Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Fjölskylduráð

27. April 2011 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Meeting 200

Attended

  • Gunnar Axel Axelsson formaður
  • Guðný Stefánsdóttir aðalmaður
  • Birna Ólafsdóttir aðalmaður
  • Geir Jónsson aðalmaður
  • Axel Guðmundsson varamaður

Secretary

  • Margrét L. Jónsdóttir ritari fjölskylduráðs
  1. Kynning

    • 0805163 – Vinnuskólinn

      Til fundarins mætti Ellert B. Magnússon og gerði grein fyrir sumarstarfi Vinnuskólans 2011.

      <DIV&gt;</DIV&gt;

    • 11023021 – Félagsmiðstöðvar og heilsdagsskóli

      Ellert B. Magnússon gerði grein fyrir niðurstöðum starfshóps um sameiningu félagsmiðstöðva og heilsdagsskóla.

      <DIV&gt;</DIV&gt;

    Almenn erindi

    • 1104061-1 – Neysluviðmið, umsögn sambandsins um skýrslu sérfræðinganefndar

      Lögð fram umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga um skýrslu sérfræðinganefndar um neysluviðmið.

      <DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0701245 – Atvinnuástandið

      Lögð fram til kynningar skýrsla Vinnumálastofnunar um atvinnuástandið í mars 2011.

      <DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0912025 – Atvinnuleysistölur, Hafnarfirði

      Lagðar fram til kynningar tölur um atvinnuleysi í Hafnarfirði sl. 13 mánuði.

      <DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0705196 – Sólvangur

      Á fundi sínum 20. apríl sl. samþykkti bæjarstjórn eftirfarandi tillögu:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir vonbrigðum með þann stórfellda niðurskurð sem kynntur hefur verið í rekstri hjúkrunarheimilisins Sólvangs og mun að óbreyttu leiða til verulega skertra lífsgæða hjá þeim bæjarbúum sem þar eiga heimili og njóta nú umönnunar og öryggis. Skorar bæjarstjórn á velferðarráðherra að endurskoða ákvörðun sína í málefnum Sólvangs og hefja virkt samráð við Hafnfirðinga um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu í bæjarfélaginu til framtíðar. $line$$line$Í því skyni felur bæjarstjórn fjölskylduráði að stofna starfshóp sem skipaður skal 3 fulltrúum fjölskyldurráðs og 2 fulltrúum öldungaráðs. Starfshópurinn fái það hlutverk að leggja mat á stöðu öldrunarþjónustu í bænum með tilliti til þeirrar stefnumörkunar sem grunnur var lagður að í samstarfi ríkisins og bæjarins árið 2006 og unnið hefur verið eftir og óski eftir samstarfi við Velferðarráðuneytið í þeirri vinnu. Þá skuli hópurinn jafnframt fjalla um stöðu Sólvangs, þær breytingar sem þar eru að verða á þjónustu og gera tillögur að því hvernig verja megi þá þjónustu og þau störf sem þar eru til staðar. Stefnt skuli að því að hópurinn skili niðurstöðu sinni og aðgerðaráætlun til fjölskylduráðs eigi síðar en 22. júní nk.”$line$$line$

      <DIV&gt;</DIV&gt;

Suggestion portal