In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskilinni Margréti Gauju Magnúsdóttir en í hennar stað mætir Eva Lín Vilhjálmsdóttir. [line][line]Auk ofangreindra sat Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fundinn.[line][line]Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir setti fundinn og stjórnaði honum.
5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl.
Lagt er til við bæjarstjórn að síðari umræða um fjárhagsáætlun fari fram 6. desember nk. í stað 22. nóvember líkt og bæjarstjórn hafði samþykkt á fundi sínum 8. nóvember sl.
Forseti ber upp eftirfarandi tillögu undir þessum dagskrárlið:
Lagt er til að að álagningarhlutfall útsvars árið 2018 verði óbreytt, þ.e. 14,48%.
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum framlagða tillögu forseta, 4 sitja hjá.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum að síðari umræða um fjárhagsáætlun fari fram 6. desember nk. í stað 22. nóvember líkt og bæjarstjórn hafði samþykkt á fundi sínum 8. nóvember sl.
Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun.
Bæjarstjóri Haraldur L. Líndal tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum framlagðan viðuka við fjárhagsáætlun.
4. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl.
Tekið fyrir að nýju. Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mætti til fundarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og lokið í samræmi við umræður á fundinum og bæjarstjóra falið að útfæra málið og að undirbúa viðauka fyrir fjárhagsáætlun 2017.
Bæjarstjórn samþykkir með samhljóða með 11 greiddum atkvæðum afgreiðslu bæjarráðs.
12.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl. Endurnýjun lóðaleigusamnings
Bæjarráðs samþykkir framliggjandi lóðarleigusamning og vísar honum til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum fyrirliggjandi lóðarleigusamning.
13.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl. Endurnýjun lóðaleigusamnings
Bæjarráð samþykkir framlagðan lóðarleigusamning og vísar honum til samþykktar í bæjarstjórn.
14.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl. Lagt fram kauptilboð í íbúð að Drekavöllum 20.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gengið sé frá kaupum á íbúð að Drekavöllum 20 í samræmi við framlagt kauptilboð.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að gengið sé frá kaupum á íbúð að Drekavöllum 20 í samræmi við fyrirliggjandi kauptilboð.
15.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl. Lögð fram beiðni Óðalhúsa um að afsala sér lóðarúthlutun á Glimmerskarði 2.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 2 við Glimmerskarð til Óðalhúsa verði afturkölluð.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að úthlutun lóðarinnar nr. 2 við Glimmerskarð verði afturkölluð
16.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl. Lagður fram póstur frá lóðarhöfum að Vikurskarði 8 þar sem fram kemur að þau óska eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 8 við Víkurskarð til Sædísar Öldu Búadóttur verði afturkölluð.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að úthlutun lóðarinnar nr. 8 við Vikurskarð verði afturkölluð.
17.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv.sl. Lagt fram bréf dags. 7.okt. sl. frá lóðarhöfum að Malarskarði 8 og 10 (parhús) þar sem fram kemur að þau óska eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 8 og 10 við Malarskarð til Steinunnar Guðmundsdóttur og Stefáns Hallssonar verði afturkölluð.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að úthlutun lóðanna nr. 8 og 10 við Malarskarð verði afturkölluð
18.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv.sl. Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Malarskarði 12 og 14 þar sem fram kemur að þau óska eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 12 og 14 við Malarskarð til Inga Þórarins Friðrikssonar, Jónu Huldu Pálsdóttur, Huldu Pálsdóttur, Sylvíu Daggar Hjörleifsdóttur og Kristjáns Una Óskarssonar verði afturkölluð.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að úthlutun lóðanna nr. 12 og 14 við Malarskarð verði afturkölluð
19.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl. Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Malarskarði 18 og 20 þar sem fram kemur að þau óska eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 18 og 20 við Malarskarð til Magnúsar Héðinssonar, Margrétar Þórarinsdóttur, Helga Vigfússonar og Elínar Önnu Hreinsdóttur verði afturkölluð.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að úthlutun lóðarinnar nr. 18 og 20 við Malarskarð verði afturkölluð
20.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv.sl. Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Malarskarði 22 þar sem fram kemur að þau óska eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 22 við Malarskarð til Vignis Stefánssonar og Önnu Berglindar Sigurðardóttur verði afturkölluð.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að úthlutun lóðarinnar nr. 22 við Malarskarð verði afturkölluð
21.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv.sl. Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Hádegisskarði 21 þar sem fram kemur að þau óska eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 21 við Hádegisskarð til Jóns Karls Líndal og Petru Sifjar Jóhannsdóttur verði afturkölluð.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að úthlutun lóðarinnar nr. 21 við Hádegisskarð verði afturkölluð
22.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl. Lögð fram umsókn Fitjaborgar ehf. kt. 521288-1409 um lóðina Breiðhella 1.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja umsókn Fitjaborgar ehf. kt. 521288-1409 um lóðina Breiðhella 1.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum umsókn Fitjaborgar ehf. um lóðina Breiðhella 1.
23.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv.sl. Lögð fram umsókn H-Berg ehf. kt. 640707-0110 um lóðina Borgahella 13 og til vara Borgahella 11.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja umsókn H-Berg ehf. um lóðina Borgahella 13.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum umsókn H-Berg ehf. um lóðina Borgahella 13.
6.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 24.ágúst sl. Afgreiðslu frestað á fundi bæjarstjórnar 30.ágúst sl.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum að grenndarkynna nýja tillögu dags. 30.05.2017 að breyttu deiliskipulagi á lóð við Hamarsbraut 5 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á lóð fyrir einbýlishús í lóð fyrir tvíbýlishús og færslu á bílastæðum á lóð. Breytt tillaga var grenndarkynnt frá 29.06.2017-10.08.2017. Athugasemdir bárust frá 10 aðilum. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir ódags. umsögn skipulagsfulltrúa og fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Hamarsbrautar 5 og að málinu verði lokið í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010. og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:
“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að deilskipulagi Hamarsbrautar 5 og að málinu verði lokið í samræmi við 3. mgr. 41.gr. laga 123/2010.”
Forseti ber upp tillögu um að fresta málinu um tvær vikur og er það samþykkt með 10 greiddum atkvæðum og einn situr hjá.
Margrét Gauja Magnúsdóttir les upp bókun fyrir hönd minnihluta Vinstri grænna og Samfylkingar.
Fundarhlé kl. 18:13.
Fundi framhaldið kl. 18:32.
Fyrri bókun minnihluta Vinstri grænna og Samfylkingar er dregin til baka og kemur Adda María Jóhannsdóttir að eftirfarandi nýrri bókun fyrir hönd minnihluta Vinstri grænna og Samfylkingar:
“Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna óska eftir að afgreiðslu máls nr. 12 á dagskrá verði frestað.
Óskum við eftir að samráð verði haft við íbúa hverfisins í heild enda miklar breytingar fyrirhugaðar á svæðinu í kringum Suðurgötu, og mikilvægt að huga að heildrænu skipulagi hverfisins.
Við þéttingu byggðar er einnig mikilvægt að huga að nauðsynlegum innviðum í hverfum. Því leggjum við áherslu á að hugað verði að leik- og grunnskólamálum sem og aðgengismálum og umferð í hverfinu áður en frekari þétting byggðar á sér þar stað.”
Ólafur Ingi Tómasson tekur til máls. Til máls tekur Gunnar Axel Axelsson.
Til andsvar kemur Rósa Guðbjartsdóttir og leggur fram tillögu um að málinu verði vísað aftur til skipulags- og byggingarráðs.
Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson. Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari.
Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir.
Bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson kemur upp í andvsvar. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Ólafur Ingi Tómasson.
Forseti ber upp til atkvæða framkomna tillögu um að málinu verði vísað aftur til skipulags- og byggingarráðs. Er það samþykkt með 11 greiddum atkvæðum.
Lögð fram tillaga um að bæjarstjórnarfundur miðvikudaginn 6.desember nk. hefjist kl. 16.
Bæjarstjaórn samþykkir með 10 greiddum atkvæðum tillögu um að bæjarstjórnarfundur miðvikudaginn 6.desember nk. hefjist kl. 16. Einn greiðir atkvæði á móti tilögunni.
Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.nóv. sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 15.nóv. sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 8.nóv. sl. Fundargerðir fjölskylduráðs frá 10.og 17.nóv.sl. Fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv.sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 10.nóv.sl. b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 8.nóv. sl. c. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.okt. sl. d. Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 2.júní og 15.sept. sl. e. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 27.okt.sl. f. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 10.nóv. sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 15.nóv.sl. a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 27.okt.sl. b. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 29.sept.sl.