrirliggjandi tillögu með 10 samhljóða atkvæðum.

    • 1006250 – Hafnarfjarðarstofa

      Tillaga til bæjarstjórnar:$line$Bæjarstjórn samþykkir á grundvelli fyrirliggjandi tillögu starfshóps um stofnun Hafnarfjarðarstofu að fela bæjarráði að undirbúa og hefja rekstur hennar. Skal bæjarráð taka mið af þeim tillögum hópsins sem fela í sér að Hafnarfjarðarstofa skuli sinna fjölþættu markaðs- og kynningarstarfi, umsjón viðburða og tengdra verkefna. $line$

      Gunnar Axel Axelsson tók til máls, þá tók bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir til máls, Kristinn Andersen kom að andsvari.$line$Rósa Guðbjartsdóttir tók síðan til máls, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur.$line$Eyjólfur Sæmundsson tók þá til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 1210486 – Sjúkraflutningar, samningur

      Lögð fram eftirfarandi tillaga að ályktun:$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir fullum stuðningi við stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í þeirri vinnu sem farið hefur fram óslitið frá því í október 2011 vegna endurnýjunar á samningi á sjúkraflutningum SHS. Samlegðaráhrif sjúkraflutninga og slökkviliðs eru ótvíræð auk þess sem fyrirsjáanleg fækkun slökkviliðsmanna í SHS vegna aðskilnaðs sjúkrafutninga frá slökkviliði mun skerða öryggi þeirra sem SHS þjónar.$line$Skorað er á ríkisstjórn Íslands að efna samning við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um sjúkraflutninga á svæðinu sem gerður var í febrúar 2013. Sá samningur hefur hvorki verið undirritaður né hefur ríkið greitt fyrir þjónustuna í samræmi við kostnaðarmat sem honum lá til grundvallar. Á meðan svo er niðurgreiða sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sjúkraflutninga en taka skal fram að sjúkraflutningar eru á verksviði ríkisins samkvæmt lögum.$line$

      Ólafur Ingi Tómasson tók til máls og gerði grein fyrir ofangreindri tillögu, þá bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi ályktun með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 1309240 – Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar og stofnana hans 2014-2017

      Lagður fram viðauki I við fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar 2014.

      Gert var stutt fundarhlé.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi viðauka við fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar með 6 samhljóða atkvæðu, 5 bæjarfulltrúar sitja hjá.

    • 1401064 – Fundargerðir 2014, til kynningar í bæjarstjórn.

      Fundargerð fræðsluráðs frá 13.jan.sl.$line$Fundargerðir umhverfis- og framkvæmda frá 18.des. og 15.jan.sl.$line$a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 6.jan.sl.$line$b. Fundargerð eigendafundar SORPU bs. frá 6.jan.sl.$line$c. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 16.des. sl.$line$d. Fundargerð stjórnar STRÆTÓ bs. frá 29.nóv. $line$Fundargerðir bæjarráðs frá 19.des. sl og 16.jan.sl.$line$a. Fundargerðir hafnarstjórnar frá 4. nóv., 10. og 17.des. og 7.jan. sl.$line$b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 6.des. sl.$line$c. Fundargerð stjórnar skíðasvæða höfurborgarsvæðisins frá 5.des. sl.$line$d. Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 17.des. og 6.jan. sl.$line$e. Fundargerð stjórnar SSH frá 6.jan. sl.$line$Fundargerðir skipulags- og byggingaráðs frá 17.des., 14.jan. og 22. jan.sl.$line$Fundargerðir fjölskylduráðs frá 19.des. og 15.jan. sl.$line$a. Fundargerðir íþrótta-og tómstundanefndar frá 9. og 16.des.sl.

      Enginn kvaddi sér hljóðs.

Suggestion portal