In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Auk þeirra sat Rannveig Einarsdóttir sviðstjóri fundinn.
Lagr fram.
Fjölskylduráð tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í meðfylgjandi fréttatilkynningu og áréttar mikilvægi þess að eftirlit og faglegur stuðningur við þjónustu við fatlað fólk sé öflugt og skilvirkt. Hafnarfjörður hefur ásamt þremur öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu haldið úti slíku eftirliti frá árinu 2013. Í janúarmánuði síðastliðnum kom starfsmaður innra eftirlitsins á fund fjölskylduráðs og gerði grein fyrir starfi sínu. Aukning umfangs þjónustu við fatlað fólk á þessu svæði undanfarið gefur tilefni til að auka starfshlutfall í umræddu eftirliti, sem nú er 50% í 100%. Fjölskylduráð leggur áherslu á að það verði gert með fjármagni úr jöfnunarsjóði eins og verið hefur hingað til. Í fjárhagsáætlun ársins 2017 var bætt við fjármunum til að auka hlutfall fagmenntaðra í þjónustu við fatlað fólk, sem bætist við þær ráðstafanir sem getið er um í meðfylgjandi fréttatilkynningu.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og VG harma þær tafir sem orðið hafa á uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á kjörtímabilinu. Einnig teljum við það mikla afturför að bærinn hafi afsalað sér aðkomu að rekstri heimilisins með því að fela Sjúkratryggingum að auglýsa eftir einkaaðilum til þess að reka heimilið. Það eru sömuleiðis mikil vonbrigði að ekki skuli liggja fyrir hvaða hugmyndafræði verður höfð að leiðarljósi við rekstur hjúkrunarheimilisins þannig að hönnun þess geti tekið mið af henni. Ekki verður séð hvernig þessar ákvarðanir samrýmast sameiginlegri sýn bæjarstjórnar hingað til um að nærþjónustan skuli vera á hendi bæjarfélagsins.
Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar
Eftir langan undirbúning er ánægjulegt að nú liggur fyrir að nýtt hjúkrunarheimili verður tekið í notkun við Sólvang á næsta ári. Hafnarfjörður mun byggja hið nýja hjúkrunarheimili og eiga það að fullu og sjá um rekstur húsnæðisins en ríkið mun greiða leigu samkvæmt samningi sem nefndur hefur verið „leiguleið“ og sjá um innri rekstur heimilisins og er það sama fyrirkomulag og nú er á Sólvangi og það fyrirkomulag sem algengast er varðandi rekstrarform annara hjúkrunarheimila á Íslandi. Að öðru leyti er vísað til meðfylgjandi minnisblaðs
Fjölskylduráð samþykkir að gerð verði breyting á reglum Hafnarfjarðarbæjar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks þar sem nemendum á framhalds-og háskólastigi, sem eru með heimild í akstursþjónustunni og eru með lögheimili í Hafnarfirði, verði boðin nemakort.
Lagt fram.
Markmið verkefnisins er að setja fram tillögu með hugmyndum um uppbyggingu búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda, og eftir atvikum fleiri úrræði í barnavernd. Svo sem tilsjónarmanneskjur, persónulega ráðgjafa, stuðningsfjölskyldur og vistheimili. Fjölskylduráð felur sviðstjóra að gera samning við Róbert Ragnarsson ráðgjafa um útfærslu verkefnisins í samræmi við umræður á fundinum.
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 2/2017
Fjölskylduráð staðfestir niðurstöðu afgreiðslu málskotsnefndar.